Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Page 64

Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1918, Page 64
222 Sleingrímur Matthíasson: [ IÐUNN þó okkur sj'nist svo, heldur haldi þær áfram, en að eins ofur hægt. En sé það þannig, að líf geti leynst í helstirðum, klakahörðum líiíærum, þá fer það að verða eins trúlegt, að líf leynist í steinum og málin- um, eins og sumir liafa viljað halda fram (t. d. indverski fræðimaðurinn Bose). Og þá er lífið langtum víðtækara og viðar að finna en vér liöfum hingað til haldið, nema vér séum sömu skoðunar og þýzki spekingurinn Fechner, að jörðin sé kvik og ef lil vill allur heimur sé ein feikna-skepna með fullu fjöri.1) En aðrir munu segja: Þegar lifandi vera er stirðnuð og gaddfrosin, þá er lííið um leið algerlega slöðvað og dauðinn er seztur að í lifsins stað; frostið hefir stöðvað allar lífshreyfingar. En frostið lieldur liins vegar öllum líffærunum heilum og óskemdum, svo að þau geta byrjað að starfa á ny jafnskjótt og góð skilyrði — hæiilegur hiti o. 11. — eru fengin aflur. Og þeil- líkja því við gufuvélina, sem slöðvast, þegar eldurinn slokknar í kolunum, en lireyfist að nýju, þegar kveikt er upp og gufan myndast á ný. Énn eru aðrir sem segja: Við mennirnir erum gæddir líkama og sál. Sálin er sama og lífið og er andlegs eðlis og æðra eðlis en líkaminn. Likaminn verður lifandi fyrir samband lians við sálina. Jafn- skjótt og sálin fer burt, liggur líkaminn dauður eftir. En sé það svo, að mennirnir hafi sál, þá hafa dýrin líka sál, og yfir liöfuð allar lifandi verur, þó sál þeirra sé ófullkomnari en vor. Hverjir hafa rélt fyrir sér? t*ví gelur hver svarað eftir því, sem honum þykir sennilegast. II. í kaflanum liér á undan var einungis að ræða um lægslu verur og um plönlur og dýr með köldu blóði. 1) Sjá Skirni, 4. liciti 1(.M4, »Heíir jöröin sál« eítir dr. Gnðm. Finn- bogason.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.