Kirkjuritið - 01.04.1956, Side 39

Kirkjuritið - 01.04.1956, Side 39
Skuldin við Skálholt fUr rcvðu á Skálhollshálíðinni 195U) A ferðum okkar í alla landshluta undan farnar vikur höfum við hjónin verið að lifa sögu lands vors. Við höfum blátt áfram verið á pílagrímsferð til fagurra og helgra staða. Að sjálfsögðu höfum við oftar en einu sinni komið á Þingvöll við Öxará, þar sem ileyra má, eins Jakob J. Smári skáld sagði fagurlega, „þjóðar ' orrar þúsund ár sem þyt í laufi á sumarkvöldi hljóðu“. Og slíks sumarkvölds ógleymanlegs í fegurð sinni höfum við einmitt fengið að njóta á Þingvöllum í þessum ferðum okkar þangað. á ferðum okkar um Árnesþing hafa mér orðið ríkar í huga þessar ljóðlínur Eiríks Einarssonar í kvæði hans „Úr vísum gam- ais Arnesings": „í hinum gamla, göfga minjasal þú geymir Skálholt, Þingvöll, Haukadal. Því segir ísland: Sjá, við háborðið mitt er sæti þitt“. °g nú höfum við hjónin í fyrsta sinni stigið fæti á vígða grund Skálholtsstaðar, og orðið djúpt snortin af þeim miklu og marg- Þ*ttu minningum, sem við þennan stað eru tengdar, minning- llni> sem hita um hjartarætur hverjum þeim íslendingi, er nokkuð þekkir til sögu þjðar sinnar. Hér er sannarlega heilög jörð. „Hér hefir steinninn mannamál °g moldin sál“, enda gengur þessi staður næst sjálfu Lögbergi 11111 sögulega helgi. Innan tveggja ára eru liðin 900 ár frá því að iskupsstóll var stofnaður hér í Skálholti, og fram að lokum 18. ahlar var hér höfuðkirkja landsins og miðstöð mennta og menn- lngar meginhluta þjóðarinnar. Um meir en sjö alda skeið var

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.