Kirkjuritið - 01.06.1957, Blaðsíða 24
262
KIRKJUÍUTIÐ
sem hafa siðferðilegt gildi. Félagsskapurinn er byggður á kristi-
legum grundvelli, og félagslíf skátanna er fólgið í gagnlegri
fræðslu, útilífi, hjálparstarfi, heilbrigðum skemmtunum og
margskonar þjónustu.
Sir Baden-Powell varð gamall maður, og eins og áður er sagt
helgaði hann skátasarfinu alla krafta sína, síðari hluta ævinnar.
Hann kvæntist 1912 Olave St. Clair Soames, tók hún virkan
átt í skátastarfinu með manni sínum.
Baden-Powell var alþjóða skátahöfðingi, en kona hans var
alþjóðahöfðingi kvenskáta.
Ferðuðust þau víða um heim, heimsóttu bækistöðvar skáta
og tóku þátt í skátamótum. B. P. ritaði margar bækur um skáta-
félagsskapinn og aðrar bækur fyrir unglinga um útilíf og ferða-
lög.
Arið 1938 heimsóttu þau hjón ísland á eimskipinu „Orduna“,
en þá var B. P. svo lasburða, að hann treysti sér ekk*i í land,
en íslenzkir skátar og foringjar þeirra gengu á skipsfjöl og
hylltu hann þar.
Frú Baden-Powell kom aftur hingað s. 1. sumar og tók þá
þátt í mjög fjölmennu og skemmtilegu skátamóti, sem hald-
ið var í Hagavík við Þingvallavatn. Fannst henni mikið til um
starf íslenzku skátanna.
Sir Baden-Powell lézt suður í Kenya í Afríku 7. janúar 1941.
Þeir sem sáu hann og heyrðu munu seint gleyma hinum hóg-
væra og virðulega foringja, sem vann hjörtu allra með áhrifa-
valdi síns þróttmikla persónuleika.
Um ókomin ár munu hugsjónir hans lifa í hjörtum ungs fólks,
og hjálpa því til, að vera betur viðbúið til þeirra starfa, sem
lífið kallar það til. í niðurlagi síðasta bréfs síns til skátanna
farast Baden-Powell orð á þessa leið: '
„En það er aðeins hægt að höndla hamingjuna á einn veg,
og það er með því að gera aðra hamingjusama. Reyndu að
yfirgefa þennan heim ofurlítið betri en þegar þú komst í hann.
Þá veiztu, að þú hefir ekki eytt æfi þinni til einskis.“ „Vertu
viðbúinn“ að lifa hamingjusamur á þennan hátt. Haltu ávalt