Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1990, Page 29

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1990, Page 29
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 27 orðnir og börn. Menn frá björgunar- sveitinni Ernir voru um borð í varð- skipinu ásamt því að vera á björgun- arbátnum Gísla Hjalta í námunda við skipið. Einnig voru fengnir björgun- arbátar hjá Dagrúnu og Heiðrúnu. Ferðin tók rúma klukkustund og voru ekki síst yngstu farþegarnir ánægðir. Menn eru mjög þakklátir Landhelgisgæslunni fyrir þátttökuna í hátíðarhaldi dagsins. Sunnudagurinn 4. júní: Sjómanna- dagur, heilsaði með norðaustan kalsa rigningu og slyddu. Gengið var frá Brjótnum til kirkju kl. 10.15. Fánaberar voru Kristján Sævarsson og Sigurður Hjartarson. Séra Jón Ragnarsson messaði og þeir Ásgeir Guðjón Kristjánsson og Guðmundur Halldórsson lásu ritningagreinar. Karlakórinn annaðist sönginn. Nú í fyrsta skipti fór heiðrun aldraðra sjó- manna fram í kirkjunni. Þeir sem heiðraðir voru eru, Þórður Eyjólfs- son, Per Sulebust (Pétur Jakobsson) og Kristján Þ. Kristjánsson. Ung sjómannsdóttir lagði blóm- sveig að minnisvarða í kirkjugarði. Kl. 13 var kappróður. Sveit Heið- rúnar sigraði hjá sjómönnum, björg- unarsveitin Ernir hjá landsveitum og stúlkur frá Einari Guðfinnssyni h.f. í kvennaflokki. Kvennadeild Slysa- varnafélagsins seldi kaffi. Kl. 16 var skemmtun í íþróttahús- inu. Þar var margt sér til gamans gert. Óláfur Pálsson sigraði í neta- bætingu og vann farandbikar til eign- ar, þar sem hann sigraði nú þriðja árið í röð. Þá var keppt í fótbolta, liðin voru með svuntur og í gúmmí- buxum. Börnin tóku að venju þátt í skemmtanahaldinu og nú með nýstárlegri hlaupakeppni. Að þessum skemmtunum loknum fór fram afhending verðlauna. Þá skemmtu þeir Halli og Laddi (Eirík- ur Fjalar) og lauk skemmtuninni kl. 18.15. Kl. 20 var afmælishóf haldið í veit- ingahúsinu Skálavík. Þar voru mætt- ir um 230 manns. Veislustjóri var Gunnar Hallsson. Hljómsveit Magnúsar Kjartans- sonar spilaði meðan á borðhaldi stóð og forsöngvari fyrir almennum söng var Egill Ólafsson leikari. Keppni í netabætingu. Ólafur sigurvegari, þriðji maður talið neðan frá (sá á skyrtunni með bindi). Sjómannadeginum barst blóma- karfa frá Sjómannadeginum á ísa- firði. Að loknu borðhaldi lék hljóm- sveit Magnúsar Kjartanssonar fyrir dansi til kl. 4 um nóttina. Að vanda voru seld merki og blöð dagsins og sáu þær Una H. Halldórs- dóttir og Sólrún Geirsdóttir um það eins og mörg undanfarin ár, og Sól- rún tók einnig ljósmyndir þær sem hér fylgja. Börnin fylgjast með skemmtan Halla og Ladda.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.