Eimreiðin - 01.07.1929, Blaðsíða 27
Eimreiðin GOÐAST]ÓRN 211
Aður langt um liði yrði komin landsstjórn í stað flokksstjórnar
°S landshagur sæti í fyrirrúmi fyrir flokkshag.
Nú fer öll stjórnmálastefna eftir því, hver flokkur situr við
stýrið. Hún er eitt í dag og annað á morgun. Qoðastjórnin
Vrði að sjálfsögðu stefnufastari og sjálfri sér samkvæm, þó
hún yrði hinsvegar neydd til þess að fylgja með tímanum.
er að lokum margt, sem styður að því, að sparlegar
Vrði farið með landsfé en nú gerist. Goðarnir þurfa ekki að
halda á mútum til þess að falla ekki við næstu kosningar, og
flokkar hætta að yfirbjóða hver annan. Þá verður og ríkari
ábyrgðartilfinningin hjá stjórn og þingi, sem er föst í sessi,
en hinsvegar væri og sjálfsagt að gera goðunum óheimilt að
hækka útgjöld í fjárlögum stjórnarinnar eða baka Iandinu þau
^eð öðrum lögum. Minki hinsvegar eyðslan, minka skattar og
á*ögur að sama skapi.
Eg kem þá að þeirri hliðinni, sem sérstaklega veit að kjós-
endum. Hafa þeir nú ekki eigi að síður mist áhrif og tapað
við breytinguna?
^ar sem þingræðið er komið á fastan fót og hefur náð
^ullum þroska, ráða kjósendur ótrúlega litlu. Flokkarnir eru
einráðir um frambjóðendur við kosningar, svo kjósendur hafa
apeins um það að gera að velja milli flokka, geta t. d. selt
S19 þeim flokknum, sem lofar mestu og býður hæstar mútur,
en mega þó hinsvegar vera við því búnir, að flest loforðin
verði svikin. Jafnvel almenningsálitið er búið til eins og hver
°nnur vara. Það er starf flokksblaðanna. Svo kvað Stefán
Ameríkuskáld:
„Um hugstola mannfjöldans vitsmuni og vild
er vilt um, og stjórnað, af fám“.
Það er áreiðanlega ekki úr háum söðli að detta fyrir kjós-
endur, með því skipulagi sem nú er.
Með goðastjórninni er hverjum kjósenda opnuð áhættulaus
*eið til þess að styðja hvern þann goða á þingi, sem hann
freystir bezt, en oftast munu flestar skoðanir, sem uppi eru í
tandinu eiga einhvern formælanda á þingi. Ekkert stjórn-
shipulag á vorum dögum gefur kjósendum svo frjálsar hendur.