Eimreiðin - 01.07.1929, Blaðsíða 146
330
GUÐFRÆÐINGAR OG ÞJÓÐIN
EIMREIÐIN
orðum um presta, sem prédika ófrið, er afvegaleidd föður-
landsást hefur blindað hugi þeirra. Hreinskilnislega sagt
efast ég mikið um, að við Knútur Arngrímsson mundum að
sjálfsögðu taka réttari stefnu í slíkum málum en ýmsir aðrir
hafa gert, ef við værum þegnar Englands, Þýzkalands eða
Frakklands. Hitt veit ég, að við hefðum margfalt meiri skil-
yrði til þess að taka rétta stefnu í slíku máli sem guðfræð-
ingar, ef nám okkar til undirbúnings því starfi að verða leið-
beinarar mannanna í vandamálum, hefði meðal annars verið í
því fólgið, að kynna okkur hvernig á styrjöldum standi. Við
þurfum með öðrum orðum að afla okkur einhverrar þekkingar
á félagsfræði. Og þetta er það, sem ég er að mæla með. Eg
vil að guðfræðingurinn reyni að afla sér þekkingar á þv'-
sem hann ætlar að tala um. Eg vil að hann leggi svo mikið
kapp á það, að kristindómur hans svigni ekki fyrir hverri
ástríðugolu, er um þjóðlífið kunni að leika, hleypidómar hans
verði ekki leiðarstjarna hans og kristindómsboðskapur hans
marklaust hjal.
Það er t. d. einkarhægt að afgreiða með fáum orðum það
fyrirbrigði mannlífsins, er »byltingamenn kveðja þennan sama
Jesús sér til fulltingis við umrót og óeirðir í þjóðfélögunum4-
Það þarf ekki nema fáein orð á stólnum um »amlóða og st-
orkumenn«, og svo að öðru leyti mælast til þess við lögregl"
una, að hún taki í lurginn á »amlóðunum«. En það er ekki
með öllu ljóst, fyrir hverja sök þjóðir eiga að vera að halda
uppi stórkostlegri stofnun, sem tekur að sér að leiðbeina um
siðferðileg vandamál, ef ekki má búast við öðrum ráðlegginS"
um um sjálfa hina félagslegu sambúð mannanna en þeim, er
hver óvalinn aulabárður getur haft eftir hleypidórnafullum
mönnum. Hugsanir okkar Knúts Arngrímssonar mætast
þótt undarlegt megi virðast — undir greinarlok hans, er hann
mælir, að »með lífshugsjón hans (þ. e. Krists) á kirkjan að
standa sem leiðtogi og dómari samtíðar sinnar*. Munurinn er
einungis sá, að K. A. treystir sér til þess að setjast í Þa^
leiðtoga- og dómarasæti án þess að hann sem guðfræðingur
hafi á nokkurn hátt búið sig undir að átta sig á rnálavöxtum-
Mér finst það ekki sérstaklega fýsilegt fyrir þá, sem leiðsögn-
inni eiga að hlíta og dómnum að sæta. Og meðan svo er