Eimreiðin - 01.07.1929, Blaðsíða 119
eimreiðin SÁLRÆNAR RANNSÓKNIR 303
hefur hjá öðrum miðlum víðsvegar um heim, sem hafa verið
Tannsakaðir af reyndum og afhugulum mönnum, án þess að
UlTi nokkur svik hafi verið að ræða. Það dettur víst engum í
hug að neita því, að dulrænir hæfileikar hafi stundum verið
uotaðir í eigingjörnum tilgangi, svo sem til fjár, og allir heil-
^r'9t hugsandi menn hafa andstygð á því, að dulræn fyrir-
^ógði séu höfð að féþúfu. En þó slíkt hafi stundum átt sér
stað, er það engin sönnun gegn því, að dulræn fyrirbrigði
9erist. Loddarar eru til á öllum sviðum, — í verzlun og við-
skiftum, bókmentum, stjórnmálum, — og sjálfsagt einnig á
sviði sálrænna fyrirbrigða, þótt ég þekki þá ekki. En það
Sefur engar upplýsingar um það mikla viðfangsefni, sem sálar-
rannsóknirnar eru að færa mönnum. Þeir, sem óska að fylgj-
sem bezt með þeim rannsóknum, en hafa ekki tök á að
fást við þær sjálfir, verða að kynna sér það, sem sjónarvottar
hafa ag segja, — þeir sjónarvottar, sem stunda rannsóknir
Slner af alvöru, í einlægri leit að sannleikanum og með gagn-
ryui og varúð. Þá votta hljótum vér jafnan að taka fram yfir
^á> sem dæma öll dulræn fyrirbrigði svik og sjálfsblekkingar,
lítt rannsökuðu máli.
Lífsskoðun manna verður að grundvallast á rólegri íhugun
°9 vissu um meginlögmál tilverunnar, að svo miklu leyti
Sem unt er. Öll æðri trúarbrögð eru upprunalega grundvölluð
n staðreyndum, þótt þær hafi oft, er á leið, kafnað undir erfi-
enningum. Sálarrannsóknirnar eru ennþá stutt á veg komnar,
en hafa þó þegar haft stórfeld áhrif á hugsunarhátt fjölda
rnanna. Áhrifa þeirra gætir í öðrum fræðigreinum svo sem
Suðfræði, líffræði, læknisfræði. Eins og dagsbrúnin úr austri
^arPar ljóma yfir Iandið og rýfur næturþokuna, þannig bregða
Pær ljóma yfir líf vort og framtíð, rjúfa þoku efnishyggjunnar,
Sern hefur fært mönnunum steina fyrir brauð, og sýna oss
°v®nta fegurð, þar sem áður var myrkrið tómt.
Sv. S.