Eimreiðin - 01.07.1929, Blaðsíða 35
EIMREIÐIN
REYKJAVÍKURSTÚLKAN
219
býlingsárunum þar, meðan aðkomandi listamenn urðu að notast
V]ð úrelt hljóðfæra-skrifli: >Skjótið ekki á píanistann*.
Reykjavíkurstúlkan er svo tíður gestur í bíóm, að hún er
aðal fjárstofn þeirra. ]á, þó það væri nú. Hún á þeim lang-
faest að þakka það, sem hún veit um hætti annara þjóða. Eg
beld, að oss íslendingum sé gjarnt til að vanmeta filmið og
Verðmæti þess. Og þó hefur það komið hér eitt í stað ótal
hluta, sem aðrar þjóðir áttu fyrir. Það hefur verið okkur alt
J senn: leikhús, skemtigarðar, listasöfn — og stærsti glugg-
lnn út að Evrópu. Það er fátæklegt — en heil auðlegð móts
v'ð það að vera án þess. Og hér hefur verið blátt áfram að-
úáanleg viðleitni til að vanda val á filmum, þrátt fyrir óhæga
aðstöðu. Dómshaft á filmum er víst alveg óþarft á íslandi.
En hitt er brýn nauðsyn að kannast við, hve verðmætt menn-
lnaaratriði filmið getur orðið einmitt hér. Svíar hafa skilið
hlutverk þess og ekki lagt á film hærri skatt en 10°/o. Á-
ranSurinn: þeir eiga smekkvísustu filmgesti í heimi, auk
stórmetinnar framleiðslu. Vér ættum að varast víti Dana, sem
'þyngdu filminu með 40°/o í skatt, með þeim árangri, að
þeir Serspiltu smekk áhorfenda sinna og lögðu filmsiðnað
Slnn í kalda-kol, þar til þeir urðu nú, um seinan, að lækka
sbattinn um helming.
komum vér að útlendingunum, sem gera oss svo af-
fýðissama. Ég kannast við, að það getur orðið alvarlegt ut-
anríkismál. En áður en vér grípum til vopna, væri ráðlegt,
að vér spyrðum oss sjálfa, af hvaða ástæðum Reykjavíkur-
stúlkan er gjörn á að hænast meira að útlendingum en oss.
9 ef vér skiljum það ekki, þá að spyrja hana sjálfa. Ég
reVndi þetta á dögunum. Ég lagði þessa spurning fyrir fjórar
Un9ar stúlkur.
?ú fyrsta svaraði: Af því að þeir eru kurteisari.
Onnur svaraði: Af því að þeir eru kurteisari.
Þnðja svaraði: Af því að þeir eru kurteisari.
°g sú fjórða sagði bálvond: Af því að ungu herrarnir í
eykjavík taka í nefið.
Eg tók þessu með stilling, því ég sá, að þetta getur lag-
ast- Ungu herrarnir í Reykjavík geta áreiðanlega orðið kurt-
eisari. Og á fám árum er ég viss um, að Reykjavíkurstúlk-