Búnaðarrit - 01.01.1895, Blaðsíða 101
97
hús, er standa á víð og dreif, vanta, t. d. að ganga má
á milli þeirra eptir heystæðunni, þegar eitthvert rúm er
komið, líka þarf nokkru minni veggi undir þau, en ein-
stök hús, því allir milliveggir þeirra gilda fyrir 2 veggi,
en þurfa þó að vera nokkru þykkri vegna hálfsundanna,
sem höfð eru í þau til að Ieiða vatnið af þökunum burt.
Það gegnir annars furðu, hve óvíða þessi hús hafa verið
bygð, meðan menn höfðu ekki öðru betra að venjast. Pað
cr því ekki lílclcgt að þeim fjölgi mikið hjeðan af, þegar
fist.húsin cru komin til sögunnar, því töluvert kostnað-
arsamara er að byggja þau, og þau vanta ýmsa þá kosti,
sem flst.húsin hafa.
Fyrir hjer um bil 20 árum var farið að byggja
fjárhús með ennþá einu lagi. t>að voru 2 hús undir
saina þaki, sitt undir hvorri þakhlið, og var þeim stíað
í sundur við mænistoðir. Þau liöfðu nokkra kosti fram
yfir hin venjulegu fjárhús, en i þeirn hjeruðum, þar sem
þau tíðkuðust mest, hafa þau nú rýmt fyrir flst.húsun-
um, og er því ekki þörf á að minnast frekar á þau.
En fyrsti vísir til flst.húsanna munu þau hafa verið.
Ef menn færu almcnnt að byggja fjárhús sín með
fleirstæðulagi, scm vonauda er að verði áður langt um
líður, mætti óhætt segja, að fjárhúsabyggingar vorar
hefðu tekið stórmiklum framförum, en jafnframt ríður á
að menn vandi þessar byggingar sínar, og forðist alla
þá galla á þeim, sem hjákvæmilegir eru. Þvi miður
munu sum af þeim flst.liúsum, sem bygð hafa verið,
ekki vera svo vönduð sem skyldi. Yerst af öllu er þó,
þegar gallarnir og ókostirnir hafa engan sparnað í för
með sjer, en eru framkomnir einungis af hugsunarleysi
og hroðvirkni. Hitt er nærri vorkun, þó allir geti ekki
bygt hús sín svo traust að viðum til, sem æskilegt
væri, en optast munu 'það þó vera einhverjir aðrir ó-
Búaaöarrit IX. 7