Búnaðarrit - 01.01.1895, Blaðsíða 131
127
einkum notuð við vallarvinnu til þess að mylja áburð-
inn og jafna. Þau kosta 25—30 kr.
3. Slóði er tvenskonar, hrísslóði og trjeslóði; eru
þeir notaðir við vallarvinnuna í stað Jierfisins. Hrís-
slóði er fremur sjaldgæfur, en þeir sem þekkja hann
og hafa notað hann, hæla honum. Flýtir hann mjög
fyrir vallarvinnunni þar sem jörð er sljett eða greiðfær.
Trjeslóði er sumstaðar notaður, t. d. i Dalasýslu. Lík-
ist hann hrísslóðanum, og gerir sama gagn. Þar sem
skóglaust er eða skóglítið, ætti að sjálfsögðu að nota
trjeslóðann. Torfi í Ólafsdal hælir honum, og tclur hann
mjög hentugt áhald. Álítur hann vandalítið að smíða
hann, og kosti ekki mikið, en segir hann geti cnzt ár
frá ári með góðri meðferð. — Að öðru leyti skal eg
ekki fara fieiri orðum um slóðann, með því annarstaðar
í „Búnaðarritinu,, mun koma lýsing á honum, og hvern-
ig liann er tilbúinn.
4. Valtari er til þess gerður, að þjappa saman mold
og jafna eptir plægingu og hcrfingu.
5. Hestaréka er notuð við þúfnasljettun þegar þarf
að flytja mold úr bölunum í lautirnar. Án hennar
er opt ekki liægt, nema þá með því meiri fyrirhöfn og
erfiðismunum, að fá sljettuna vel lagaða eða með hæfi-
legum halla. Verkfæri þetta er þvi mjög þarft og nauð-
synlegt við þúfnasljettun. Fyrir henni gengur einn
hestur. Torfi í Ólafsdal selur hana á 28 kr.
6. Vagn eða kerra. Vanalega er það nefndur vagn,
sem hefur 4 hjól, en sje þau að eins 2, er það kölluð
„kerra“. í Noregi og Englandi er kerra mikið notuð
við jarðyrkju; er ekið í henni áburðinum á engi og akra,
og mjólkinnni á mjólkurbúið (Meieriet) o. s. frv. Kerra,
hæfilega stór, er einn hinn þarfasti búshlutur, er nokk-
ur bóndi getur átt. Það má nota hana svo opt og mörg-