Morgunn


Morgunn - 01.12.1946, Page 24

Morgunn - 01.12.1946, Page 24
94 MORGUNN hæfileika í sjálfum mér. En sem betur fór var þess ekki lengi að bíða, að þeir gerðu vart við sig. Ég hafði alllengi verið veikur og var máttfarinn er ég komst á fætur aftur. Faðir minn kom mér fyrir til hress- ingar á sumarheimili frænda síns í afskekktu fylki í Norður-Canada. Ég og frændi minn vorum mikið úti við. Við reikuðum um skógana, veiddum i ánum og skutum skógardýr. Dag einn urðum við viðskila. Ég hrópaði og kallaði, en fékk ekkert svar. Ég hleypti fjórum skotum úr byssu minni, en við höfðum komið okkur saman um að nota slíkt merki, ef þannig færi fyrir okkur. Mér fór ekki að lítast á blikuna. Ég hljóp kallandi fram og aftur um skóginn. Loks fann ég hann í litlu skógarrjóðri í svo sem hundrað metra fjarlægð. Hann stóð þarna eins og stein- gerfingur og starði fram fyrir sig. Ég kallaði nafn hans, en hann svaraði mér engu. Ég gekk til hans og ýtti við honum, en allt kom fyrir ekki. Allt í einu heyrði ég örlítið hljóð. Sá ég þá slöngu í rúmlega meters fjarlægð frá okk- ur. Tungan lafði út úr gini hennar og hún var að búa sig til að ráðast að frænda mínum. Ég hefi aldrei verið hrædd- ur við slöngur og var það heldur ekki nú. Ég réðist að henni og banaði henni. Á sama augnabliki og ég hafði ráð- ið niðurlögum hennar, vaknaði Strickland frændi minn. Hann geispaði og teygði úr sér. Nú munaði mjóu að þú kæmist undan, sagði ég. „Undan hverju?“ át hann upp eft- ir mér. Sýnilega var honum ekki ljóst, að hann hefði ver- ið í neinni hættu staddur. „Undan slöngunni“, svaraði ég. „Hvaða slöngu, hér er engin slanga“, svaraði hann mér aftur. Þá fyrst, er ég hafði dregið skrokkinn á henni út úr runnanum, trúði hann mér. Hún var um fjögur fet á lengd. Svo var hamingjunni fyrir að þakka, að ég gerði mér þeg- ar Ijóst, að slangan hafði dásvæft frænda minn. Oft áður hafði það verið mér umhugsunarefni, hvern- ig hreysikötturinn virtist oft ná svipuðu valdi yfir bráð sinni. Kanínur og fuglar virtust verða að lífvana steingerv- ingum fyrir seiðmagni augna hans. Ég hafði nú séð, að

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.