Morgunn


Morgunn - 01.12.1946, Page 53

Morgunn - 01.12.1946, Page 53
MORGUNN 123 um, að fylgzt hefur verið með mér úr „ósýnilegum heimi“ og að margir aðrir hafa sömu sögu að segja. En hafi einhver „þriðji maður“ staðið á bak við „högg- in“ á undan komu piltanna, þá er einnig ástæða til að halda, að verið geti að svo hafi líka staðið á um „högg- in“ á Tindastóli, sem ég sagði frá í upphafi og að þau hafi þá ekki stafað frá hinum látna manni, hvorki sjálf- rátt né ósjálfrátt. Skal svo vikið að því, sem ég var byrjaður að skrifa um, þegar „höggin á Ránargötu 6a“ komu þar upp á milli. Hefur þá að segja frá því, þegar þau komu til Vest- mannaeyja, Florizel von Reuter og Gi'ace von Reuter, móðir hans, í maímánuði árið 1929. Erindi v. R. til Eyja var að halda lxljómleika og jafn- framt flytja erindi um sólræn efni. Þau voru bæði miðl- ar, v. R. og móðir hans og hefur v. R. ritað bók um reynslu sína í þessu. Einar H. Kvaran, rithöfundur, kom með þeim og gistu þau öll í heimili mínu. Buðu þau okkur að hafa „fundi“ og að við mættum bjóða öðrum að vera á þeim, sem við treystum og hefði áhuga á þessum málum. Hér skal aðeins skýrt frá einu atviki á einuni þeirra, sem er eins og áframhald af frásögunum um ,,höggin“ hér að framan. Á þeim fundi voru auk okkar lxjónanna þeir Einar H. Kvaran og Hallgrímur Jónasson, kennari — og svo auðvitað v. R. og móðir hans. Við settumst þessi sex um liábjartan daginn við lítið borð í einkastofu minni. Við byrjuðum fundinn með því að leggja öll snöggvast fingur okkar á borðið. Heyrðust þá þegar háir ,,smellir“ eða „bi’estir“ í því. Þetta var alls ekki líkt því, að barið væri í borðið, heldur var þetta hljóð, sem heyrðist, eins og það væri inni í viönum. Minnti það mig nokkuð á snark i eldi, en þó í raun og veru ekki líkt því eða öði'u hljóði, sem ég hef heyrt. Það skal strax tekið fram, að „smellir" í fingrum, tám o.s.frv.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.