Morgunn


Morgunn - 01.12.1946, Page 77

Morgunn - 01.12.1946, Page 77
MORGUNN 147 hver vera þeim skynsamari og víðsýnni kæmi að þeim og gæti komið fyrir þau vitinu? Þess óskar áreiðanlega höfundur bókarinnar um Hafstein miðil; þess óska fjölmargir, á hvern hátt sem þeir hugsa, að hjálpin verði fengin. Guðmundur Gíslason Hagálín. KYNNI MIN AF MIÐLINUM HAFSTEINI BJÖENSSYNI. Eftir Friðgeir H. Berg. Vorið 1946, í maimánuði, var ég um þriggja vikna tíma í Reykjavík og bjó á Vitastíg 7, hjá Ingimar Jónssyni skólastjóra og konu hans, Elínborgu Lárusdóttur, skáld- konu. Hún var þá að leggja síðustu hönd á bókina „Mið- illinn Hafsteinn Björnsson", og fékk ég að lesa handritið. Ég hvatti frú Elínborgu til að fá það gefið út hið bráð- asta, svo merkilegt þótt mér margt, sem þar er sagt frá og vottfest er af merkum mönnum og konum. Dag nokkurn, er ég sat inni í skrifstofu frú Elínborg- ar, kom hún inn til mín með mann, er ég ekki þekkti og kynnti hann fyrir mér, sem miðilinn Hafstein Björnsson. Við höfðum ekki sézt áður. Mér varð starsýnna á Haf- stein en góðu hófi gegndi, svo óvenjulegur þótti mér sá svipblær, er yfir honuní' hvíldi. Mér fannst hann ekki vera af þessum heimi. Ég tók varla eftir því, að frú Elinborg dró gluggatjald- lð niður, svo að herbergið varð alrokkið, en þá áttaði ég mig á því, að mér ætti að gefast kostur á einkafundi. Und- irbúningurinn tók örstutta stund. Ég sat rétt framan við hnén á miðlinum og gat virt andlit hans fyrir mér, bæði áður en hann festi dásvefninn, og meðan á honum stóð.

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.