Morgunn


Morgunn - 01.12.1946, Page 79

Morgunn - 01.12.1946, Page 79
MORGUNN 149 veðri. Síðustu árin, er ég átti heima á Svíra, bjuggu hjón á Auðbrekku, er hétu Árni Jónatansson og Guðrún Jóns- dóttir. Árni dó um 1920, en Guðrún andaðizt 1945, og hafði þá verið blind í nokkur ár. Lýsingin af bænum, umhverfi hans og hjónunum, er þar bjuggu síðustu árin áður en ég fór af landi burt, var svo Ijós og lifandi, að ég hlaut að sannfærast um gildi hennar. Þá tók Finna til að lýsa landslagi vestur í Ameríku og tókst það svo vel, að ég hlustaði hugfanginn á orð hennar. Hún lýsti sléttum, skógum og vötnum, járnbrautum og járnbrautarlestum, en þó kvartaði hún um, að sér veitt- ist erfitt að lýsa landinu, og sumu, er hún sæi, gæti hún ekki lýst, því hún vissi ekki, hvað það væri — þekkti eng- in nöfn á hlutunum. Næst tók hún til að lýsa manni, er hún taldi víst að ég kannaðist við — hann héti Ásgeir og hefði verið á fljóta- bátnum. — Ég gat ekki munað eftir neinum Ásgeiri, er verið hefði á nokkrum fijótabáti. Finna vildi sanna mér, að hún færi með rétt mál, og sagði: „Hann hefir kæk“. Ég spurði, hver hann hefði verið, en hún vildi hliðra sér hjá að nefna hann, en er ég gekk á hana, sagði hún, að honum hefði hætt til að spýta nokkuð nærri mönnum. — Hann hefði tuggið tóbak. Ég mundi þá eftir manni, er hafði þennan kæk, og hét Ásgeir, en aldrei hafði ég heyrt þess getið, að hann hefði verið á fljótabáti; lét Finna þá útrætt um Ásgeir. — Nokkru síðar rifjuðust upp fornar minningar fyrir mér, er ég verð að telja, að renni sterkum stoðum undir lýsingu Finnu. Hún sagði, að margt manna væri samankomið hinum meg- in, sem vildi láta mig vita af sér, því þeir hefðu allir þekkt mig, en engin sérstök skilaboð hefðu þeir að flytja. — Skyndilega þagnaði Finna, eins og athygli hennar hefði beinzt að einhverju sérstöku, en tekur svo til máls, með þeim rómblæ, er lýsti nokkurri furðu: „Það er kominn svo snarborulegur lcarl. Hann er skrítinn. Hann er síkveð-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.