Jazzblaðið - 01.04.1950, Blaðsíða 18
Jazz-klúbbur íslands hefur haldið
marga fræðslufundi í vetur fyrir með-
limi sína. Þar hafa komið fram nokkr-
ar hljómsveitir, sem aðeins hafa verið
settar saman í því augnamiði að leika
þar. Erindi hafa og nokkur verið flutt
og ekki hvað þýðingarminnst; þá hafa
á hverjum fundi verið leiknar og skýrð-
ar út hinar beztu jazzplötur, er völ hef-
ur verið á.
Nafn klúbbsins, Jazz-klúbbur Islands
(en ekki Reykjavíkur), var valið með
það fyrir augum að klúbburinn yrði á
komandi tímum höfuðmiðstöð jazz-
klúbba um allt land. Mundi klúbburinn
m. a. gangast fyrir því, að eitthvað af
þeim kröftum, er koma fram á fund-
um hér í Reykjavík, komi einnig fram
hjá klúbbum úti á landi.
Er því mikið atriði, að klúbbar verði
sem fyrst stofnaðir um land allt. Nú
fyrir nokkru var haldinn stofnfundur
klúbbs á ísafirði og voru stofnfélagar
rúmlega tuttugu. Nánar verður sagt frá
klúbbi þessum í næsta blaði. Innan
skamms verður klúbbur stofnaður í
Vestmannaeyjum, og má gera ráð fyrir
að fulltrúi frá Jazzklúbbi íslands verði
þar viðstaddur.
Leiðin liggur opin fyrir jazzáhuga-
menn í öðrum kaupstöðum — Jazz-
klúbbur íslands mun aðstoða þá af
fremsta megni. Setjið ykkur í samband
við hann og aflið ykkur upplýsinga.
Hér á eftir eru birt lög Jazz-klúbbs
íslands. Stofnendur tilvonandi klúbba
geta tekið þau sér til fyrirmyndar, að
einhverju leiti.
*
Lög Jazz-klúbbs Islands
1. Nafn félagsins er „Jazz-klúbbur
íslands". SkammstafaÖ J. K. í. Heimili
þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. Tilgangur klúbbsins er að kynna
eðli og tilgang jazztónlistarinnar í
blöðum og útvarpi og svo öðrum vett-
vangi. Svo sem með plötu-sessionum,
jam-sessionum og fræðsluerindum.
3. Jazz-klúbbur íslands kýs 5 manna
stjórn til eins árs í senn. Formaður er
kosinn sérstaklega.
Stjórnin kemur sér saman um verka-
skiptingu innbyrðis.
Úr stjóm skulu ganga tveir menn
annað árið og þrír hitt.
Kjósa skal tvo varastjórnendur, og
taka þeir sæti í stjóminni í þeirri röð,
sem atkvæðatala þeirra segir til um.
Ennfremur skulu kosnir tveir endur-
skoðendur.
4. Aðalfundur skal haldinn í byrjun
október ár hvert.
Á aðalfundi skal taka þetta fyrir:
&) Ársskýrsla stjómarinnar með yfir-
18 Sa.zLUé