Árdís - 01.01.1933, Page 32

Árdís - 01.01.1933, Page 32
30 væri. En sumt af því sem fyrir augun bar var þetta: morð, tilraun að sjálfsmorði, áflog, hórdómur, tilraun til að ræna (kidnap) ung- lingsstúlku, misþyrming á ungbarni, og andlit svo afskræmd af heift og ástríðum, að viðurstygð var á að horfa. Áhorfendur dærndu misjafnlega um mynd þessa. Nokkrum þótti hún ljót. Aðrir kváðu hana áhrifamikla, og ekki ljótari en hreyfimyndir gerðust. Ekki skal eg dæma um hversu miklu ljótari eða ekki ljótari þessi mynd var, en þær, sem stöðugt er haldið uppi fyrir augum almennings. En um áhrif slíkra mynda gætu máske dómararnir í barna og ung- linga réttinum gefið nákvæmastar upplýsingar. Og fyrir mitt leyti heitstrengi eg, að spyrna við þeim, og áhrifum þeirra, eftir þvi sem eg hef bezt vit og krafta til, hvort sem svo nokkur sýnilegur árangur verður að, eða ekki. Og eg heiti á yður, félagssystur mín- ar, að ihuga þetta vel og samvizkusamlega, en leggja ekki svona lagaðri skemtun lið í blindni eða hugsunarleysi. Og því síður að standa hjá, með opin augu, en aðgerðalausar, meðan slíkur óþverri sljófgar sóma—og velsæmis tilfinningar unglinga vorra og máske blindar þá svo að þeir sjá ekki að hið ljóta sé nokkuð varhuga- vert. Nú er það ekki svo að eg hafi á móti hreyfimyndum undir öllum kringumstæðum. Sem sagt var á þessari áminstu samkomu sýnd önnur hreifimynd, sem hafði verulegt mentalegt gildi, og var þar að auki skemtileg og falleg. úr því nú slíkar myndir eru til, virðist ekki ókleift að velja þær góðu, en hafna þeim ljótu. Satt er það, orð liggur á því að þeir, sem myndir sýna, hafi ekki vel frjálsar hendur með valið, heldur verði þeir að taka myndirnar i flokkum, sem þeir er myndirnar eiga skamta sjálfir. Ekki er mér kunnugt hvert þetta er sannleikur eða ekki. En hitt er satt, að ef almenningsálitið setli sig á móti siðspillandi myndum og almenn- ingur hafnaði þeim ineð því að sneiða hjá þeim í stað þess að sækja þær hvað bezt, þá og þá aðeins, myndu aðrar betri verða á boðstólum. En hver á að skapa almenningsálitið? Það gjörir þú tilheyrandi minn, og það gjöri ég, hver í sínu umhverfi. Og hjálpi Guð til að vér berum lán til, að hver og einn okkar hafi aðeins holl áhrif í þessum efnum. Það er ekki af sérstökum illvilja til hreyfimynda að ég hefi tekið þær til dæmis. Það hefði alveg eins vel mátt nefna stjórnlaust ferðaflakk, danssamkomúr, eða hverja aðra skemtun sem er gálaus og gáskafull. Og í öllum tilfellunum er það fremur misbrúkunin en tegund skemtunarinnar sem er varhugaverð. En ef tilraun er gjörð að ráða bót á því sem að er, má ekki gleyma því, að ekki þarf siður að beita nærgætni og lipurð, en einbeitni. Ekki er heldur víst að nóg sé að ráðast á einhverja siðspillandi tegund skemtana, og vísa henni á bug, án þess þó að gefa aðra betri í staðinn, því einnig

x

Árdís

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árdís
https://timarit.is/publication/755

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.