Morgunblaðið - 27.02.2009, Síða 2

Morgunblaðið - 27.02.2009, Síða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is FLUGSTOÐIR kynntu í gær sparn- aðaraðgerðir, sem munu hafa í för með sér skerta þjónustu á flugvöll- um, aðallega á landsbyggðinni. Stefnt er að því að aðgerðirnar skili um 60 milljóna króna sparnaði í ár. Sem dæmi má nefna, að frá og með 1. apríl verður þjónustu á Vest- mannaeyjaflugvelli hætt klukkan 19.30 á kvöldin og henni verður hætt klukkan 20.30 á tímabilinu 11. júní til 10. ágúst. Full þjónusta verður yfir þjóðhátíðarhelgina. Þjónustu á Sauðárkróksflugvelli lýkur klukkan 20.30 og klukkan 19.30 á Hornafjarðarflugvelli. Á öðr- um flugvöllum, svo sem í Stykkis- hólmi og á Húsavík, verður rekstri hætt á margvíslegum tækjabúnaði, svo sem radíóvitum og aðflugshalla- ljósum. Minnst skerðing þjónustu verður á þeim flugvöllum þar sem flestir farþegar fara um, þ.e. í Reykjavík, á Akureyri og Ísafirði. Aðhald og sparnaður Samkvæmt þjónustusamningi milli Flugstoða ohf. og samgöngu- ráðuneytisins fyrir árið 2009, sem kveður á um hvaða þjónusta skuli veitt á flugvöllum landsins og hvað fyrir hana er greitt, er gert ráð fyrir miklu aðhaldi og sparnaði í rekstri. Auk þess er gert ráð fyrir lækkun á þjónustustigi ýmissa þátta í flug- vallakerfi landsins til að ná settu marki um lækkun kostnaðar. „Ástæðan er sú að framlag ríkisins til framkvæmda og rekstrar flug- valla landsins og flugleiðsöguþjón- ustu sem þeim tengist hefur verið skorið mikið niður. Þess hefur þó verið gætt að skerðing á þjónustu verði í lágmarki og áhersla lögð á kjarnastarfsemina, þ.e. áætlunarflug og sjúkra- og neyðarflug,“ segir í frétt frá Flugstoðum. sisi@mbl.is Þjónusta skert á flugvöllum Mesta skerðingin á landsbyggðinni Morgunblaðið/RAX STEINGRÍMUR J. Sigfússon, fjármálaráðherra, átti í gær fund með starfsmönnum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) sem hingað eru komnir. Segir Steingrímur að fundurinn hafi gengið vel. Þar hafi aðallega verið rætt um stöðu efnahagsmála „Það liggur ekkert fyrir um hvenær mögulegt verð- ur að lækka vexti. Það sem skiptir mestu máli er að fá fram allar upplýsingar um stöðu mála, og draga upp rétta mynd af stöðunni,“ sagði Steingrímur í samtali við mbl.is. Ekki stendur til að endurskoða eða breyta efnahagsáætlun stjórnvalda og IMF. Til skamms tíma er helsta markmið áætlunarinnar að ná stöðugleika á gjaldeyrismarkaði og koma stoðum undir nýju bank- ana. Stefnt er að því að ljúka verðmati á eignum og skuldum gömlu og nýju bankanna fyrir 15. apríl. Eftir það verður hægt að leggja bönkunum til eigið fé, sem reiknað er með að verði 385 milljarðar. Fulltrúar IMF verða hér á landi til 1. mars. Morgunblaðið/Kristinn Ræddu um stöðu efnahagsmála HEILBRIGÐ- ISSTOFNUN Suðurlands (HSu) hefur sagt upp sjúkraflutn- ingamönnum í hlutastarfi. Allir sem hafa sjúkra- flutninga að að- alstarfi á starfs- svæði stofnunarinnar, sem nær frá Selvogi að Skeið- arársandi, halda áfram störfum. Sjúkraflutningar í Árnes- og Rangárvallasýslu hafa verið sam- einaðir og verða hér eftir tveir sjúkrabílar á Selfossi til taks utan dagvinnutíma, en áður var þriðji bíllinn einnig alltaf til taks á Hvols- velli. Sjúkrabílar á Hvolsvelli munu áfram sinna sjúkraflutningum á daginn, þegar mest er að gera, en ekki þess utan. Auk þess eru einnig sjúkrabílar í Vík og á Kirkjubæj- arklaustri. Óskar Reykdalsson, lækninga- forstjóri HSu, sagði að nánari út- færsla á breytingu sjúkraflutninga væri ekki tilbúin. Eftir væri að ákveða nánar um staðsetningu sjúkrabíla og það yrði gert í sam- ráði við starfsmenn. Þó taldi Óskar líklegt að þjónusta sjúkrabíla utan dagvinnutíma mundi ekki breytast í vesturhluta Rangárvallasýslu frá því sem var en að biðtíminn kynni að verða eitthvað lengri í austur- hluta sýslunnar. Óskar sagði að HSu hefði verið gert að skera rekstrarkostnað nið- ur um 200 milljónir króna. Hann sagði að spara mætti töluvert fé með því að segja upp sjúkraflutn- ingamönnum í hlutastarfi. „Okkur er ljóst að í mörgum sparnaðaraðgerðum felst að ein- hverju leyti skert þjónusta,“ sagði Óskar. gudni@mbl.is Færri sjúkra- bílar utan dagvinnutíma Óskar Reykdalsson FAXI RE hafði ekki fundið loðnu í gærkvöldi, að sögn Þorsteins Sig- urðssonar, sviðsstjóra nytja- stofnasviðs Hafrannsóknastofn- unarinnar. Faxi var búinn að leita við Hornbankann og eins á Strandagrunni. Hann var á vest- urleið og ætlaði suður með landinu djúpt úti af Vestfjörðum. Engin loðna fannst þar sem rækjubátur tilkynnti um loðnu í fyrradag. Hafrannsóknaskipið Bjarni Sæ- mundsson RE fer væntanlega út í kvöld og mun leita grynnra með vestanverðu landinu. Loðnuskipið Ingunn kemur þar á milli. Loðnutorfa sem veitt var úr á dögunum er nú gengin inn í miðjan Faxaflóa og er byrjuð að hrygna að einhverju leyti. gudni@mbl.is Fann ekki loðnu í gær HINN 1. desember síðastliðinn voru 23 starfsmenn Nýja Glitnis, sem nú heitir Íslandsbanki, á bifreiðum í eigu bankans eða á rekstrarleigu á kostnað bankans. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknarflokks- ins, um bifreiðahlunnindi starfsmanna hjá ríkisstofnun- um og ríkisfyrirtækjum. Í bréfi Nýja Glitnis er tekið fram að fyrsta bankastjórn hans hafi tekið ákvarðanir um hver fengi slík hlunnindi. Bifreið sé hluti af ráðningarkjörum bankastjóra en einnig sé um að ræða starfsmenn sem höfðu bifreiðahlunnindi hjá Glitni banka hf. Ákveðið var að þeir héldu hlunnindum að hámarki í sex mánuði meðan unnið væri að því að skila bifreiðum eða selja. Enginn fyrrverandi starfsmaður Kaupþings hafði til afnota bifreið 1. desember 2008. Þetta kemur fram í bréfi Nýja Kaupþings banka hf. Þar kemur jafnframt fram að allir núverandi starfsmenn sem höfðu afnot af bifreið 1. desember síðastliðinn samkvæmt ráðn- ingarsamningi við gamla Kaupþing og voru endurráðnir til Nýja Kaupþings áttu að skila bifreiðum samkvæmt nýjum ráðningarsamningum fyrir 1. febrúar síðastliðinn. Samkvæmt bréfi frá Nýja Landsbankanum, NBI hf., höfðu í lok desember síðastliðins átta starfsmenn bank- ans bifreið til umráða sem hluta af ráðningarkjörum sín- um. Engir fyrrverandi starfsmenn voru á bifreið í eigu NBI hf. í desember síðastliðnum. ingibjorg@mbl.is Halda enn bílahlunnindum  Yfir 23 starfsmenn Nýja Glitnis á bifreiðum á vegum bankans  Þeir sem voru endurráðnir til Nýja Kaupþings áttu að skila bílum fyrir 1. febrúar síðastliðinn Í HNOTSKURN » Eygló Harðardóttir þing-maður spurði hversu margir bankastarfsmenn hefðu verið á bifreiðum í eigu nýju og gömlu ríkisbankanna. »Einnig hversu margirhefðu verið á slíkum bíl- um 1. desember. Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is JÓHANNA Sigurðardóttir forsætis- ráðherra tilkynnir væntanlega í dag um nýjan bankastjóra og aðstoð- arbankastjóra Seðlabanka Íslands til bráðabirgða. Þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir tókst ekki að fá staðfest í gær hverjir munu taka við stjórn bankans. Forseti Íslands staðfesti seint í gær ný lög um Seðlabankann. Þau voru birt í vefútgáfu Stjórnartíðinda í gærkvöldi og tóku gildi um miðnætti. Með gildistöku þeirra var banka- stjórn Seðlabanka Íslands lögð niður og þar með embætti þriggja banka- stjóra bankans. Eftir miklar umræður og deilur var frumvarpið um Seðlabanka Ís- lands samþykkt sem lög frá Alþingi síðdegis í gær með 33 atkvæðum gegn 18 atkvæðum þingmanna Sjálf- stæðisflokksins. Einnig var sam- þykkt breytingartillaga meirihluta viðskiptanefndar um að peninga- stefnunefnd bankans skuli þegar til- efni er til að gefa opinberlega út við- varanir, ef hún metur það svo að alvarleg hættumerki séu til staðar sem ógna fjármálakerfinu. Felld var breytingartillaga fulltrúa Sjálfstæð- isflokksins um að forsætisráðherra skuli leita staðfestingar Alþingis á skipan seðlabankastjóra og aðstoð- arbankastjóra þar til embættin hafa verið auglýst. Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG og formaður viðskiptanefndar, sagði tillögu sjálfstæðismanna mjög ómálefnalega. Búið hefði verið til mjög vandað regluverk um hvernig skipa ætti í stöðurnar. Lokaumræðan um frumvarpið stóð yfir í allan gærdag. Höskuldur Þór- hallsson, þingmaður Framsókn- arflokksins, var mjög gagnrýninn í ræðu sinni og sagði þjóðina hafa mátt þola illdeilur tveggja fylkinga, sem hafi barist um völdin í landinu. Þing- menn Sjálfstæðisflokksins gagn- rýndu frumvarpið harðlega, ekki síst breytingartillögu meirihluta við- skiptanefndar um hlutverk peninga- stefnunefndar. Guðjón A. Krist- jánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagðist styðja málið heils- hugar. Þökkuðu fyrir samstarfið Davíð Oddsson og Eiríkur Guðna- son seðlabankastjórar kölluðu starfs- fólk Seðlabankans til kveðjufundar í gærmorgun. Fjölmennt var á fund- inum sem stóð stutta stund. Davíð sagði að frumvarp til laga um Seðla- bankann væri til þriðju umræðu og því væri komið að leiðarlokum. Bankastjórarnir fráfarandi þökkuðu fyrir samstarfið og starfsfólkið klapp- aði fyrir þeim. Eiríkur lætur nú af störfum eftir 40 ár í bankanum. Davíð var skipaður haustið 2005 og hefur því starfað í bankanum í rúm þrjú ár. Nýr maður í bankann í dag  Ný lög um Seðlabanka Íslands tóku gildi um miðnætti  Frumvarpið var sam- þykkt síðdegis í gær eftir miklar umræður og deilur með 33 atkvæðum gegn 18 Morgunblaðið/Golli  Vandað eða vanhugsað? | 12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.