Morgunblaðið - 27.02.2009, Side 14

Morgunblaðið - 27.02.2009, Side 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009 Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is SVO gæti farið eftir alþingiskosn- ingarnar í vor að sjö til átta borg- arfulltrúar af 15 verði varamenn. Nú þegar sitja fimm varamenn í borgarstjórn fyrir aðalfulltrúa sem ýmist hafa beðist lausnar frá störfum eða eru í leyfi. Tveir borgarfulltrúar til viðbótar hafa tilkynnt framboð í prófkjörum og búast báðir við því að víkja úr borgarstjórn nái þeir kjöri á þing. Vangaveltur eru um framboð þriðja borgarfulltrúans. Við alþingiskosningarnar vorið 2007 hlutu þingsæti borgarfull- trúarnir Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir, Samfylkingu, og Árni Þór Sigurðsson, Vinstri grænum. Bæði báðust þau lausnar sem borgarfulltrúar í kjölfarið. Stefán Jón Hafstein, Samfylkingu, hafði áður beðið um leyfi fram í janúar á þessu ári vegna starfa sinna er- lendis og nýverið samþykkti borg- arstjórn framlengingu á því leyfi „um ótiltekinn tíma“. Björn Ingi Hrafnsson, sem sat einn fyrir Framsókn í borgarstjórn, bað um lausn frá störfum í janúar í fyrra og loks óskaði Gísli Marteinn Baldursson, Sjálfstæðisflokki, eftir leyfi í janúar síðastliðnum til júní í ár. Heilu flokkarnir skipaðir varamönnum Nú hafa bæði Svandís Svavars- dóttir, VG, og Jórunn Frímanns- dóttir, Sjálfstæðisflokki, boðið sig fram í prófkjöri flokka sinna fyrir alþingiskosningarnar í vor. Hefur Svandís lýst því yfir að hún hygg- ist hætta í borgarstjórn komist hún á þing, enda sé hvorttveggja fullt starf, að vera alþingismaður og borgarfulltrúi. Í samtali við Morgunblaðið segir Jórunn að ekki fari saman til langs tíma að sitja bæði á Alþingi og í borg- arstjórn. „Ég sé mig fara úr borg- arstjórn innan skamms tíma ef ég næ kjöri. En það er líka vont að hlaupa frá verkum sínum svo ég mun tryggja að sá sem tekur við af mér sé kominn vel inn í störfin áður en ég hætti.“ Ekki hafa aðrir borgarfulltrúar tilkynnt framboð fyrir kosning- arnar í vor en vangaveltur hafa verið um það hvort Dagur B. Egg- ertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borginni, muni gefa kost á sér í prófkjöri. Í samtali við Morg- unblaðið sagðist hann ekki tilbú- inn að gefa út yfirlýsingar um það að svo stöddu. Hvort aðrir borgarfulltrúar gefa kost á sér er enn óljóst. Í öllu falli er útlit fyrir að einhver endurnýj- un geti orðið í borgarstjórn að loknum alþingiskosningum. Nái t.a.m. Svandís kosningu verður staðan sú að tveggja manna borg- arstjórnarflokkur Vinstri grænna verður eingöngu skipaður vara- mönnum, líkt og nú er um Fram- sóknarflokk, sem hefur eitt sæti. Helmingur borgarstjórnarflokks Samfylkingar er þegar skipaður varamönnum og veltur það þá væntanlega á ákvörðun Dags um prófkjörsþátttöku og í framhald- inu á árangri hvort varamönnum þar muni fjölga. Nái Jórunn kjöri má búast við því að tvö sæti Sjálf- stæðisflokks af sjö verði fljótlega skipuð varamönnum, þ.e. hætti hún áður en Gísli Marteinn snýr aftur til starfa í júní, eins og áætl- anir eru um. Ekkert ólýðræðislegt Grétar Þór Eyþórsson, stjórn- málafræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri, segir óvenjulega stöðu í uppsiglingu í borgarmálunum sem sennilega sé einsdæmi. „Nái þetta fólk allt ár- angri í prófkjörunum verður stór hluti borgarstjórnar öðruvísi en hann var í upphafi kjörtímabils, að ég tali nú ekki um öll meiri- hlutaskiptin sem þar hafa orðið. Svona mikil endurnýjun er auðvit- að ekki æskileg og þetta á sjálf- sagt seint eftir að gerast aftur að öllu eðlilegu. En í prinsippinu er þetta ekkert ólýðræðislegt.“ Hann segir varaborgarfulltrúa hafa fullt umboð til starfa í borg- arstjórn, enda kosna af almenn- ingi. „Fólk kýs einnig varafulltrúa sem eru til taks ef eitthvað kemur upp á. Hins vegar má velta upp þeim fleti hvort þetta sé það sem kjósendur sáu fyrir sér, sér- staklega þar sem persónukosning er jafnvel meiri á sveitarstjórn- arstiginu en til Alþingis – fólk er þar frekar að kjósa einstaklinga.“ En hvað þá um siðferðislega skyldu frambjóðenda í efstu sæt- um að sitja út kjörtímabilið, nái þeir kjöri? „Þetta er alltaf umdeil- anlegt,“ segir Grétar. „Auðvitað er enginn skuldbundinn því það get- ur margt komið til, fjölskyldumál, veikindi og annað. Það er kannski frekar siðferðislegt álitamál ef fólk býður sig fram sem borgar- eða bæjarstjórnarefni og er svo farið kannski ári síðar, eins og við þekkjum með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í Reykjavík og Krist- ján Þór Júlíusson á Akureyri. Þar er um að ræða að fólk leggur upp með að vera í forystu sem æðsti maður stjórnsýslu líka.“ Breytt ásýnd borgarstjórnar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Borgarstjórn Hringborðið í ráðhússsalnum er þegar að stórum hluta skipað öðru fólki en fyrir þremur árum. Stefán Jón Hafstein Steinunn Valdís Óskarsdóttir Árni Þór Sigurðsson Gísli Marteinn Baldursson Svandís Svavarsdóttir Björn Ingi Hrafnsson Jórunn Frímannsdóttir Dagur B. Eggertsson  Allt að helmingur borgarstjórnarsæta verður skipaður varamönnum nái borgarfulltrúar árangri í prófkjörum framundan  Svo mikil endurnýjun sennilega einsdæmi að mati stjórnmálafræðings Endurnýjun í sveitarstjórnum á miðju kjörtímabili í tengslum við alþingiskosningar vekur spurningar um hvort eðlilegra sé að hafa styttra á milli al- þingis- og sveitarstjórnarkosn- inga en nú er. Það hefur þótt eðlilegt og sjálfsagt að sveit- arstjórn- armenn hugi að land- spólitíkinni en nái þeir kjöri til þings þýðir það yfirleitt að þeir taki þar sæti áður en kjörtímabil þeirra sem sveit- arstjórnarmanna rennur út. Grétar Þór segir margar skoðanir á því hvort æskilegra sé að hafa styttra á milli kosn- inganna. „Ég er ekki viss um að Íslendingar myndu taka því fagnandi ef kosið yrði í sömu andránni eins og t.d. er gert í Svíþjóð þar sem eiginlega er kosið í þrennum kosningum í einu. Þá er t.d. hætt við að kosningabaráttan á sveit- arstjórnarstiginu verði mjög lítil og víkjandi, ekki síst á landsbyggðinni þar sem staða fjölmiðla er nokkuð veik.“ Ekki lengur vísbending Hann bendir á að síðustu þrjá- tíu ár, eða allt frá árinu 1979 þegar síðast var boðað til al- þingiskosninga á miðju kjör- tímabili, hafi alþingiskosning- arnar komið ári á eftir sveitarstjórnarkosningum. „Við stjórnmálafræðingarnir höfum gjarnan getað lesið í úrslit sveitarstjórnarkosninganna, þ.e. hvaða hreyfingar verði í þingkosningunum árið á eftir. Nú verður það ekki hægt leng- ur.“ Grétar hlær við þegar hann er spurður hvort þetta verði þá ekki bara öfugt – að lands- málin gefi vísbendingu um þróun á sveitarstjórnarstig- inu? „Við lifum á svoddan um- brotatímum í landsmálunum að maður þorir ekki að segja neitt um það.“ Styttra á milli kosninganna? Grétar Þór Eyþórsson VERKTAKAGREIÐSLUR utan- ríkisráðuneytisins námu samanlagt 29.415.432 krónum frá lokum maí 2007 til loka janúar 2009. Alls seldu 60 einstaklingar og lögaðilar utan- ríkisráðuneytinu ráðgjöf og sér- fræðiaðstoð á þessu tímabili. Ráðgjöf á sviðum lögfræði og hönnunar er áberandi, einnig hafa margir einstaklingar þegið fremur lágar greiðslur fyrir þýðingar, ráð- stefnustjórn, leiðsögn og innlestur á símsvara svo ýmislegt sé tínt til úr lista sem ráðuneytið sendi fjöl- miðlum í gær. Langhæsta greiðslan er til lög- fræðiþjónustunnar Árnason Faktor ehf., 5.350.729 kr., fyrir vöktun á vörumerkinu „Iceland“. Félagið rek- ur einkaleyfastofu og veitir hún al- hliða þjónustu og ráðgjöf um vernd eignarréttinda á því sviði. Að sögn utanríkisráðuneytisins hefur það lát- ið vakta vörumerkjaskráningar á orðinu ,,Iceland“ um allan heim frá því í nóvember 2004. „Markmið vöktunarinnar er að koma í veg fyrir að einkaaðilar geti komist í þá að- stöðu að hafna skráningum annarra vörumerkja sem innihalda einhvers konar tilvísun til Íslands, en dæmi eru um að slíkt hafi valdið íslenskum fyrirtækjum í útrás vandkvæðum þegar þau hafa leitast við að fá vöru- merki sín vernduð erlendis. Vökt- unin hefur leitt til þess að íslensk stjórnvöld hafa andmælt um 35 skráningum í fjölmörgum ríkjum með góðum árangri,“ segir utanrík- isráðuneytið. PricewaterhouseCoopers fékk tæpar þrjár milljónir fyrir úttekt á flugverndarmálum á Keflavík- urflugvelli. Ríkisstjórnin samþykkti að láta gera úttektina sem var gerð í júní 2007. Þá heyrðu málefni flug- vallarins undir utanríkisráðuneytið. Fyrirtækið Alþjóðaver ráðgjöf ehf. fékk greiddar 2.450.000 vegna ráðgjafar og verkefnaþróunar vegna framboðs til öryggisráðs SÞ. Lilja Ólafsdóttir ráðgjafi fékk tæplega 1,6 milljónir fyrir ráðgjöf vegna frí- verslunarsamninga. Fyrirtækið Ámundi fékk svipaða upphæð vegna hönnunar og prentunar vegna há- skólafundaraðar o.fl. Þá fékk Capa- cent ehf. 1,4 milljónir vegna skoð- anakannana og starfsmanna- ráðninga. gudni@mbl.is Tæpar 30 milljónir Utanríkisráðuneytið hefur greitt 60 einstaklingum og lög- aðilum fyrir ráðgjöf og sérfræðiaðstoð á kjörtímabilinu SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ hefur keypt ráðgjafarþjónustu frá 24. maí 2007 til 25. febrúar sl., fyrir 9.264.307 krónur. Megnið var greitt í fyrra eða 7,8 milljónir. Eng- in ráðgjafarþjónusta hefur verið keypt frá síðustu áramótum. Tveir ráðgjafar vega þyngst í yf- irliti samgönguráðuneytisins um verktakagreiðslur, Ráðgjafarfyr- irtækið Capacent ehf. þáði tæpar 3,2 milljónir fyrir þrjú verkefni. Fyrirtækin Muni ehf. og White & Case LLP fengu í fyrra tæplega 2,6 milljónir greiddar fyrir ráðgjöf varðandi kæru til Eftirlitsstofn- unar EFTA vegna lagningar sæ- strengs. 9,3 milljóna ráðgjöf í samgönguráðuneyti Vesturröst | Laugaveg 178 S: 551 6770 | www.vesturrost.is kr. 17.900,- Harris tvífætur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.