Morgunblaðið - 27.02.2009, Page 19

Morgunblaðið - 27.02.2009, Page 19
Morgunblaðið/Árni Sæberg Þ egar tískuhúsin í New York, Lond- on, París og Mílanó hafa lokið við sínar sýningar á vorin og haustin, er fyrst hægt að fara að spá í hvað muni komast í tísku. Þetta er yf- irleitt gert með því að finna samnefnara í sýn- ingum tískuhönnuðanna, t.d. í litum og sniðum. Þetta á ekki bara við um fatnaðinn heldur líka um förðunina. Þegar nýir augn- skuggar, varalitir og kinnalitir koma í búðirnar á vorin og haustin má oftast sjá að þeir endurspegla litina sem voru á andlitum sýningarstúlkna tískupallanna. Einn slíkur samnefnari er nú þegar kominn í ljós fyrir sumarið og er það kinnaliturinn sem verður ómissandi eigi maður að tolla í tískunni í sumar.. Hann á að vera ferskju-bleiktónaður, lit- ur sem fer öllum vel. Þessi litur lætur konur líta út eins og þær hafi fengið aðeins sól í kinnarnar og að þær séu sérlega frísklegar. Passa þarf auðvitað upp á að nota ekki of mikið af honum og sleppa því að nota sólarpúðrið. sibba@mbl.is Förðun Björg Alfreðsdóttir Fyrirsæta Helga Ómarsdóttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009 Vor og sumar 2009 Bjartir litir Litirnir fyrir sum- arið eru bjartir og skemmti- legir. Kinnalitur: What a dame. Augnskuggar: Wisteria. Varalit- ir: Coral Polyp. Allt litir úr Dame Ednu línunni frá MAC Fer öllum vel Litríkt sumar Á efri myndinni má sjá ýktari útgáfu af sterkum litum sumarsins frá John Galliano fyrir Dior, vor og sumar 2009. Á neðri myndinni er fyrirsæta Stellu McCartney með mildari og nátt- úrlegri förðun en þó með afgerandi ferskjulitaðan kinnalit. Reuters

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.