Morgunblaðið - 27.02.2009, Page 38

Morgunblaðið - 27.02.2009, Page 38
38 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009 Sudoku Frumstig 4 9 5 6 2 8 3 5 6 1 1 2 7 5 8 9 4 1 6 1 6 7 9 5 3 1 4 6 2 8 8 1 8 2 3 4 6 1 5 9 6 4 3 2 1 7 5 8 2 3 1 7 6 8 3 8 4 6 2 3 1 2 4 6 1 8 7 1 3 9 7 6 5 8 7 5 4 2 1 8 9 2 5 9 1 4 8 1 7 4 2 8 7 1 4 5 2 3 6 9 3 6 9 7 8 1 2 5 4 4 5 2 9 6 3 1 7 8 7 2 3 6 4 8 5 9 1 1 4 5 2 7 9 8 3 6 6 9 8 3 1 5 7 4 2 2 1 4 5 3 6 9 8 7 9 3 7 8 2 4 6 1 5 5 8 6 1 9 7 4 2 3 6 9 7 8 1 3 5 4 2 5 4 8 9 6 2 7 3 1 3 1 2 7 4 5 8 9 6 8 2 9 6 5 4 1 7 3 7 3 4 2 9 1 6 5 8 1 5 6 3 7 8 4 2 9 4 8 5 1 3 9 2 6 7 2 7 3 4 8 6 9 1 5 9 6 1 5 2 7 3 8 4 5 3 7 1 2 9 4 6 8 9 6 2 3 4 8 5 1 7 8 1 4 7 6 5 9 3 2 3 4 5 2 7 1 6 8 9 2 8 1 5 9 6 7 4 3 7 9 6 4 8 3 2 5 1 1 7 8 6 5 2 3 9 4 4 5 9 8 3 7 1 2 6 6 2 3 9 1 4 8 7 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. Í dag er föstudagur 27. febrúar, 58. dag- ur ársins 2009 Orð dagsins: Þú skalt ekki framar hafa sólina til að lýsa þér um daga, og tunglið skal ekki skína til að gefa þér birtu, heldur skal Drottinn vera þér ei- líft ljós og Guð þinn vera þér geislandi röðull. (Jes. 60, 19.) Víkverji hefur uppgötvaðveitingastaðinn Veislu-setrið, sem er til húsa viðBorgartún; á jarðhæð Rúgbrauðsgerðarinnar. Þarna er boðið upp á ódýran, heimilislegan mat; yfirleitt er um þrjá rétti að velja og engin nánasarsjónarmið uppi við skömmtunina. Viðmót gest- gjafanna er glaðlegt og gott and- rúmsloft á staðnum sem ennþá er þó dálítið hrár, þótt Víkverja finnist það út af fyrir sig í góðu lagi og bara í stíl við verð og gæði. Það eina sem Vík- verji kvartar yfir er að ekki er hægt að fá te eftir matinn eins og kaffi. Vonandi fjárfesta þeir Veisluset- ursmenn í hitakatli sem fyrst svo Víkverji eigi þess kost að setja punktinn yfir i-ið með góðum te- bolla. x x x Víkverji getur ekki leynt kætisinni yfir því að brezka leik- konan Kate Winslet skyldi fá Ósk- arsverðlaun fyrir leik sinn í Les- aranum. Hún er í uppáhaldi hjá Víkverja, hefur glatt hann hvað eftir annað með leik sínum, en í Les- aranum sýnir hún óvenju sterkan leik í túlkun á sérstakri konu svo ekki sé meira sagt. Það var löngu tímabært að Winslet fengi Óskarinn og reglulega skemmtilegt að svo óumdeilanlega frábær frammistaða sem leikur hennar í hlutverki Hönnu Schmitz skyldi ekki hunzuð. Það var Víkverja svo sérstakt gleðiefni að Ralph Fiennes skyldi einnig leika í kvikmyndinni. Hann er líka í uppá- haldi hjá Víkverja, sem hefur átt þess kost að sjá hann á leiksviði í London, þar sem hann er, ef eitthvað er, enn magnaðri en á hvíta tjaldinu. x x x Víkverji hefur orðið sér úti umbensíndælulykla frá Atlantsolíu og ÓB – ódýrt bensín. Aðeins einu sinni hefur Víkverja tekizt að kaupa bensín hjá Atlantsolíu. Í önnur skipti segir að kortið sé útrunnið, sem það sannanlega ekki er. Engin vand- kvæði hafa verið að fá ÓB-bensín og er sá lykill þó tengdur sama kortinu og hinn. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 óduglega að skrifa, 8 guðsþjónustu, 9 dýrka, 10 stúlka, 11 bik, 13 sleifin, 15 landakorta- bók, 18 ómerk, 21 verk- færi, 22 þáttar, 23 fífl, 24 ósveigjanlega. Lóðrétt | 2 þykja vænt um, 3 þrönga, 4 skrá, 5 sterts, 6 sýking, 7 reynd, 12 sefa, 14 ótta, 15 duft, 16 hefja, 17 endurtekn- ingar, 18 viljuga, 19 iðju, 20 durg. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 pukur, 4 byrja, 7 nálin, 8 reynt, 9 góð, 11 skap, 13 einn, 14 ágóði, 15 skar, 17 róms, 22 ata, 22 rekur, 23 lalla, 24 peðra, 25 niðji. Lóðrétt: 1 pungs, 2 kelta, 3 röng, 4 borð, 5 reyfi, 6 aftan, 10 ómótt, 12 pár, 13 eir, 15 skráp, 16 aukið, 18 óglöð, 19 skaði, 20 arga, 21 alin. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. e3 Rbd7 6. Bd3 dxc4 7. Bxc4 b5 8. Bd3 Bd6 9. O-O O-O 10. Dc2 Bb7 11. a3 a6 12. Rg5 Bxh2+ 13. Kxh2 Rg4+ 14. Kg1 Dxg5 15. f3 Rgf6 16. e4 Dh4 17. Be3 e5 18. Re2 Rh5 19. Dd2 h6 20. Hfd1 Hae8 21. Bc2 He6 22. Bf2 De7 23. g4 Hg6 24. Kf1 Rhf6 25. Rg3 Rxg4 26. fxg4 Dh4 27. Rf5 Dxg4 28. Dc3 He8 29. Dg3 Dh5 30. Dh4 Df3 31. Hd3 Dg2+ 32. Ke2 exd4 33. Hg3 Hxg3 34. Dxg3 Staðan kom upp á ofurmótinu í Lin- ares á Spáni sem stendur yfir þessa dagana. Armeninn Levon Aronjan (2750) hafði svart gegn indverska heimsmeistaranum Viswanathan An- and (2791). 34… Hxe4+! 35. Kd2 Hg4 36. Dxg2 Hxg2 37. Ke2 c5 38. Hg1 Re5 39. Hxg2 Bxg2 40. Kd2 h5 svartur hef- ur nú léttunnið tafl og innbyrti hann vinninginn stuttu síðar. Svartur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Langliturinn. Norður ♠K106 ♥DG983 ♦K9 ♣DG9 Vestur Austur ♠DG54 ♠872 ♥62 ♥Á1074 ♦D10742 ♦Á83 ♣83 ♣654 Suður ♠Á93 ♥K5 ♦G65 ♣ÁK1072 Suður spilar 3G. Vestur kemur út með ♦4, fjórða hæsta, lítið úr borði og drepið með ás. Austur spilar síðan ♦8 um hæl og vest- ur lætur tvistinn. Ekki þarf frekari vitna við: tígullinn skiptist 5-3. Sem eru afleit tíðindi fyrir sagnhafa, því þá þýð- ir ekki að sækja níunda slaginn á hjarta – vörnin verður fyrri til að taka fimm. Hvað er þá til ráða? Oft er gott að taka á langlitinn sinn og kanna afköstin. Hver veit, ef til vill henda mótherjarnir vitlaust af sér eða lenda hreinlega í raunverulegum vanda. Vestur má augljóslega missa einn spaða og eitt hjarta, en síðasta laufið setur á hann óþægilega pressu. Skást er að henda hjarta. En þá kemur snilldin: sagnhafi sendir vestur inn á tígul. Vestur tekur þrjá slagi á litinn, en þarf síðan að spila spaða frá ♠DGx. Sem kostar sitt. Stjörnuspá (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það skiptir sköpum að þú sért skorinorður þannig að ekkert fari á milli mála hvað þú meinar. Gefðu þér tíma til að grandskoða málin. (20. apríl - 20. maí)  Naut Gerðu eitthvað til að bæta samband þitt við samstarfsfólk þitt í dag. Vinir skynja að þeir fái eitthvað heiðarlegt frá þér, og þess vegna verðurðu endalaust beðinn um svör. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Ekkert samband er fullkomið og sum þeirra sem þú ert í eru langt frá því að vera það. Velgengnin virðist hreinlega leita þig uppi. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þínar þarfir og annarra passa ekki jafn vel saman og þú varst að vonast til. Sýndu þolinmæði gagnvart mönnum og málefnum og sæktu það sem þú vilt með lipurð og festu. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Kláraðu það sem þú hefur frestað, þannig færðu svigrúm til þess að hleypa meiri spennu í líf þitt. Forðastu öll óþarfa útgjöld, þau skemma fyrir þér. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þrátt fyrir að þú reynir að vera raunsærri þessa dagana munu ótrúlegir hlutir gerast. Viðkomandi persóna virðist of góð til að vera sönn í þínum huga. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Ráðkænskan er annað nafn þitt í dag. Eins skipulögð/lagður og þú ert virðist þú ekki geta skipulagt eyðslu og útgjöld. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú gerir yfirleitt uppreisn gegn rökréttum lífsmáta með því að leggja í ævintýraferð. Best væri að ná stjórn á hlutunum. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það getur verið ósköp leið- inlegt þegar aðrir dragast aftur úr í sam- starfinu. Ef þú vilt færa þig um set skaltu gera það. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Láttu ekki fagurgala annarra villa þér sýn. Reyndu að borða minna af skyndibitamat og meira af ávöxtum og grænmeti. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Dagurinn í dag er ákjósanlegur fyrir félagslíf af einhverju tagi. Það sem þú lærir næsta sólarhringinn mun opna augu þín fyrir nýjum möguleikum. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það er ákaflega þýðingarmikið að þú sért sveigjanlegur og bregðist rétt við þeim nýjungum, sem þér eru kynntar. Sérstaklega á þetta við um fjármálin. Þetta gerðist… 27. febrúar 1953 Barnaskólahúsið í Hnífsdal fauk af grunni og gjör- eyðilagðist í stórviðri af suð- vestri. Í húsinu voru tveir kennarar og 36 börn og slös- uðust sum þeirra. 27. febrúar 2000 Á annað þúsund manns festust í margra kílómetra langri bílalest á Þrengslavegi í afar slæmu veðri. Björgunar- aðgerðir, þær mestu síðan í Eyjagosinu 1973, stóðu fram á næsta dag. Margir vegfarend- anna höfðu verið að skoða Hekluelda. 27. febrúar 2003 Áætlunarflug Iceland Express hófst, bæði til Kaupmanna- hafnar og London. Til ára- móta flugu 136.100 manns með flugfélaginu. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Reynir G. Karlsson fyrr- verandi æsku- lýðs- og íþrótta- fulltrúi ríkisins er sjötíu og fimm ára í dag, 27. febrúar. 75 ára Hörður Ó. Helgason, skóla- meistari Fjöl- brautaskóla Vesturlands, verður sextugur á morgun, laug- ardaginn 28. febrúar. Í tilefni af því býður hann til veislu á sal Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi frá kl. 14 til 17 á afmælisdaginn og vonast til að sjá sem flesta. 60 ára „ÉG ætla að halda örlítið kvennaboð,“ segir Ragna Fossberg förðunarstjóri Sjónvarpsins, sem í dag fagnar 60 ára afmæli í hópi góðra vina. Ragna er vön að gera sér einhvers konar dagamun á afmæl- inu sínu, þá sérstaklega á stórafmælum. Ofarlega í hennar huga er fimmtugsafmælið þegar hún hélt veislu fyrir fjölda kvenna og skemmti sér kon- unglega. Á gestalistanum eru einungis kven- mannsnöfn og eru þessar konur úr ýmsum klúbb- um sem Ragna er virkur meðlimur í. „Ég er í hesta-, skíða- og saumaklúbb og auk þessara hópa verða aðrir vinir,“ segir Ragna sem ætlar að halda dagskrá kvöldsins leyndri. Ragna lærði upphaflega hárgreiðslu, en hefur lengi unnið á förð- unardeild Sjónvarpsins. Ragna kemur þó víða við, því auk þess að vera förðunarstjóri Sjónvarpsins hefur hún hlotið mikla athygli fyrir að hanna ýmis gervi, bæði fyrir kvikmyndir og leikhús. Tvisvar sinn- um hefur hún hlotið Edduverðlaun fyrir förðun, fyrst 1999 fyrir Ung- frúna góðu og húsið og svo níu árum síðar, eða 2008, fyrir gervi sín í Spaugstofunni. Ragna Fossberg förðunarstjóri 60 ára Ætlar að halda kvennaboð Nýirborgarar Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamt upplýsingum á barn@mbl.is Reykjavík Ómar Leví fæddist 2. desember kl. 7.31. Hann vó 4.225 g og var 53 cm langur. For- eldrar hans eru Lilja Vil- borg Hafsteinsdóttir og Arnar Leví Aðalsteinsson. Stokkhólmur Hjálmar fæddist 27. nóvember kl. 13.14. Hann vó 3.660 g og var 52 cm langur. For- eldrar hans eru Dagný Benediktsdóttir og Gustaf Ullberg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.