Morgunblaðið - 27.02.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.02.2009, Blaðsíða 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009 ✝ Ingólfur Sigurðs-son fæddist í Reykjavík 8. desem- ber 1960. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 19. febr- úar síðastliðinn. Ing- ólfur var sonur hjónanna Sigurðar Ingólfssonar sendibíl- stjóra, f. 20. apríl 1938, d. 4. desember 2002, og Þórönnu Erlu Sigurjónsdóttur húsfreyju, f. 1. ágúst 1940. Bræður Ingólfs eru a) Sigurjón, f. 1964, maki Krist- ín Björk Gunnarsdóttir, b) Erlingur, f. 1966, unnusta Helena Ívarsdóttir, og c) Sigurður Sævar, f. 1975, maki Guðfinna Björg Björnsdóttir. Hinn 1. desember 1984 kvæntist a) Kristjana Sif, f. 1967, maki Steingrímur Sævarr Ólafsson og b) Arnar, f. 1972, maki Rakel Hall- dórsdóttir. Ingólfur ólst upp í Fossvogs- hverfinu í Reykjavík. Hann lærði bakstur í Álfheimabakaríi og út- skrifaðist sem bakarasveinn 1983 og síðar sem bakarameistari. Árið 1986 byggði hann, ásamt tengda- föður sínum, verslunarhús í Selja- hverfi og rak þar bakarí til ársins 1995. Hann var ráðinn fagstjóri Bakaradeildar Menntaskólans í Kópavogi 1. apríl 1996 og starfaði þar fram að andláti. Ingólfur út- skrifaðist með kennararéttindi frá KHÍ árið 2000 og lauk Dipl.Ed. námi í uppeldis- og mennt- unarfræðum frá framhaldsdeild KHÍ 2004. Hann var virkur í fé- lagsmálum og tók að sér ýmis nefndarstörf, m.a fyrir bakara, kennara og Karlakór Reykjavíkur. Útför Ingólfs fer fram frá Graf- arvogskirkju í dag og hefst athöfn- in kl. 13. Ingólfur Birnu Bjarnadóttur, fjár- málastjóra hjá Heimsferðum og Terra Nova, f. 31. desember 1962. For- eldrar hennar eru Bjarni Jósef Frið- finnsson ljósmyndari, f. 9. maí 1943, d. 12. júní 2002, og Gréta Gunnarsdóttir fulltrúi á Landspítala, f. 27. febrúar 1945. Börn Ingólfs og Birnu eru: 1) Laufey Sif, f. 1. janúar 1988, sambýlis- maður Carl Andreas Sveinsson, dóttir þeirra er Kamilla Sif , f. 19. desember 2007, 2) Bjarni Grétar, f. 8. febrúar 1990, unnusta Elísabet Ýrr Jónsdóttir. Systkini Birnu eru Þeir sem þekktu föður minn vita hversu mikill prýðismaður hann var. Pabbi var engum líkur og verð- ur erfitt að velja úr þeim minn- ingum sem poppa upp í höfuðið á mér þessa stundina. Pabbi, takk fyrir allar góðu stundirnar saman. Síðastliðinn fimmtudag kvaddir þú heiminn eftir erfiða baráttu við krabbamein. Við getum öll þakkað guði fyrir að hafa fengið að verja svona miklum tíma með þér þetta síðastliðna ár, og hvað við vorum heppin að geta kvatt þig vel á síðasta spottanum. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa búið heima megnið af þessum erfiða tíma, þar sem Kamilla Sif fékk að verja svo miklum tíma með afa sín- um, og þá tíma mun ég rifja upp fyrir hana á hverjum degi svo þú eigir ávallt eftir að verða í hjarta hennar. Já hún fær sko að vita hvað afi hennar unni henni mikið. Það var eins og ljós hefði kviknað í aug- um þínum þegar þú lékst við afa- barnið. Ég er svo þakklát að þú fékkst að kynnast afahlutverkinu. Minningarnar eru margar en það sem stendur mér næst eru allar bú- staðaferðirnar, utanlandsferðirnar og útilegurnar sem við fórum öll saman í, og þær ferðir sem við fór- um austur á Flugustaði saman, þótt ekki hafi þær verið nógu margar. Þú þuldir upp allar sögurnar úr sveitinni síðan þú varst lítill með stjörnur í augunum. Einnig þau ótal skipti sem ég fékk þig til að lesa söguna um Gýpu fyrir mig, eins og þér þótti sú saga orðin þreytandi, en alltaf tókstu þig til og byrjaðir að lesa. Seint mun ég gleyma utanlands- ferðinni sem við fórum í síðastliðið sumar ég, þú, mamma og Kamilla Sif, ásamt Sigga bróður þínum og fjölskyldu. Einnig síðastliðnum jól- um og áramótum, það sem við glöddumst yfir því hvað þú varst hress yfir hátíðirnar. Sá tími er al- veg ógleymanlegur. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig þótt við ættum oft erfitt með að ræða málin, enda höfum við bæði sterkar skoðanir. Ætli ég hafi það ekki frá þér. En takk fyrir allt, takk fyrir að ýta mér áfram þegar það slaknaði á áhuganum. Takk fyrir að standa við bakið á mér ef eitthvað var að, og að lokum takk fyrir að gera mömmu svona hamingjusama öll þessi ár, þið voruð engum lík. Ég mun sakna þín ávallt. Ég elska þig, pabbi. Þín dóttir, Laufey Sif. Elskulegur tengdasonur minn er látinn eftir rúmlega eins árs baráttu við illvígan sjúkdóm. Margar ljúfar minningar á ég um Ingólf, eða Ingó eins og við köll- uðum hann, allt frá því hann kom inn á heimili okkar tengdaforeldr- anna fyrir rúmum þrjátíu árum, þegar Birna kynnti hann sem vænt- anlegan kærasta sinn. Það þróaðist með okkur mjög góð vinátta sem við nutum bæði í leik og starfi og aldrei rofnaði. Ingólfur var mikill og góður fjöl- skyldufaðir og hvers manns hugljúfi sem sýnir sig best nú þegar vinir hans, samstarfsmenn og frændur minnast hans með hlýju og rækt- arsemi. Hann var alltaf boðinn og búinn að rétta hjálparhönd til stuðnings sínu fólki og ber að þakka það. Læknum og hjúkrunarfólki sem önnuðust hann er þakkað fyrir frá- bæra umönnun, bæði á Landspítala og heima. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð.. (Vald. Briem.) Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gréta. Elsku Ingó frændi. Takk fyrir að vera alltaf svona góður við okkur. Takk fyrir að leyfa okkur að spila á píanóið þitt. Takk fyrir skemmtilegu Spánar- ferðina. Takk fyrir allar stundir sem við áttum saman, þær munum við geyma í hjörtum okkar. Við kveðjum þig með söknuði. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Góða nótt elsku frændi, Aldís Agla og Egill Orri. Elsku Ingó Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vorn grætir þá líður sem leiftur úr skýjum ljósgeisli af minningum hlýjum. (H.J.H.) Fyrir rúmu ári þegar niðurstaðan um veikindin kom í ljós var ekki um neitt annað að ræða hjá Ingó en sigrast á þeim.Við trúðum því öll að sú barátta myndi vinnast, en því miður, það átti ekki að verða. Þegar staðreyndin blasir nú við þá virðist það svo óraunverulegt. Hvernig má þetta vera? Ingó prýddist flestum þeim mannkostum sem við látum okkur dreyma um. Fyrst og fremst var það elskan og umhyggjan um sína nánustu, hvort heldur það var tengdafólkið eða eigin fjölskylda. Hann missti föður sinn úr álíka veikinum fyrir nokkrum árum og varð sjálfkrafa eftir það ákveðinn stólpi fyrir móður sína og þrjá yngri bræður sem nú eiga um mjög sárt að binda. Birna og Ingó kynntust á unga aldri og voru ákaflega samrýnd. Börnin tvö, Laufey Sif og Bjarni Grétar, komu eftir nokkurra ára sambúð og er augljóst að þau prýða margir kostir foreldranna. Á síðasta ári kom svo í heiminn afadóttirin, perlan hún Kamilla Sif, sem gladdi hjarta Ingós alveg fram að síðustu stundu. Ingó var í senn vinur barna sinna sem og góður leiðbeinandi í uppeldinu. Það er kannski erfitt að koma beinum orðum að því en við fundum að í návist þeirra allra var ekkert vesen, hlutir voru ræddir og sátt og samstaða ríkti.Kom þetta best í ljóst þegar við fjölskyldurnar vorum viku á skíðum saman og nún- ingur, sem gæti talist eðlilegur, var aldrei til staðar. Við áttum frábærar stundir með Ingó bæði sem fjölskylda og í hjónahóp. Af mörgum kostum hans koma söngur og gítar upp í hugann. Þetta kryddaði oft þær frístundir sem við áttum saman og verður þeirra nú afar sárt saknað. En Ingó var músíkalskur og var t.d. með- limur í Karlakór Reykjavíkur í mörg ár. Ingó var lærður bakari og áhuga- maður um mat og vín. Hann var leiðtogi bakaranema í Menntaskól- anum í Kópavogi og náðu þeir í ým- iskonar verðlaun í keppnum erlend- is og juku tvímælalaust á hróður Íslands í þeim efnum. Traustur og heilsteyptur vinur er nú horfinn á braut. Ljúflingur á besta aldri hefur verið tekinn úr mannlífinu. Eftir stöndum við öll mun fátækari. Elsku Birna og börn, megi al- mættið styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Fjóla, Magni og börn. Elsku Ingó. Takk fyrir ást þína, umhyggju og ómetanlegan stuðning þegar ég þurfti á að halda. Eftir standa dýr- mætar minningar um kæran bróður með stórt hjarta og sterkar skoð- anir. Þú varst hraustur, þjáning alla þoldir þú og barst þig vel, vildir aldrei, aldrei falla: Uppréttan þig nísti hel. Þú varst sterkur, hreinn í hjarta, hirtir ei um skrum og prjál; aldrei náði illskan svarta ata þína sterku sál. (Matthías Jochumsson) Hvíl í friði. Þinn bróðir, Sigurður. Kveðja frá Mennta- skólanum í Kópavogi Kær samstarfsfélagi og vinur, Ingólfur Sigurðsson, fagstjóri bak- aradeildar við Menntaskólann í Kópavogi, er fallinn frá eftir stutta en snarpa baráttu við illvígan sjúk- dóm. Við erum óþyrmilega minnt á hverfulleika lífsins og hversu lítils megnug við erum andspænis dauð- anum. Nú er það svo að dauðinn er öllum vís en það er hastarlegt þegar hann hrífur með sér fólk í blóma lífsins. Þegar slíkir sorgaratburðir gerast er okkur orða vant. Ingólfur Sigurðsson bakarameist- ari réðst að Menntaskólanum í Kópavogi vorið 1996 til að annast undirbúning og skipulag á nýrri deild við skólann í bakaraiðn. Hann bjó þá yfir mikilli reynslu úr fagi sínu og var vel metinn af fagfélagi og atvinnulífi sem af einhug mælti með Ingólfi. Það var ekki létt verk sem beið Ingólfs þegar hann kom til starfa, húsnæðið í byggingu, eftir að velja inn tæki og búnað og kennslan átti að hefjast eftir nokkra mánuði. Þar var réttur maður á réttum stað og strax kom í ljós hversu góðum hæfileikum Ingólfur var gæddur til stjórnunar, kennslu og samstarfs. Hann vakti yfir velferð nemenda sinna og bakaradeildarinnar með ákveðnum en mildum hætti. Það var því mikið lán fyrir skólann að fá til starfa jafn hæfan og reyndan mann og Ingólf sem lagði metnað í öll sín störf. Ingólfur var hvatamaður að því að árið 1998 hófu nemendur bakaradeildar að taka þátt í Evr- ópukeppni hótel- og ferðamálaskóla. Hann skipulagði undankeppnir í MK og sá síðan um þjálfun, und- irbúning og fararstjórn. Á þeim tíu árum sem skólinn hefur tekið þátt í keppninni hefur bakaranemi 4 sinn- um unnið til gullverðlauna og 1 sinni til silfurverðlauna og hefur enginn annar skóli á þessu sviði í Evrópu náð slíkum árangri. Hér er eldmóði og áhuga Ingólfs e.t.v. best lýst. Ingólfi voru falin ábyrgðarstörf jafnt innan skólans sem utan. Hann sat í skólaráði og samstarfsnefnd kennara í MK. Þá var hann í sveins- prófsnefnd, sat um tíma í stjórn Landssambands bakarameistara og var stofnfélagi í Klúbbi bakara- meistara svo nokkuð sé nefnt. Þá lagði Ingólfur áherslu á að fylgjast vel með bæði í fagi sínu sem og nýj- ungum í upplýsingatækni en á því sviði var hann í fremstu röð kenn- ara í MK. Ingólfur vann að þróun- arverkefnum, samdi kennsluefni og kom að námskrárgerð bæði í sínu fagi og meistaranámi. Það er drungi yfir skólanum eftir fráfall Ingólfs. Þar ríkir sorg og söknuður eftir góðan samstarfs- mann og vin. En eftir lifa minningar og þakklæti fyrir að hafa mátt njóta samvistanna við hann. Að leiðarlok- um vil ég fyrir hönd Menntaskólans í Kópavogi þakka Ingólfi Sigurðs- syni fyrir það brautryðjendastarf sem hann vann á starfsferli sínum við skólann. Ég vil votta honum virðingu okkar, þakka honum sam- fylgdina og allar ánægjustundirnar sem við áttum með honum. Þá vil ég senda aðstandendum Ingólfs okkar dýpstu samúðarkveðjur og biðja góðan Guð að styrkja þá og blessa í óbærilegri sorg þeirra. Margrét Friðriksdóttir skólameistari. Kveðja frá Karlakór Reykjavíkur Ingólfur Sigurðsson, dyggur fé- lagi í Karlakór Reykjavíkur til margra ára, er fallinn frá. Í dag kveðjum við þennan félaga okkar sem hrifinn var brott í blóma lífsins eftir snarpa baráttu við illvígan sjúkdóm. Ingólfur gekk til liðs við Karlakór Reykjavíkur árið 1996 og starfaði með honum allt þar til veikindin gerðu vart við sig, utan örfá ár er hann gerði hlé á kórstörfum vegna anna í vinnu. Hann söng 1. tenór, hafði hljómfagra rödd og var örugg- ur söngmaður í hvívetna. Einnig var hann traustur félagi og leysti þau störf, sem honum voru falin í fé- lagsskapnum, fljótt og vel af hendi. Það var gott að umgangast Ingólf, hann hafði glaðlegt og vingjarnlegt fas og nærvera hans hafði ávallt góð áhrif á félagsskapinn. Ingólfur tók þátt í nokkrum söng- ferðum með kórnum bæði innan- lands og til útlanda. Síðasta ferðin reyndist vera sú sem farin var til Færeyja í desember 2007 og að henni lokinni tók hann þátt í að- ventutónleikum kórsins í Hallgríms- kirkju sama ár. Fljótlega eftir það greindist hann með krabbamein og hófst þá ströng viðureign. Hann lét sig þó ekki vanta á vortónleika kórsins og lokahóf í maí sl. og einn- ig gladdi hann okkur með nærveru sinni á jólatónleikum í desember. Sjá mátti að veikindin höfðu tekið sinn toll, en þrátt fyrir það mætti okkur sama hlýja fasið þegar við hittum hann. Baráttu sína við krabbameinið háði hann af æðru- leysi en svo fór þó hinn 19. febrúar sl. að hann mátti lúta í lægra haldi fyrir þessum vágesti. Við félagar í Karlakór Reykja- víkur sendum fjölskyldu Ingólfs Sigurðssonar okkar innilegustu samúðarkveðjur. Með brotthvarfi hans er höggvið skarð í raðir kór- félaganna en áfram mun hann fylla sinn sess í hugum okkar og hjört- um því minningin um góðan dreng og félaga lifir um ókomin ár. Vigfús M. Vigfússon. Kveðja frá Lúðrasveit verkalýðsins Það var snemma árs 1976 sem Ingólfur birtist á sinni fyrstu æf- ingu hjá Lúðrasveit verkalýðsins. Örlítið feiminn fyrst innan um alla eldri félagana, en fljótlega rjátl- aðist feimnin af og Ingó varð mjög fljótt orðinn hluti af hópnum, líkt og hann hefði spilað í sveitinni frá upphafi vega. Ingólfur var firna- góður trompetleikari, hafði skæran en jafnframt mjög fallegan tón. Fyrsti trompetleikari var hann frá fyrsta degi og lék hin erfiðustu verk að því er virtist fyrirhafnar- laust. Tónlistin var honum greini- lega í blóð borin. Ekki hafði Ingólfur verið í lúðra- sveitinni nema um tveggja mánaða skeið þegar ráðist var í útvarps- upptöku þar sem Internationallinn skyldi tekinn upp með söng Guð- mundar heitins Jónssonar óperu- söngvara. Ekki gekk sem best að koma laginu saman og kröfuharður stjórnandinn lét okkur taka lagið ótal oft upp. Erfiður trompetinn- gangur lagsins féll í hlut Ingólfs í öll hin fjölmörgu skipti og höfðu menn á orði að öðrum eins vörum hefðu þeir aldrei áður kynnst. Ekki er víst að allir viti hvað átt er við, en allir málmblásarar þekkja hvað slíkur blástur tekur á varir spilara. Á næstu árum var gaman að vera til. Sveitin lék víða og hróður hennar jókst smám saman, ekki síst fyrir tilstilli manna eins og Ing- ólfs, með mikla meðfædda tónlist- arhæfileika. Minnisstæð er ferð á samnorrænt tónlistarmót í Noregi árið 1977. Þar var Ingólfur í essinu sínu og jafnan hrókur alls fagn- aðar. Svona liðu árin hvert af öðru, en svo kom að því að leiðir skildi og Ingólfur lagði trompettinn á hilluna rétt fyrir miðjan níunda áratuginn. Ekki leið á löngu þar til við vinir hans fréttum af honum syngjandi í karlakór og kom það okkur ekki á óvart að Ingó skyldi finna aðra leið til útrásar fyrir tónlistarhæfileika sína. Löngu síðar, eða snemma árs ár- ið 2003, var ákveðið að kalla saman sveit eldri félaga lúðrasveitarinnar sem skyldi spila á 50 ára afmæl- istónleikum snemma vors. Ingólfur var þá einn þeirra fyrstu sem sinnti kallinu, dró fram trompettinn og blés eins og hann hefði engu gleymt. Voru þetta einstaklega skemmtilegir endurfundir og Ing- ólfur átti þarna glæsilega endur- komu líkt og margir hinna eldri fé- laga. Nú er komið að kveðjustund mun fyrr en vonir stóðu til. Við félagar Lúðrasveitar verkalýðsins þökkum Ingólfi ánægjulega samfylgd í gegnum tíðina og vitum sem er að ef leikið er á hljóðfæri í efra, þá er ekki vafi á því að Ingólfur verður skjótt kominn þar á fyrstu rödd. Kæra Birna og fjölskylda. Við vinir Ingólfs og félagar í Lúðra- sveit verkalýðsins sendum ykkur hugheilar samúðarkveðjur. Góður Ingólfur Sigurðsson Elsku Ingó, takk fyrir að hafa verið alltaf svo góður og skemmtilegur við okkur. Takk fyrir heimsóknirnar til okkar í Svíþjóð. Við munum alltaf minnast þín. Kristur minn ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu. Gjörðu svo vel og geymdu mig, Guð, í skjóli þínu. (Höf. ók.) Kristín Petra og Eva. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.