Morgunblaðið - 27.02.2009, Síða 47

Morgunblaðið - 27.02.2009, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009 Með Viðskiptablaði Morgunblaðsins 19. mars fylgir aukablaðið Skrifstofan. Í því blaði verður fjallað um skrifstofuhúsgögn, tölvur, tæki og tól og síðast en ekki síst um hönnun vinnurýmisins og hvernig það getur haft áhrif á afköst og flæði hugmynda. Lýsing, loftgæði og ræsting eru sömuleiðis meðal þeirra þátta sem hafa rík áhrif á það hvernig fólki líður á vinnustað. Rætt verður við arkitekta og hönnuði sýnd dæmi um vel heppnuð skrifstofurými. – meira fyrir skrifstofuna Skrifstofan - afköstin og hugmyndirnar Aukablað Viðskiptablaðsins 19. mars F í t o n / S Í A Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Hvönn Karlsdóttir í síma 569-1134 / 692-1010 eða sigridurh@mbl.is Auglýsendur! Pantið fyrir kl 16.00 mánudaginn 16. mars. Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða í síma 569 1122 Það kom áhorfendumNME-verðlaunanna, semhaldin voru á miðviku-dag, heldur betur á óvart þegar þeir Damon Albarn og Graham Coxon úr Blur stigu á svið og fluttu „This Is a Low“ af Blur-plötunni Parklife (1994). Þeir Albarn og Coxon hafa ekki komið saman opinberlega í níu ár og telja má gott að skipuleggj- endum skuli hafa tekist að halda endurfundunum leyndum fyrir fjölmiðlum en Albarn mun hafa heitið því að ekkert yrði af tón- leikunum yrði því lekið í fjöl- miðla. Annars var hátíðin stjörn- um prýdd að venju og á meðal þeirra sem tróðu upp má nefna Glasvegas, Florence and the Machine, Elbow, Franz Ferdin- and og The Cure. Erkióvinur Blur, Oasis, hlaut tvenn verðlaun á hátíðinni, sem besta breska hljómsveitin og fyrir besta hljóm- sveitarbloggið, en heiðurinn af því á að sjálfsögðu striga- kjafturinn Noel Gallagher. Það var hins vegar hljómsveitin Muse sem fékk í sinn hlut flest verð- laun en auk þess að fá verðlaun sem besta tónleikahljómsveitin og fyrir plötuumslag var söngv- arinn Matt Bellamy kosinn kyn- þokkafyllsti karlmaðurinn. Þegar allt lék í lyndi Graham Coxon gítarleikari Blur er lengst til hægri en Íslandsvinurinn Damon Albarn er yst á hinum vængnum. Albarn og Coxon komu öllum á óvart VERÐLAUNAFLOKKAR NME hafa löngum þótt æði skrautlegir en hér má sjá þá helstu:  Æviframlag til tónlistar – Elbow  Besta hljómsveit – Oasis  Besta alþjóðlega hljóm- sveitin – The Killers  Besti sólólistamaðurinn – Pete Doherty  Besta tónleikahljómsveit – Muse  Besti nýliðinn – MGMT  Besta platan – Only by the Night (Kings of Leon)  Besti DVD – Arctic Mon- keys  Besti sjónvarpsþátturinn – The Mighty Boosh  Besta vefsíðan – YouTube  Hetja ársins – Barack Obama  Mesti skúrkurinn – George W. Bush  Versta hljómsveit – Jonas Brothers Mesti skúrkurinn STRESSIÐ er ekki að ganga af meðlimum Skakkamanage dauðum. Önnur hljómplata sveitarinnar, All Over the Face, kom út seint á síð- asta ári og nú telur sveitin að tími sé kominn til að halda útgáfu- tónleika. Tónleikarnir fara fram í kvöld á Grand Rokk en þar hefur gestum verið lofað einni allsherjar skemmtun. Meðal þeirra sem hafa staðfest upphitun er listapáfinn og gítarhetjan Goddur sem hyggst dá- leiða tónleikagesti með öskrandi rafmagnsgítarleik en í frétta- tilkynningu segir að Ringo Starr verði honum til halds og trausts. Gestir eru hvattir til að krefjast endurgreiðslu reynist þetta lygi. Auk Godds mun hin hafnfirska A- Hansen koma fram að ógleymdum þeim Hugleiki Dagssyni og Friðriki Sólnes. Skemmtunin hefst kl. 22 og fyrir þetta þarf að reiða af hendi 1.000 krónur. Skakkamanage Meðlimir sveitarinnar í rjómakökuleik. Betra seint en aldrei Skakkamanage fagnar útgáfu All Over the Face

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.