Morgunblaðið - 27.02.2009, Page 24

Morgunblaðið - 27.02.2009, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2009 Í FRÉTTABLAÐINU 19. febrúar s.l. er fróðleg grein í samantekt Brjáns Jónassonar. Greinin heitir „Niðurskurður líklegri en mikl- ar skattahækkanir“. Í greininni segir: – „Umræða um hvar skuli höggva og hvar skuli hlífa hefur þó sjaldan verið mikilvægari.“ Ég er sammála því að það þurfi að höggva og hlífa. Spurningin er einnig: Er ekki líka hægt að jafna? Það virðist sjaldan lagt til að jafna þurfi kjör og lífsins gæði í útfærslum hagfræðinga. Við gerð þessarar greinar er tilkallaður einn hagfræðingur sem átti trúnað fyrrver- andi forsætisráðherra a.m.k. um stundarsakir. Þar segir: – Tryggvi Þór Herbertsson, prófessor í hagfræði við Há- skólann í Reykjavík, segir að ríkið geti þurft að skera niður allt að tíunda hluta af útgjöldum sínum. Það eru um 56 milljarðar króna…. Þá sé einnig mögulegt að horfa til annarra útgjalda sem stofnað hefur verið til á undanförnum árum, til dæmis með því að skerða réttindi til fæðingarorlofs tímabundið. Fæðingarorlofið í heild kostar ríkið um 10,6 milljarða króna á árinu 2009. Nú þurfa menn að vita að Tryggvi er jafnframt þátt- takandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi svo einhvern fyrirvara verður að hafa á skoðunum hans og lausnum. Fram að þessu hafa sjálfstæðismenn ekki haft neinn sérlegan áhuga á velferðarmálum og jöfnuður ekki í orðabókum Valhallar. –Skatta- hækkanir á þessum tímapunkti eru þó afar óráðlegar að mati Tryggva. Skattahækkanir eru jú ekki heldur til í orðabókum Valhallar. Ástæðan er sú að skattahækkanir eru ein leið af mörgum til að jafna kjörin. Ójöfnuður hef- ur aukist jafnt og þétt frá 1993. Ójöfnuður hefur aukist jafnt og þétt frá 2003, ef miðað er við önnur Norðurlönd (sjá Hagstofu). Margir eru þeirrar skoðunar að það náist „einungis“ 4 milljarðar með hátekjuskatti. Ég tel að það megi jafna kjörin með þrepaskiptum há- tekjuskatti. Jöfnum kjörin í djúpri kreppu á svipaðan hátt og gert er á öðrum Norðurlöndum. Því má nefnilega stýra með sköttum og jafna kjörin. Hátekjuskattur – hvað fæst með honum? Eftir Gísla Baldvinsson Gísli Baldvinsson Höfundur er náms- og starfsráðgjafi og sækist eftir 4.-6. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Á ÍSLANDI hefur ávallt verið lögð áhersla á gildi fjölskyldunnar enda grunnstoð sam- félagsins. Áhersla og vægi fjölskyldueining- arinnar hefur þó án efa verið eitthvað mismun- andi allt eftir aðstæðum á hverjum tíma. Í góðæri og á tímum mikillar uppsveiflu má vera að meginþunginn færist um tíma á gildi ver- aldargæða og kapp við að auka fjárhagsleg verðmæti. Hjón sem stofna sem dæmi fyr- irtæki verja oft öllum kröftum og atorku við uppbyggingu þess fyrstu árin. Eðli málsins samkvæmt situr annað á hakanum á meðan, þar á meðal samskipti og samvera við fjöl- skyldu. Fyrir komandi kosningar virðist sem áhugi á velferð- armálum sé meiri en áður. Það kemur ekki á óvart enda þjóðin að ganga í gegnum fjárhagslegar hremmingar. Áhyggjur sliga margar fjölskyldur um þessar mundir. Börnin verða óumflýjanlega fyrir áhrifum enda fara þau mörg hver ekki varhluta af áhyggjum foreldra sinna. Í ljósi aðstæðna er ekki ósennilegt að margir kjósi þann stjórnmálaflokk sem lýsir því yfir að ætla að leggja áherslu á málefni fjölskyldunnar og velferð hennar. Þetta þýðir ekki að önnur málefni séu ekki einnig brýn. Hitt er víst að eigi fólk við erf- iðleika að stríða hefur það margföldunaráhrif. Almenn grunnvelferð er undirstaða farsællar uppbyggingar. Brýnast er að koma hjólum at- vinnulífsins af stað aftur svo forða megi sem flestum frá gjaldþroti. Sérhver einstaklingur þarf að geta fundið tilgang í lífi sínu. Sá sem hvorki hefur tækifæri til að stunda vinnu né nám er í áhættuhópi þeirra sem kenna dep- urðar og tilgangsleysis. Rútína af einhverju tagi er flestum mikilvæg ef ekki nauðsynleg. Hún skapar tilfinningu um verðleika og tilgang þegar einhver sækist eftir kröftum manns og nærveru. Ekki er óalgengt að þeir sem hafa misst vinnu missi sjónar á markmiðum sínum um tíma. Þessu fólki þarf að hjálpa að finna hvar tækifæri kunna að leynast. Þetta er meðal verkefna þingmanna á komandi misserum. Takist vel til að bæta hag og þar með líðan fólksins er út- koman örugg fjárfesting fyrir allt þjóðarbúið. Fjölskyldan hornsteinn samfélagsins Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur Kolbrún Baldursdóttir Höfundur er sálfræðingur og gefur kost á sér í 4.-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. ER EÐLILEGT að íslenska þjóðin þurfi að greiða hundruð milljarða króna vegna misheppnaðrar starfsemi íslenskra banka í nokkrum aðildarlöndum Evrópusambands- ins? Er sanngjarnt að setja þjóðina í gapa- stokk skulda upp á hundruð milljarða vegna þeirrar starfsemi? Er það virkilega svo að þjóðir sem við höfum hingað til talið meðal vina okkar setji okkur stólinn fyrir dyrnar og einangri okkur í viðskipta- og sam- skiptalegu tilliti? Þessar spurningar eru áleitnar nú þegar vinir okkar í Evrópu undir forystu Breta reyna að kúga okkur til að greiða tjón sem varð vegna glæfra- legrar útrásar íslenskra fjármálafyrirtækja. Spurning- arnar eru mikilvægar, en það er niðurstaðan sem skipt- ir öllu máli. Menn eru sammála um að þær reglur um fjármála- starfsemi sem við innleiddum frá Evrópusambandinu og fengum í morgungjöf með EES-samningnum séu stórlega gallaðar. Regluverkið gerði klárlega ekki ráð fyrir því að fjármálastarfsemi sem var orðin svo um- fangsmikil sem raun ber vitni í okkar tilfelli færi öll í þrot á sama tíma. Reglur um tryggingasjóð innistæðna voru ekki þess eðlis að nokkur möguleiki væri fyrir þann sjóð að standa undir svo stóru áfalli. Sem þjóð höfum við Íslendingar alltaf staðið við skuldbindingar okkar, ef einhverjar eru, og vissulega viljum við gera það í þessu tilfelli. Spurningin er hins vegar þessi: Hverjar eru skuldbindingar okkar? Er ekki óeðlilegt og ósanngjarnt að Íslendingar taki einir skellinn af gölluðu regluverki Evrópusambandsins sem við fengum með EES-samningnum? Það er umhugs- unarefni hvað Evrópusambandinu gengur til með því að ganga hart fram með Bretum og fleirum til þess að kúga okkur til greiðslu óbærilegra skulda sem urðu til í skjóli gallaðra reglna frá þeim sjálfum. Ætli ástæðan sé sú að hrikta muni í grunnstoðum fjármálakerfis sambandsins ef látið yrði reyna á ábyrgð þess sjálfs á eigin reglusmíð? Það er augljóst að Evrópusambandið getur ekki skotið sér undan ábyrgð í þessu máli og ætlast til þess að Íslendingar greiði tjónið sem skapaðist m.a. vegna galla í regluverki þeirra sjálfra. Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu þar sem samþykkt er að ganga til samninga um Icesave-reikningana. Skilyrði þeirrar samþykktar eru að tekið verði tillit til okkar vegna þeirra erfiðu aðstæðna sem hér hafa skapast. Svo virðist sem viðsemjendur okkar séu mjög einstrengingslegir og ætli í krafti afls síns að kúga okkur til samninga. Í nefndaráliti meirihluta utanríkismálanefndar kemur fram að ekki sé sjálfgefið að samkomulag takist. Um- boð samningamanna okkar er því takmarkað. Það sem mun standa undir viðreisn íslensks sam- félags er skynsamleg nýting náttúruauðlinda okkar til lands og sjávar. Við erum heppin að grunnstoðir ís- lensks samfélags hafa ekki laskast, það er og verður markaður fyrir endurnýjanlega orku og afurðir úr haf- inu. Þótt verð lækki tímabundið mun það ná jafnvægi aftur. Verulegar líkur eru taldar á að við eigum miklar ónýttar auðlindir á Hatton Rockall-svæðinu og svoköll- uðu Drekasvæði. Framtíð lands og þjóðar er því björt og komandi kynslóðir eiga ekki að þurfa að bera kvíð- boga fyrir framtíðinni. Verði niðurstaðan sú að svokall- aðar vinaþjóðir okkar nauðbeygja okkur til þess að standa ein undir eða að taka þátt í greiðslum vegna Icesave-reikninganna verður sú endurgreiðsla að vera með þeim hætti að viðráðanlegt sé. Einn möguleikinn er að hluti arðs af framtíðarauðlindum okkar á áð- urnefndum svæðum renni til greiðslu á þessum skuld- um þannig að þær verði gerðar upp á löngum tíma en ekki sá myllusteinn um háls okkar sem annars gæti orðið. Icesave Eftir Jón Gunnarsson Jón Gunnarsson Höfundur er alþingismaður. Í fermingarblaði Morgunblaðsins er fjallað um allt sem tengist fermingunni og fermingarundirbún- ingnum ásamt því hvernig þessum tímamótum í lífi fjölskyldunnar er fagnað. Blaðið í ár verður sérlega glæsilegt og efnismikið. Meðal efnis: • Veitingar í veisluna – heimatilbúnar eða keyptar • Mismunandi fermingar • Skreytingar í veisluna • Veisluföng og tertur • Fermingartíska, stelpur og strákar • Fermingarförðun og hárgreiðsla • Fermingarmyndatakan • Fermingargjafir – hvað er vinsælast? • Hvað breytist við þessi tímamót í lífi barnanna? • Hvað merkir fermingin? • Viðtöl við fermingarbörn • Fermingarskeytin • Ásamt fullt af spennandi fróðleiksmolum Fermingarblaðið verður borið út á hvert einasta heimili á höfuðborgarsvæðinu ásamt nágrannabyggðum. Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is Tekið er við auglýsingapönt- unum til kl. 16.00, mánudaginn 2. mars. fermingar kemur út föstudaginn 6. mars Efnismikið sérblað Morgunblaðsins um – meira fyrir auglýsendur Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.