Morgunblaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Strandríkjafundur Íslendinga, Evr- ópusambandsins, Færeyinga og Norð- manna um skiptingu makrílkvóta fyrir næsta ár hófst í London í gær. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins fóru viðræðurnar hægt af stað en þær standa fram á fimmtudag. Íslendingar fengu í fyrsta skipti að koma að samn- ingaborði strandríkja um makríl í fyrra, en þá náðist ekkert samkomu- lag og setti þá hvert ríkjanna fjögurra sér einhliða kvóta. Fundurinn sem nú stendur í Lond- on kemur í kjölfar tveggja daga tví- hliða fundar Íslands og ESB í sept- ember. Tómas H. Heiðar, formaður íslensku viðræðunefndarinnar, sagði í lok þess fundar að hann teldi að aðilar hefðu meiri skilning á sjónarmiðum hvor annars og að hann teldi mögu- leika á því að niðurstaða næðist á strandríkjafundinum í ár. Makríllinn enginn túristi Staðan í makrílviðræðunum var tekin fyrir í umræðum utan dagskrár á Alþingi í gær og sagði þá Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokks, að Íslendingar yrðu að standa á sínum rétti þrátt fyrir „purkunarlaus- ar ofbeldishótanir sunnan úr Brussel“. Jón Bjarnason sjávarútvegsráð- herra sagði þá að allir yrðu að gera sér grein fyrir réttindum hver annars og ábyrgð. Það væri skylda ríkjanna að komast að niðurstöðu sem tryggði réttláta skiptingu, en einnig sjálfbær- ar veiðar. „Við munum halda fram okkar rétti og skyldum og krefjast þess af hinum aðildarríkjunum að þau geri nákvæm- lega eins. Ég heiti því að ég mun fyrir okkar hönd standa á eðlilegum rétti okkar og ábyrgð eins og við höfum gert í samningum um veiðar úr sam- eiginlegum stofnum.“ Með íslenskt vegabréf Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra tók einnig til máls og sagði að makríldeilan væri sagan af Davíð og Golíat og sú saga endaði jafnan á því að Davíð sigraði. Össur sagðist telja bréfaskriftir framkvæmdastjórnar ESB til Íslendinga óviturlegar. Í bréfi til Jóns og Össurar í síðustu viku lýstu þrír fulltrúar framkvæmdastjórnar- innar áhyggjum sínum vegna makríl- veiða Íslendinga. Í svarbréfi frá Jóni og Össuri var þessu mótmælt og bent á að ríkin fjögur bæru sameiginlega ábyrgð. Í viðræðunum á Alþingi í gær bætti Össur því við að makríllinn væri ekki „tímabundinn túristi“ í íslensku efna- hagslögsögunni heldur hefði hann út- vegað sér íslenskt vegabréf og væri farinn að hrygna allt í kringum landið. Þá kæmi hann ekki ókeypis heldur tæki til sín mikla átu frá öðrum stofn- um. Öll rök væru því með því að Ís- lendingar fengju sanngjarnan hlut úr makrílstofninum. Viðræður um makríl hafnar  Þriggja daga strandríkjafundur hafinn í London  Makríldeilan „sagan af Dav- íð og Golíat“  Öll rök með því að Íslendingar fái sanngjarnan hlut í stofninum „Íslendingar eiga að standa á sínum rétti þrátt fyrir purkunarlausar of- beldishótanir.“ Einar K. Guðfinnsson Yfir 300 manns komu saman við Héraðshælið á Blönduósi og héldu fylktu liði í Félagsheimilið til að mótmæla niðurskurði ríkisstjórnarinnar á framlögum til heilbrigðismála í A-Húnavatns- sýslu. Það var samdóma álit fundarmanna að niðurskurðurinn væri algjört rothögg fyrir sam- félagið. Samþykkt var ályktun þar sem áform- unum var mótmælt og skorað á ríkisstjórnina að „draga til baka þessa aðför að HSB“. Algjört rothögg fyrir samfélagið Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Ögmundur Jónasson, ráðherra samgöngu- og sveitar- stjórnarmála, vék sér ítrekað undan því á Alþingi í gær að svara hvort hann styddi fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar- innar. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, vakti máls á því að rökrétt væri að álykta að Ögmundur styddi ekki frumvarpið og vísaði hann í því sambandi til ummæla Ögmundar sem í viðtali við Víkurfréttir á dögunum sagði sér ekki hugnast álver í Helguvík. „Í ljósi þeirra yfirlýsinga verður að líta til þess að meg- inforsenda fjárlagafrumvarpsins er sú hagvaxtarspá og hagvaxtarforsendur sem þar byggjast. Þær hagvaxtarfor- sendur byggjast á því að farið verði í framkvæmdir við byggingu álvers í Helguvík, framkvæmdir sem hæstvirtur ráðherra styður ekki,“ sagði Sigurður Kári og spurði í kjöl- farið hvort Ögmundur styddi fjárlagafrumvarpið. Í andsvari sagðist Ögmundur ekki skilja samhengið í spurningunni. Hann sagði að umræðan um atvinnuupp- byggingu í Reykjanesbæ hefði verið keyrð í öngstræti. Um stuðning sinn við fjárlagafrumvarpið sagði hann hinsvegar ekkert og ekki heldur þegar Pétur Blöndal og Einar K. Guðfinnsson kröfðust svara við spurningunni. una@mbl.is Vék sér undan spurningum um fjárlagafrumvarpið Morgunblaðið/Golli Alþingi Ögmundur svaraði Sigurði Kára þannig að eina lausn Sjálfstæðisflokksins væri „ál eða dauði“.  Sveitarstjórnarmálaráðherra styður ekki álver í Helguvík „Ég er til í að milda áhrifin og taka þetta á lengri tíma,“ seg- ir Guðbjartur Hannesson heil- brigðisráðherra um þá öldu mót- mæla sem hefur verið við boð- uðum niðurskurði í heilbrigðisþjón- ustu samkvæmt fjárlagafrumvarp- inu, ekki síst á landsbyggðinni. Guðbjartur segir jafnframt að stjórnvöld verði að þora að for- gangsraða ef eigi að standa við áform um niðurskurð um 4,7%. Hann segist hafa áskilið sér rétt til að skoða betur tillögur í fjárlaga- frumvarpinu áður en 2. umræða fer fram á Alþingi. Í því skyni séu vinnuhópar ráðuneytisins að störf- um í heilbrigðisumdæmunum og hann muni sjálfur eiga fundi með forstöðumönnum heilbrigðisstofn- ana. Í framhaldi af þeirri vinnu muni hann taka sínar ákvarðanir. Skilur vel reiðina Nærveru ráðherrans hefur verið óskað á íbúafundum um land allt að undanförnu og aðspurður segist Guðbjartur ekki hafa átt möguleika á að fara á þessa fundi, sem hafi kannski verið 3-4 á sama deginum. „Ég skil mjög vel reiði fólks og hlusta að sjálfsögðu á þau skilaboð sem við fáum. Í allri umræðu höfum við þetta til hliðsjónar. Ég er að vinna í fleiri málum þessa dagana, eins og skuldavanda heimilanna, og bið fólk að virða við mig þó að ég komist ekki á fundina.“ bjb@mbl.is Er til í að milda áhrifin Guðbjartur Hannesson „En verðum að þora að forgangsraða“ Vopnað rán var framið á pitsustað í Núpalind í Kópavogi í gærkvöld. Maður mætti á staðinn vopnaður eggvopni og ógnaði afgreiðslustúlku, sem var ein að störfum. Hann krafð- ist peninga og komst undan með eitthvað af aurum, að sögn lögreglu. Maðurinn var um 1,70 cm á hæð með lambhúshettu á höfði. Lögregla leit- aði enn mannsins þegar Morg- unblaðið fór í prentun. Vopnað rán í Kópavogi Framboðsfrestur til hádegis 18. október Framboðum til stjórnlagaþings skal skilað til landskjörstjórnar fyrir klukkan 12 á hádegi næstkomandi mánudag, 18. október. Nánari upplýsingar á kosning.is og landskjor.is. Kosið verður 27. nóvember. Stjórnlagaþing kemur saman eigi síðar en 15. febrúar 2011 til að endurskoða stjórnarskrá Íslands. Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.