Morgunblaðið - 13.10.2010, Side 16

Morgunblaðið - 13.10.2010, Side 16
Meira en helmingur jöklanna kortlagður FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Á síðustu árum hefur yf- irborð meira en helm- ings íslenskra jökla verið kortlagt með góðri upplausn með ná- kvæmri leysimælingu. Flogið er með mælitækin í flugvél á um 200 kíló- metra hraða í 2-4 kílómetra hæð yfir jöklunum og skannað með leysi- geisla mælisvæði sem er um tveggja km breitt þvert á flugstefnuna. Á þennan hátt fást nákvæm landlíkön af jöklunum og gildir einu hvort yf- irborð jökulsins er slétt eða sprungusvæði sem er ófært yfirferð- ar á jörðu niðri. Verkefnið hófst fyrir tveimur árum og var þá litið á það sem fram- lag Íslands til alþjóðlega heim- skautaársins 2007-2009. Vonir standa til að verkefninu ljúki á næstu árum. Jöklar þekja um 10% af yfirborði landsins eða um ellefu þús- und ferkílómetra. Nú er búið að mæla vel á sjötta þúsund ferkíló- metra eða rúman helming jöklanna. Í sumar voru mældir um fjögur þús- und ferkílómetrar. „Þessi tækni er eins og galdrar,“ segir Tómas Jóhannesson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni. „Á góðum degi er hægt að kort- leggja allan Hofsjökul og það er með ólíkindum að hægt sé að gera þessar nákvæmu mælingar úr svona mikilli fjarlægð. Mælingarnar sem búið er að gera sýna að jöklar landsins rýrna nú mjög hratt. Það hafa aðrar mælingar á jöklunum gefið til kynna á síðustu 15 árum, en leysitæknin sem nú er notuð og kortin sem við fáum gefa okkur mikilvægar upplýs- ingar sem nýtast við margvíslegar rannsóknir.“ Samanburður við eldri kort Að sögn Tómasar er markmiðið að gera nákvæma mælingu á jökl- unum á tiltölulega skömmum tíma til þess að eiga viðmiðunarkort og geta með endurmælingu sýnt hvað jökl- arnir breytast hratt. Jafnframt verður greint innan þessa verkefnis hversu hratt jöklarnir hafa rýrnað síðustu 10-20 árin með því að bera niðurstöðurnar saman við eldri kort. Þau er hægt að leiðrétta og laga með ýmsum hætti með samanburði við nýju kortin og þannig fást áreið- anlegri gögn um fyrri lögun jökl- anna. Mælingarnar í sumar gengu mjög vel, en veðurskilyrði þurfa að vera góð, m.a. þarf að vera nánast heiðskírt svo hægt sé að mæla með leysitækinu. Eiríksjökull og Snæ- fellsjökull voru mældir í tilrauna- skyni í upphafi verkefnisins 2008. Síðan er búið að kortleggja Hofs- jökul, Mýrdalsjökul, Eyjafjallajökul og stóran hluta af suðaustanverðum Vatnajökli; Öræfajökul, Breiða- merkurjökul og Hornafjarðarjökla. Þá hafa erlendir samstarfsaðilar kortlagt megnið af Langjökli. Margvísleg hagnýting Litið er á verkefnið sem fram- lag til alþjóðlegra rannsókna á jökla- breytingum vegna hnattrænnar hlýnunar. Þá eru nákvæm kort nauðsynleg til þess að meta rennsl- isleiðir vatns og vatnasvið á jöklum. Einnig eru kortin mikilvæg til rann- sókna á framhlaupum jökla og á landlyftingu vegna minnkandi jök- ulfargs og þau veita upplýsingar um eðli ísflæðis og flæði jökla yfir botn- landslag. Loks má nefna að á síðustu ára- tugum hafa ferðalög almennings um jökla aukist mjög og því er mik- ilvægt að bæði ferðafólk og ekki síst björgunarsveitir hafi aðgang að ná- kvæmum kortum af jöklum. Eyjafjallajökull Askjan á toppi jökulsins sést vel og gígarnir sem gaus úr í vor innan hennar. Einnig sést hraunstraumurinn til norðurs niður Gíg- jökul og farvegir jökulhlaupa til suðurs og norðurs. 16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ ÖgmundurJónassonhefur brugðist harka- lega til varnar fyrir ráðningu sína á manni sem verið hefur aðstoðarmaður tveggja af ráðherrum vinstri grænna í stöðu skrifstofu- stjóra. Ögmundur hefur með- al annars bent á að eðlilegt sé að ráðherra hafi ráðning- arvaldið, enda þurfi stjórn- málamenn að standa öðrum skil gerða sinna. Þetta er út af fyrir sig rétt hjá Ögmundi og þeir sem hafa uppi kröfu um aukið lýð- ræði og aðhald að stjórnsýsl- unni ættu fremur að vilja að ráðherrar skipi í stöður en ósýnilegar nefndir eða ráð sem enga ábyrgð bera. Fleira skiptir hins vegar máli í þessu sambandi. Nefna má að ríkisstjórninni hefur tekist þannig til við manna- ráðningar að nú er svo komið að allar ráðningar hennar eru tortryggðar. Misbeiting ráð- herra núverandi ríkisstjórnar á valdi sínu hefur verið slík að engum dettur lengur í hug að eðlileg sjónarmið ráði við veitingar embætta. Meðal annars þess vegna vakna spurningar þegar ann- ar umsækjandi um fyrrnefnda skrifstofustjórastöðu, sem að öllu leyti virðist hæfur, kvart- ar yfir því að hafa ekki einu sinni verið boð- aður í viðtal. Hvernig stendur á því að Ögmundur sá ekki ástæðu til að boða viðkom- andi umsækjanda í viðtal? Annað sem máli skiptir í þessu sambandi er að rík- isstjórnin hefur sagst vilja fylgja allt annarri stefnu en Ögmundur lýsir. Rík- isstjórnin lætur sem hún ætli að fara einhverjar allt aðrar leiðir við mannaráðningar eða skipanir í embætti og hefur sett á fót nefndir til slíkra verka. Eftir misbeitingu Árna Páls Árnasonar, þáverandi fé- lagsmálaráðherra, í sambandi við ráðningu hjá Íbúðalána- sjóði hefur til að mynda verið skipuð ráðningarnefnd til að freista þess að leysa vandann sem misbeitingin skapaði. Og nú hefur ríkisstjórnin auglýst eina slíka nefnd vegna skip- unar ráðuneytisstjóra í nýju velferðarráðuneyti. Eftir það sem á undan er gengið er rík- isstjórnin sannfærð um að án slíkrar nefndar treysti enginn þeirri stöðuveitingu. Orð og gjörðir ríkisstjórn- arinnar eru þannig út og suð- ur í þessum efnum. Á meðan hefur almenningur ekki við neitt annað að miða en reynsluna. Og hún er ekki góð. Ráðherrar hafa ítrekað misbeitt valdi sínu við mannaráðningar} Slæm reynsla af mannaráðningum FramgangaBaugs- miðlanna og þjón- ustan við ríkis- stjórnarflokkana virðist ekki eiga sér nein takmörk. Hver skyldi skýr- ingin vera á því? Eftir að ríkis- stjórnin mætti daginn eftir úti- fundinn mikla tómhent á fund sem hún sjálf hafði boðað með stjórnarandstöðunni hafa þessir miðlar spunnið ótt og títt um mætingarleysi Sjálfstæðisflokksins! Ekki um hina tómhentu forystu ríkisstjórnarinnar. Ekki um gagnslausa sýndarfundi um viðfangsefni sem hafa verið til staðar í tæp tvö ár. Ekki um yfirlýsingar formanna stjórn- arflokkanna um að meira megi ekki gera fyrir skuldugt fólk, sem þeir kenndu AGS um en voru þeirra eigin yfirlýsingar og fyrirheit til AGS. Og þegar sömu forystumenn engjast undan málefnalegri gagnrýni, þá er birt furðufrétt á forsíðu Baugsfrétta um að sérstakur hefndarhópur sem fjármálaráðherr- ann hafi á launum í ráðuneyti sínu sé að leita leiða til að koma fjárhagslegu höggi á andstæð- inga ráðherrans. Þetta siðlausa samspil rík- isstjórnarforkólfanna og Baugsmiðlanna hræðir ekki nokkurn mann. En það er býsna athyglisvert. Mönnum er enn í minni hin skaðvænlega framganga Baugsmiðla á ár- unum 2005-2009, sem hjálpaði þeim sem rústuðu efnahag Ís- lands að komast upp með það. En þá var samstarf um þau skemmdarverk aðeins bundið við annan þáverandi stjórnar- flokk. Nú er það við þá báða. Þá var hægt að láta eins og menn vissu ekki við hvers kon- ar pappíra væri að eiga en nú vita það allir og um hinn óg- urlega skaða sem þeir bera meginábyrgð á. Því vekur þetta samspil nú ekki aðeins furðu heldur beina fordæm- ingu. Náið samstarf Baugsliðsins og rík- isstjórnarflokkanna er býsna ónotalegt fyrir þjóðina} Sækjast sér um líkir A thyglisverð úttekt var í DV í upp- hafi mánaðar þar sem farið var yfir það hvað veldur því að mun algengara er að nauðgunarmál séu felld niður en að gefin sé út ákæra. Á síðasta ári voru 66% nauðgunarmála felld niður hjá ríkissaksóknara. Í ofanálag er vitað mál að stór hluti þolenda kynferðisofbeldis leitar aldrei til lögreglu. Þetta þýðir að í yfirgnæfandi meirihluta nauðgunarmála nær réttlætið aldrei fram að ganga og flestir nauðgarar þurfa aldrei að taka ábyrgð á gjörðum sínum. Því er eðlilegt að vera vakandi yfir því hvort eitthvað megi betur fara, því þótt ljóst sé að nauðgunarmál eru flókin og sönnunarstaða erfið hafa samt miklar framfarir orðið síðustu ár og áratugi til að bæta réttarstöðu og viðhorf til þol- enda kynferðisofbeldis og ekki fráleitt að vona að við séum enn á þeirri vegferð miðri. T.d. er ekki langt síðan sjálfsagt þótti að karlar gætu komið fram vilja sínum gagnvart konum nánast hvenær sem er óháð samþykki þeirra. Það má gefa sér að í gegnum söguna hafi fjölmargar konur upplifað nauðgun án þess að kunna endilega að koma því í orð eða vekja athygli á því, slíkt var einfaldlega hlutskipti kvenna í þessum heimi. Í dag á hins vegar að heita að konur búi við kynfrelsi og í þessu nýfengna frelsi felst að konur mega stunda kynlíf þegar þær vilja en líka hafna kynlífi þegar þær vilja það ekki. Þetta með vilja kvenna er samt ennþá eitthvað á gráu svæði. Allavega virðast lögin telja að ganga megi að því vísu að konur vilji alltaf fá karla upp á sig nema þær taki annað sérstaklega fram og það helst með sem háværustum hætti. Samkvæmt íslenskum lögum skiptir ásetningur nefnilega meira máli verknaðurinn sjálfur. Þannig virðist ekki nægja að þolandinn upplifi nauðgun, það telst samt ekki vera nauðgun nema gerandinn hafi ætlað sér að nauðga. Og til þess að gerandinn átti sig á því að hann sé að nauðga þarf þolandinn að segja hon- um það. Þessu lýsir Valtýr Sigurðsson rík- issaksóknari svona í viðtali DV: „Gerandinn verð- ur að vita að hann sé að brjóta gegn henni þegar hann framkvæmir þetta. Það er ekki nægjanlegt til sakfellingar að viðhafa algjört passívitet. Slíkt er ekki skilgreint sem mótmæli.“ Við þekkjum það öll að siðferðiskennd er misjöfn og skilningur manna á því hvernig þeir geti leyft sér að koma fram við annað fólk ólíkur. Þess vegna setjum við lagaramma utan um hvaða hegðun er samþykkt og hver ekki. Í ólöglærðum eyrum mínum hljómar það sérkennilega að láta skynjun glæpamannsins sjálfs á eigin framferði ráða mestu um það hvort það teljist glæpsamlegt eða ekki og að þolandinn þurfi að sanna að hann hafi ekki viljað láta brjóta á sér. Eða þarf maður sem mætir öðrum á förnum vegi að æpa „ég vil ekki að þú meiðir mig!“ í vitna viðurvist til að ljóst megi vera að hann vilji sennilega ekki láta kýla sig í andlitið? Kannski er þetta eitt af því sem þarf að skoða og breyta í stað þess að yppa öxlum og láta eins og það sé ekk- ert við því að gera að tugum kvenna sé nauðgað á Íslandi á hverju ári án þess að refsað sé fyrir það una@mbl.is Una Sighvatsdóttir Pistill Meðvitað og ómeðvitað ofbeldi STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Margir koma að jöklamælinga- verkefninu og er heildarkostn- aður við það sem af er um 40 milljónir króna. Tómas Jóhann- esson segir það ráðast af fjár- magni hvenær verkefninu lýk- ur, en það hafi notið velvilja. Mælingarnar eru skipulagð- ar af Veðurstofunni og Jarð- vísindastofnun HÍ, með stuðn- ingi Landmælinga Íslands, Rannsóknasjóðs Rannís, Orku- rannsóknasjóðs Landsvirkj- unar, Umhverfis- og orkurannsóknarsjóðs Orku- veitu Reykjavíkur og Vega- gerðarinnar. Sjálfar mælingarnar eru gerðar af þýska landmælinga- fyrirtækinu TopScan. Auk þessara aðila hafa erlendir að- ilar komið að verkinu og ný- lega fékkst vilyrði fyrir stuðn- ingi frá Loftslags- og lofthjúpssjóði Norrænu ráð- herranefndarinnar næstu þrjú árin. Kostnaður nú 40 milljónir MARGIR KOMA AÐ MÁLI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.