Morgunblaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 26
26 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010 Sudoku Frumstig 4 9 3 8 2 9 1 5 1 8 7 4 9 5 3 2 3 9 4 7 1 7 8 9 5 2 1 5 2 4 3 4 1 2 4 8 7 9 3 9 8 1 5 8 9 7 5 4 3 9 1 3 2 7 8 4 1 8 5 6 8 3 9 5 9 7 4 5 4 8 2 3 1 5 6 3 5 4 9 7 6 2 1 8 6 2 7 5 1 8 4 3 9 9 1 8 2 4 3 5 7 6 8 9 3 4 2 7 6 5 1 7 4 5 6 3 1 9 8 2 2 6 1 8 5 9 7 4 3 1 7 6 3 9 5 8 2 4 5 8 2 1 6 4 3 9 7 4 3 9 7 8 2 1 6 5 6 5 9 8 1 7 4 2 3 7 8 1 4 2 3 5 6 9 4 3 2 6 5 9 7 1 8 2 1 8 5 7 4 9 3 6 3 4 7 9 8 6 2 5 1 5 9 6 1 3 2 8 7 4 1 7 3 2 9 8 6 4 5 8 2 4 3 6 5 1 9 7 9 6 5 7 4 1 3 8 2 8 4 2 5 9 6 1 3 7 6 5 3 1 7 8 2 4 9 9 7 1 3 2 4 5 6 8 2 8 5 6 1 9 4 7 3 1 3 9 4 5 7 8 2 6 7 6 4 2 8 3 9 5 1 3 1 8 7 4 5 6 9 2 4 9 7 8 6 2 3 1 5 5 2 6 9 3 1 7 8 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er miðvikudagur 13. október, 286. dagur ársins 2010 Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrni- runni. (Lúkas 6, 44.) Víkverji hefur oft velt því fyrir sérhvernig farið er að því að leggja mat á mannfjölda. Hvernig vita menn hvað margir fara í bæinn á Menning- arnótt í Reykjavík eða sækja Fiski- daginn á Dalvík? Og vitaskuld er það ávallt þannig að fleiri sóttu viðburð- inn þetta árið en árið á undan. Efa- semdir Víkverja um þessi vísindi minnkuðu ekki þegar hann las fréttir af mótmælum vegna niðurskurðar í Frakklandi í gær. Yfirskriftin var að þetta væru mestu mótmælin til þessa vegna áforma franskra stjórnvalda um að skera niður. Hvað mótmæltu margir? Það fer eftir því hver taldi. Stéttarfélögin sögðu að 3,5 milljónir manna hefðu tekið þátt í mótmæl- unum, en lögreglan taldi bara 1,23 milljónir manna. Víkverji dagsins verður seint sagður talnaglöggur, en hann er samt nokkuð viss um að þessi munur sé utan skekkjumarka. Þá er ekki laust við að hjá Víkverja vakni grunur um tölulega hlut- drægni. Getur það verið tilviljun að stéttarfélögin, sem boðuðu til mót- mælanna, skuli nefna hærri tölu en lögreglan? x x x Víkverji heyrði um daginn brand-arann um auðmanninn, sem lá banaleguna og grátbað guð um að fá að taka með sér eitthvað af auð- æfunum, sem hann hafði stritað við að afla sér. Guð sagði honum að regl- an væri sú að ekki mætti taka neitt með sér til himnaríkis. Þegar mað- urinn lét ekki segjast féllst guð með semingi á að leyfa honum að taka með sér eina ferðatösku. Maðurinn fyllti þegar eina tösku af gull- stöngum. Skömmu síðar dó mað- urinn og rogaðist með töskuna til himna. Þar tók Lykla-Pétur á móti honum og ætlaði að banna honum að taka töskuna með sér. Maðurinn sagði þá frá samkomulaginu við guð. Lykla-Pétur fór inn fyrir gullna hlið- ið til að fá þetta staðfest og kom svo aftur, sagði að þetta væri rétt, en hann yrði að fá að skoða í töskuna. Maðurinn opnaði töskuna. Lykla- Pétur leit í hana, rak upp stór augu og hrópaði upp yfir sig: „Hann tók með sér gangstéttarhellur!“ víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 ákvarða, 8 lýkur, 9 slæmur, 10 kraftur, 11 land, 13 sló, 15 feiti, 18 él, 21 húsdýr, 22 þurfaling, 23 erf- ið, 24 frosthörkurnar. Lóðrétt | 2 örskotsstund, 3 hreinan, 4 mannsnafn, 5 lít- ils báts, 6 heylaupur, 7 karl- dýr, 12 gagnleg, 14 for, 15 Ísland, 16 klampana, 17 rifa, 18 alda, 19 sjúkdómur, 20 gagnmerk. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 hlass, 4 fimma, 7 líður, 8 gamms, 9 tel, 11 anna, 13 saur, 14 fæddi, 15 sómi, 17 fall, 20 orf, 22 getur, 23 orkan, 24 regni, 25 korða. Lóðrétt: 1 helja, 2 arðan, 3 sárt, 4 fugl, 5 mamma, 6 ansar, 10 eldur, 12 afi, 13 Sif, 15 sægur, 16 mótin, 18 akkur, 19 lynda, 20 orri, 21 fork. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. c3 Rf6 3. e5 Rd5 4. d4 cxd4 5. Rf3 e6 6. cxd4 b6 7. Rc3 Rxc3 8. bxc3 Dc7 9. Bb2 Bb7 10. Be2 d6 11. 0-0 Rd7 12. exd6 Bxd6 13. Dd3 Rf6 14. Hfe1 0-0 15. h3 Be4 16. Db5 a6 17. Db3 b5 18. a4 Bd5 19. Dc2 Bc4 20. Ba3 Bxa3 21. Hxa3 Bxe2 22. Dxe2 Rd5 23. Dd3 De7 24. Haa1 Hac8 25. axb5 Hxc3 26. De2 axb5 27. Dxb5 h6 Staðan kom upp í kvennaflokki Ól- ympíuskákmótsins sem er nýlokið í Khanty-Mansiysk í Síberíu í Rúss- landi. Hallgerður Helga Þorsteins- dóttir (1.995) hafði hvítt gegn hinni ensku Ingrid Lauterbach (2.169) en hún lék herfilega af sér í síðasta leik. 28. Dxd5! Db4 29. Da5 hvítur er nú einfaldlega manni yfir og innbyrti vinninginn nokkru síðar. Hallgerður, eins og allt íslenska kvennaliðið, stóð sig með mikilli prýði á mótinu. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Rosenblum. Norður ♠K10642 ♥10743 ♦32 ♣82 Vestur Austur ♠D753 ♠G98 ♥DG62 ♥K95 ♦DG4 ♦1076 ♣DG ♣10765 Suður ♠Á ♥Á8 ♦ÁK985 ♣ÁK843 Suður spilar 5♣. Fyrsta opna heimsmeistaramótið fór fram árið 1962 og var þá að mestu ein- skorðað við tvímenning. Á mótinu sem nú stendur yfir í Philadelfíuborg í Bandaríkjunum eru keppnisgrein- arnar orðnar tíu. Ein mikilvægasta greinin er vafalítið Rosenblum- sveitakeppnin, sem fyrst var tekin upp árið 1978. Úrslitaleikurinn í Philadelfíu klárast í dag, en mótið hófst fyrir rúmri viku með þátttöku 145 sveita. Til að byrja með var spilað í riðlum, síðan héldu 64 sveitir áfram í lengi útslátt- arleiki. Spilið að ofan er frá riðlakeppninni. Það er athyglisvert fyrir þær sakir að 5♣ vinnast, en ekki 5♦, þó svo að tíg- ullinn liggi betur. Sagnhafi fríar tíg- ulinn með stungu og kemst um leið inn í borð til að taka á ♠K. Gefur bara tvo slagi á lauf. 13. október 1952 Veturliði Gunnarsson listmál- ari vísaði listfræðingi út af sýningu í Listamannaskálan- um. „Einsdæmi í sögu Reykja- víkur,“ sagði Þjóðviljinn. „Feikileg aðsókn“ var að þess- ari fyrstu einkasýningu Vet- urliða að sögn Morgunblaðs- ins, á fimmta þúsund manns, og 74 myndir voru seldar. 13. október 1987 Kýr synti yfir Önundarfjörð, frá Flateyri að Kirkjubóli í Valþjófsdal. Hún hafði verið leidd til slátrunar en reif sig lausa og lagðist til sunds. Kýr- in hét Harpa en eftir afrekið var hún kölluð Sæunn. 13. október 1992 Haukur Morthens söngvari lést, 68 ára. Hann var einn ást- sælasti dægurlagasöngvari þjóðarinnar í nær hálfa öld. 13. október 2001 Aðalfundur Læknafélags Ís- lands staðfesti sameiginlega yfirlýsingu félagsins, Land- læknisembættisins og Ís- lenskrar erfðagreiningar um Gagnagrunn á heilbrigðis- sviði. Þar með voru settar nið- ur deilur sem staðið höfðu á fjórða ár. 13. október 2007 Þorvaldur V. Þórsson gekk á tind Heklu og lauk við að ganga á hundrað hæstu tinda landsins á árinu. „Þetta hefur verið langt og strangt,“ sagði Þorvaldur í samtali við Morg- unblaðið, en hann varð fimm- tugur nokkrum dögum síðar. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… „Ég fór með börnunum út að borða og í bíó á laug- ardaginn. Það var eitthvað afmælistengt,“ segir Steinunn J. Kristjánsdóttir, fornleifafræðingur og dósent við Háskóla Íslands. Hún verður 45 ára í dag. Börnin á heimilinu eru bæði komin yfir tví- tugt, Sigurhjörtur Snorrason sálfræðinemi og Helga Valgerður Snorradóttir nemi í hjúkrunar- fræði. Steinunn segist ekki vön því að halda af- mælisveislur. „Það bíður þess að ég verði eldri, ég er farin að safna kröftum í fimmtíu,“ segir hún. Steinunn stjórnar fornleifarannsóknum á Skriðuklaustri. Hún hefur verið við uppgröft þar í níu sumur og reiknar með að næsta sumar verði það síðasta, í þessari lotu að minnsta kosti. „Það væri nær að halda upp á tíu ára afmælið,“ segir Steinunn. „Það er varla að ég trúi því að það séu að verða komin tíu ár, tíminn flýgur svo hratt.“ Hún er að vinna úr gögnum sem safnað var í sumar. Margt merkra muna hefur fundist við rannsóknina enda er þetta í fyrsta skipti sem heilt klaustur og um leið spítali er grafið upp hér á landi. „Þetta er mikilvæg viðbót við þá þekkingu sem við höfum frá þessum tíma,“ segir Steinunn. helgi@mbl.is Steinunn J. Kristjánsdóttir 45 ára í dag Nær að fagna rannsókninni Flóðogfjara 13. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 3.36 0,9 10.04 3,6 16.23 1,1 22.30 3,1 8.13 18.17 Ísafjörður 5.38 0,6 12.01 2,0 18.35 0,6 8.23 18.16 Siglufjörður 2.20 1,2 7.59 0,5 14.20 1,3 20.39 0,4 8.06 17.59 Djúpivogur 0.34 0,6 6.58 2,1 13.25 0,8 19.04 1,8 7.43 17.45 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það er óþarfi að ríghalda í hluti, sem þú hefur litla eða enga þörf fyrir. Reyndu að læra sem mest af sem flestum, það er gott veganesti út í lífið. (20. apríl - 20. maí)  Naut Samtal við einhvern þér eldri og vitrari getur orðið þér lærdómsríkt. Hlustaðu á vandamál vinar og gefðu honum tíma. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það kallar á heilmikið skipulag þeg- ar margt liggur fyrir bæði í starfi og utan þess. Notaðu hæfileika þína til að draga lífs- förunaut þinn út á dansgólfið. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Allt sem tengist athafnasemi og fé- lagsstörfum með vinum gengur vel á næstu vikum. Leitaðu að innblæstri innra með þér. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Dagurinn í dag er ákjósanlegur fyrir endurbætur á heimilinu. Stundum þarf að vinna hlutina og þá getur útkoman orðið önn- ur en lagt er upp með. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú ert umkringd/ur tækifærum. Leggðu þig fram um að bæta samskiptin því maður er manns gaman. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Óvænt heimsókn færir þér upp í hend- urnar tækifæri til þess að gera upp gamlar deilur. Kannski ertu að eyða tíma í eitthvað sem þér er sama um. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Maður getur alltaf á sig blómum bætt. Þú mátt alls ekki deila hugmyndum þínum með neinum sem gætti eyðilegt þær. Gerðu það sem þig hefur alltaf langað til. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það er á hversdagslegu stöð- unum sem þinn innri maður kemur í ljós. Vertu á rómantísku vaktinni í kvöld, ást- arsamband bíður handan við hornið. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það er erfitt að gera svo öllum líki og reyndar er það sjaldan besti kosturinn. Þú gætir gengið of harkalega fram. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það er ýmislegt á seyði í kringum þig, en þolinmæðin þrautir vinnur allar. Farðu í bankann og gakktu frá þínum málum. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Því lengur sem þú slærð hlutunum á frest, því erfiðara er að koma sér að verki. En hálfnað er verk þá hafið er og vilji er allt sem þarf til þess að þú náir árangri. Stjörnuspá Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.