Morgunblaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 13.10.2010, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010 Þá er ógetið myndlistarmannsins, sem árum saman teiknaði myndir af nemendum og kennurum í minninga- bók skólans. Þær voru vel færðar í skoplegan stíl en gáfu oft eins skýra mynd af einstaklingi og ljósmynd á skólaspjaldi. Þátttaka Harðar í fé- lagslífi nemenda og hlý og ljúfmann- leg samskipti hans við þá var sterkur þáttur í sköpun notalegs andrúms- lofts í skólanum sem nemendur muna eftir með gleði og treyst hefur bönd þeirra við hann. Við hjónin þökkum ánægjustundir þegar Hörður leit inn og spjallaði á léttum nótum. Hann var víða heima og skemmtilegur í viðræðu og ekki var síður gaman er fundum bar sam- an við hann og Stellu æskuvinkonu hans. Við sendum Stellu og bræðrunum, Eiríki og Pétri, einlægar samúðar- kveðjur. Snorri Þorsteinsson. Hörður Haraldsson yfirkennari var fyrir löngu orðinn einn þekktasti og vinsælasti starfsmaður Samvinnu- skólans þegar við hjónin settumst að á Bifröst. Hann tók okkur vel, um- burðarlyndur, hæglátur og fyrirferð- arlaus. Hann tók börnum okkar mjög vel enda barngóður. Brátt mynduðust góð vinatengsl milli okkar og þau héldust æ síðan. Hörður sinnti kennslu sinni af alúð og mótaði hana með eigin kennsluheftum. Hann var mjög vinsæll meðal nemenda enda samviskusamur, hlýr og vinsamlegur við alla. Hörður tók virkan þátt í félagslíf- inu á skólasetrinu þótt hann tranaði sér aldrei fram í hæversku sinni. Það munaði um hann þegar hann greip banjóið á skemmtunum og þegar keppt var í badminton enda afreks- maður í íþróttum. Hörður var list- rænn og teiknaði og málaði af miklu listfengi. Hann hafði lifandi kímni- gáfu og teiknaði frábærar skopmynd- ir af öllum árgöngum nemenda og starfsmanna Samvinnuskólans um langt árabil. Þessar myndir eiga nem- endurnir í árbókinni Ecce Homo og taka þær fram sér til gamans og yndis þegar minnst er liðinna gleðidaga. Meðal annars málaði Hörður stór- fenglegar skopmyndir af okkur hjón- unum sem prýða vegg á heimili okk- ar. Um langt árabil var öryggi og festa um alla starfsemi og kennslu í Sam- vinnuskólanum á Bifröst. Þessu kunni Hörður vel og hafði mótað störf sín í fastan farveg. Að því kom að þessu ör- yggi var raskað og skólinn hóf djúp- tækar breytingar á námsefni, kennsluskipan og stöðu í skólakerf- inu. Um þetta var rætt í bróðerni og hreinskilni við Hörð eins og aðra starfsmenn skólans. Hörður tók sér umhugsunartíma, en kom aftur innan tíðar og sagði: Ég sé að þessar breyt- ingar eru tímabærar og óhjákvæmi- legar og ég sé líka að það verður skemmtilegt að ganga út í þetta og fá að vera með í þessu. Hörður var með á nótunum um þróun og nýjungar, áhugasamur og jákvæður. Hann umbylti eigin kennsluháttum, verkefnum og kennsluefni, og eftir nokkra mánuði var hann líka tekinn að leiðbeina öðr- um um notkun tölvu og forrita. Hann var bráðgáfaður maður og samvisku- samur. Og í öllu hæglæti sínu og hóg- værð var hann mjög metnaðarfullur fyrir hönd nemendanna og skólans. Hörður var oft samferðamaður okkar hjóna, í sameiginlegum ferðum starfsmanna, á sérstökum skólafund- um í nágrannalöndum, og um skeið dvaldist hann á heimili okkar þegar við bjuggum í San Diego í Kaliforníu. Hann var skemmtilegur ferðafélagi, hafði góða nærveru og þægilegur í öllu samneyti. Hann var athugull og hugsandi maður, en menn þurftu fyrst að ná góðum persónulegum tengslum við hann áður en hann færi að opna hug sinn. En að því fengnu áttum við iðulega skemmtileg og fróð- leg samtöl við Hörð og fengum að kynnast því valmenni sem hann var. Við andlát Harðar Haraldssonar kvikna margar góðar endurminning- ar. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að eiga hann að vini. Að lokum sendum við aðstandendum hans inni- legar samúðarkveðjur. Jón og Sigrún. ✝ Margrét SigríðurEinarsdóttir var fædd 21. mars 1930 í Laufási, Miðnes- hreppi. Hún lést á líknardeild Landspít- alans 3. október 2010. Foreldrar hennar voru hjónin Einar Gestsson vél- stjóri, f. 20. nóv- ember 1898, d. 20. febrúar 1990, og Val- gerður Guðrún Gísla- dóttir verkakona, f. 11. desember 1886, d. 23. júní 1980. Bróðir Margrétar: Gestur Hans Einarsson, f. 31. júlí 1928, d. 8. janúar 2000. Margrét gifti sig 3. júní 1958, Ármanni Jónssyni sjómanni, f. 27. ágúst 1928. Foreldrar hans Sigríð- ur Ingibergsdóttir, f. 31. maí 1911, d. 29. janúar 2002, og Jón Finn- bogi Bjarnason, f. 28. febrúar 1886, d. 9. júní 1952. Börn þeirra eru: 1) Haukur, f. 15. sept. 1955. Sambýliskona hans Þórey Að- alsteinsdóttir, f. 29. mars 1946. 2) Valgarð, f. 16. feb. 1958. Kona hans Elínborg Þorsteinsdóttir, f. 1. feb. 1960, þau skildu, börn: a) Þor- steinn Víðir, f. 29. maí 1983, d. 6. júlí 2005, b) Margrét, f. 31. júlí 1986, c) Einar Ármann, f. 28. maí 1992. 3) Guðbjörn, f. 12. júlí 1963. Kona hans Stefanía Ást- valdsdóttir, f. 28. feb. 1964, börn þeirra: a) Birkir Már, f. 2. mars 1991, og Guðrún María, f. 11. nóv. 1993. Sonur Stefaníu Ástvaldur Helgi Gylfason, f. 12. maí 1984. 4) Einar Bergur, f. 6. júlí 1970, d. 30. ágúst 1992. Margrét og Ármann skildu. Margrét vann sinn starfsaldur mikið við saumaskap. Vann hún m.a. hjá Belgjagerðinni, Últíma, Saumsprettunni og Saumnálinni sem hún rak ásamt Elínborgu tengdadóttur sinni. Margrét vann úti eins lengi og starfsþrek entist. En hún liðsinnti vinkonum og vin- um sínum við lagfæringar heima við. Útför Margrétar fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 13. október 2010, og hefst athöfnin kl. 13. Skrítið þegar einn fastur punktur tilverunnar hverfur fyrir fullt og allt. Ekki hægt að hringja og heyra í henni hljóðið. Ekki hægt að spyrja hana ráða, ræða þjóðmálin, rifja upp sög- una. Nú er enginn til að taka á móti mér og mínum í Fannborginni. Nei, nú er allt slíkt að baki. Mamma ólst upp við allt annað þjóðfélag en við höfum fyrir framan okkur í dag. Hún ólst upp í Reykjavík í skugga síðari heimsstyrjaldarinnar. Frásagnir hennar af loftvarnaræfingum og nauðsyn þess að sýna vegabréf tólf ára gömul til að komast leiðar sinnar um Hvalfjörð sýndi það umhverfi sem hún ólst upp við. Ekki hafði hennar fjölskylda mikið umleikis. Þetta upp- eldi markaði hana ætíð þar sem nýtni og sparnaður var henni í blóð borinn. Hún var fulltrúi kynslóðar sem lifði gífurlegar breytingar. Hún stundaði nám við héraðsskól- ann í Reykholti árin 1947-1949. Þar myndaði hún vináttubönd sem áttu eftir að endast henni ævilangt. Iðu- lega var hægt að greina blik í auga og bros á vör þegar hún rifjaði upp dvöl- ina í skólanum. Þaðan átti hún minn- ingar sem voru henni mjög kærkomn- ar. Hún átti mikil tengsl við heimilisfólkið á Giljum í Hálsasveit, en þar var hún nokkur sumur sem matráðskona. Þar var hún í essinu sínu, ræða landsins gagn og nauð- synjar, grassprettu, mannlífið á næstu bæjum, veðurspána fyrir morgundaginn og svo margt fleira við bændurna og nágranna. Hún undi sér vel í sveitinni. Hennar tungutak má segja að hafi markast af þessu, því þegar eitt barnabarn hennar fæddist og hún sá háralitinn á sveinbarninu, þá heyrðist í henni: „Hann er jarpur um hárið“. Sem var alveg hárréttur hárlitur, en ekki í takt við það hvernig við malbiksfólkið lýsum því sama. Í gegnum árin má segja að hún var allt- af mikil dreifbýlismanneskja í huga, hafði mikla ánægju af hverskonar ferðalögum, væri það innan hennar áhugasviðs. Hjá henni var mikill al- mennur áhugi á landi og þjóð. Birtist hann í ættfræði- og þjóðfélagsáhuga. Hún var sérlega ættfróð, bæði um sína fjölskyldu sem og sína samferða- menn. Kvað svo rammt að þessu að oft kom það fyrir að ekki var hægt að hlusta á sjónvarpsfréttirnar þar sem hún var jafnan í óða önn að rekja ætt- ar- og fjölskyldusögu þeirra sem á skjánum birtust. Hún var alla tíð nægjusöm, var ekkert sérstaklega vel við mikið umstang. Sú ákvörðun fyrir nokkrum árum að fá sér stórt sjón- varp þegar sjónin fór að daprast var mikill áfangi. Nauðsynlegt var að taka undir með henni, hún væri vel að því kominn að fá sér slíkt tæki. Það var ekki í hennar fasi að veita sér eitt- hvað, nægjusemin var henni í blóð borin. Aðeins viku fyrir andlátið hitti hún öll barnabörn sín á fallegum sól- ríkum sunnudegi. Þar gaf að líta gjaf- vaxta ungmenni, hvert öðru myndar- legra og fyrir endanum sat ættmóðirin og virti fyrir sér sinn auð. Spjallaði og spurðist fyrir um þeirra hagi. Var þetta mikilvæg stund sem gaf niðjum hennar dýrmæta minn- ingu um góða móður og ömmu. Þinn sonur, Guðbjörn. Elsku Margrét. Mikið óskaplega er ég döpur. Ég hefði viljað hafa þig hjá okkur mikið lengur. En um þetta fáum við ekki að ráða neinu. En mikið rosalega er ég heppin að hafa kynnst þér og að hafa haft þig í lífi mínu í 21 ár. Ég kom inn í fjölskylduna þegar sonur þinn fór til Eyja að vinna í stuttan tíma en sá tími varð aðeins lengri, því ég nældi í hann á meðan á dvölinni í Eyjum stóð og erum við þar enn. Það var alltaf jafn gott að koma til þín í Kópavoginn. Við vorum alltaf velkomin þar. Hvort sem við vorum ein á ferð eða með krakkana þá var bara lagst í flatsæng. Það verður skrítið að fara upp á land núna og ekki hægt að koma í heimsókn til þín í Kópavoginn. Þú hafðir mjög gaman af ættfræði. Drakkst í þig allan fróðleik um fólk. Hverra manna það var og hvaðan það kom, hvort sem það var úr Borgfirsk- um æviskrám, samtíðarmönnum eða séð og heyrt. Þú hafðir gaman af þessu öllu. Þegar við vorum að keyra um landið gast þú sagt okkur hverjir höfðu búið á nánast hverjum bæ eða hverjir tengdust þeim sem við keyrð- um framhjá. Borgarfjörðurinn átti alltaf stóran sess í þínu lífi. Þú varst í Reykholts- skóla á þínum yngri árum og þar kynntist þú þínum bestu vinkonum og hélst sú vinátta alla ævi. Þú réðst þig í sveit sem kaupakona nokkur sumur í Borgarfirðinum. Þar gast þú verið nærri sveitinni þinni sem mótaði þig og þú áttir svo margar góðar minn- ingar frá. Þú vannst alla tíð við saumaskap. Enda eru ófáar flíkurnar sem þú lag- færingar fyrir okkur, vini eða kunn- ingja. Þín verður sárt saknað á jól- unum í ár. Engin amma að koma með flugi eða Herjólfi fyrir jólin, en þér fannst ekkert mál að koma til okkar þó að þú þyrftir að ferðast til okkar í misjöfnu veðri. Elsku Margrét, ég kveð þig með söknuði og takk fyrir allt. Allar stundir okkar hér er mér ljúft að muna. Fyllstu þakkir flyt ég þér fyrir samveruna. (Har. S. Mag.) Þín tengdadóttir, Stefanía. Elsku amma. Leiðinlegt að þú skul- ir vera farin, við eigum eftir að sakna þín. Sakna þess hvað við vorum alltaf velkomin heim til þín. Áttum alltaf húsaskjól þegar við þurftum að skjót- ast í bæinn. Hvað þú varst þolinmóð að kenna okkur að sauma, spila og út- skýra af hverju allir voru að rífast í Leiðarljósi í sjónvarpinu. Það var svo æðislegt þegar við fórum öll fjölskyld- an í bæinn og kúrðum öll saman á stóra svefnsófanum sem þú áttir. Allir leikirnir sem við spiluðum í húsinu þínu, Tinna og Lukku Láka bækurn- ar sem við höfum lesið milljón sinn- um. Alltaf vildum við fara til þín því þú varst alltaf til í að kaupa ís og spólu þegar við komum. Öll jólin sem við áttum saman, eitt árið fékkstu svo fá- ar gjafir og vorum við alls ekki sátt með það, þannig að við bjuggum til extra 10 gjafir svo þú fengir alveg nógu margar næsta ár. Alltaf þegar við gáfum þér bók þá varstu yfirleitt búin með þær áður en þú fórst aftur annan í jólum. Þér fannst alltaf óþarfi að fá fleiri en eina gjöf. Þegar við vor- um beðin um að laga sjónvarpið eða eitthvert heimilistæki sem var búið að vera bilað þurfti yfirleitt ekki meira en að setja á rétta rás eða skipta um stöð á sjónvarpinu. Sama hvað við gerðum, þú varst alltaf jafn stolt af okkur. Þú verður alltaf með okkur í hjarta, elsku amma. Við elskum þig. Þín barnabörn, Birkir Már, Guðrún María og Ástvaldur Helgi. Siðan ég frétti lát Margrétar Ein- arsdóttur hafa minningar frá liðnum dögum sótt fram í hugann og mig langar að minnast hennar í örfáum orðum. Við vorum bekkjarsystur í Reyk- holtsskóla í Borgarfirði á árun- um1947-50. Hún var úr Reykjavík en hafði verið í sveit í Galtarholti í Borg- arhreppi. Magga var hávaxin og myndarleg stúlka með mikið rautt hár. Þetta voru góð unglingsár, líf og fjör og margt brallað bæði í kennslu- stundum og utan eins og gengur í svona hóp. Við vorum í heimavist saman en kynntumst ekki svo náið, vorum ekki í sömu „klíkunni“. En okkar kynni urðu heldur betur meiri nokkrum árum síðar þegar við fimm bekkjarsystur frá Reykholti, Magga, Didda, Stína, Mæja og ég fór- um að hittast reglulega í saumaklúbb. Það voru góðar stundir. Við vorum skemmtilega ólíkar og umræðuefni og skoðanir á mönnum og málefnum eftir því margbreytileg. Samræðurn- ar urðu býsna fjörugar og jafnvel nokkuð háværar stundum. En aldrei slettist upp á vinskapinn og ekki hafð- ur fundur nema allar gætu mætt. Við áttum allar tengsl við Borgar- fjörðinn og ræddum um fólk og fréttir þaðan. Þá voru fréttir af skólasystkinum okkar kærkomið umtalsefni og stund- um fengu útvaldar fyrrum skólasyst- ur að koma í heimsókn til okkar. Samtals áttum við 21 barn og fylgd- umst með þeim frá vöggu til fullorð- insára. Hjá okkur eins og flestum skiptust á skin og skúrir. Sárast í end- urminningunni er þegar Magga missti Einar, son sinn, af slysförum. Margrét var æðrulaus og stillt kona en mikið fundum við til með henni þá. Við vönduðum okkur svolítið með veitingarnar. Nýjar spennandi upp- skriftir voru gjarnan prófaðar á saumaklúbbskonunum. Við saumuðum og prjónuðum heil ósköp. Magga var aðalsaumakonan. Hún gaf okkur góð ráð og leiðbein- ingar og saumaði á okkur dragtir og buxur. Hún var ótrúlega útsjónarsöm í sambandi við viðgerðir og breyting- ar á fötum, enda starfaði hún við það árum saman. Sökum meiðsla í hné átti Magga erfitt um gang. Hún fékk sér því snemma bíl og var lengi vel sú eina sem gat ekið. Við hinar nutum heldur betur góðs af því. Við hittumst aðeins yfir vetrartím- ann. Magga fór mörg sumur að Gilj- um í Hálsasveit og gerðist ráðskona hjá bræðrum Mæju. Hún var engu minni Borgfirðingur en við hinar þó að hún væri ekki ættuð þaðan. Við áttum saman þennan góða fé- lagsskap í rúm 40 ár. En hann fékk snöggan endi. Á rúmu ári gerðist það að ein okkar dó snögglega og aðrar tvær urðu svo ósjálfbjarga að þær gátu ekki verið með okkur meir. Við Magga vorum svo slegnar út að við hittumst sjaldan eftir þetta. Við fór- um í Þórsmerkurferð á yndislegum haustdegi og svo leit ég stundum inn hjá henni á saumastofunni og tafði smástund. Nú er ég ein eftir og söknuðurinn eftir vinkonum mínum leitar á hug- ann. Skyldum við „hittast hinum meg- in?“ Góð og vönduð manneskja er far- in héðan. Ég kveð hana með söknuði og sendi sonum hennar, Hauki, Val- garð og Guðbirni og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Áslaug Eiríksdóttir. Margrét Sigríður Einarsdóttir Í dag hefði elskuleg- ur tengdafaðir minn til tæpra 30 ára orðið 86 ára gamall. Minningarnar hell- ast yfir mig, allar ferðirnar okkar austur í sumarbústaðinn við Grip- deild, á Jökuldalsheiðinni, þar naut hann sín einna best, var kominn heim, fannst honum. Ég kom þar fyrsta skipti sumarið 1982, Sprengisandsleið var valin, hver einasti hóll og hæð hafði sögu að segja, hann var slíkur sögumaður og hafsjór af fróðleik, allt varð myndrænt í hans frásögn. Í Gripdeild var mikið veitt, og Ánavatni líka, það var silungur í hvert mál, Abu reyktur, steiktur, soðinn, gelaður og kaldur í salat. Seinni árin þegar Gunnlaugur og Berta fóru að reskjast, báðu þau okkur að vera sér til halds og trausts, þarna uppfrá, helst á sama tíma og þau. Það var auðsótt mál fyr- ir okkur og börnin okkar elskuðu að vera með þeim, hvort sem var þar eða haustlitaferðir á Þingvöll, nest- isferðir í Öskjuhlíð og Heiðmörk. Eftir að Berta lést var ekki alltaf Gunnlaugur Snædal ✝ Gunnlaugur Snæ-dal fæddist á Ei- ríksstöðum í Jökuldal 13. október 1924. Hann lést í Reykjavík 7. september 2010. Gunnlaugur var jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni 20. sept- ember 2010. farið á hverju ári aust- ur í Gripdeild, en alltaf var sama viðkvæðið hjá Gunnlaugi, „þetta lagast allt í heiðinni“. Þetta er enn mikið notað þegar við erum uppi í Gripdeild. Ég mun sakna ferðanna okkar saman og vil af því tilefni þakka góðar móttökur frá fjöl- skyldunni bæði uppi á dal og á Egilsstöðum. Ég á margt að þakka, blíðuna og ræktarsemina sem þau sýndu mér, þessi virðulegu og ljúfu hjón, tengdaforeldrar mínir. Allt var sjálf- sagt og gamanmálin á hraðbergi, auðsætt var að tilfinningarnar voru tærar og heitar þar á milli. Seinna eftir að Gunnlaugur veikist og flyst á Sóltún, var laugardagur okkar fjölskyldudagur, hann elskaði útigrillað lambakjöt, lambalæri, og nærri allan mat, og naut góðra mál- tíða. Hann bar harm sinn í hljóði eftir að Berta lést, samt gladdist hann og var alltaf jafn þakklátur þegar komið var á Sóltún að sækja hann, bíltúrar upp í Hvalfjörð, á Þingvelli, um Suð- urnesin og fleiri staði. Ég vil þakka starfsfólki Sóltúns fyrir blíða og góða umönnun hans síðustu tæp níu ár. Ég vil að lokum þakka honum samfylgdina. Kveðja, þín tengdadóttir, Sólrún.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.