Morgunblaðið - 13.10.2010, Síða 6

Morgunblaðið - 13.10.2010, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010 Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is Fyrsta stálturnalínan sem lögð var hér á landi, hin svokallaða Sogslína 2 á Hellisheiði, er nú komin til ára sinna og stingur ásýnd hennar marga í augu. Þrátt fyrir háan aldur segir Þórður Guð- mundsson, for- stjóri Lands- nets, enga hættu stafa af mann- virkinu en áætl- að er að það verði rifið á næstunni. „Möstrin voru reist árið 1953 en almennt er reiknað með að eðlileg- ur líftími háspennulína sé 50 til 70 ár og jafnvel lengri,“ segir Þórður og bætir við að áætlað sé að rífa línuna til að rýma fyrir öðrum sem lagðar verða í staðinn. Að- spurður segist hann þó ekki geta tímasett þær framkvæmdir ná- kvæmlega, en þær verði þó í nán- ustu framtíð. Þá segir hann enga hættu skapast af línunni þrátt fyr- ir að hún standi eitthvað lengur. Gömlu línurnar sterkar „Öllum háspennulínum og há- spennumannvirkjum er viðhaldið þannig að af þeim skapast engin hætta. Ég veit að margir hafa tek- ið eftir því að þessi lína virðist vera svolítið ryðguð en styrkur hennar hefur ekki ryðgað. Það er líka þannig að þessar gömlu línur eru sterkar og jafnvel þó að þetta yrði látið óáreitt í langan tíma þá myndi styrkleiki línunnar þola það í mörg ár til við- bótar og hættan af henni yrði ekki neitt sem við þyrftum að hafa áhyggjur af.“ Mála ekki lengur yfir Þórður segist geta skilið að mörgum finnist mannvirkið ljótt en segist þó halda að almenningur horfi meira á þetta út frá því að viðhald og annað slíkt sé við- unandi. „Þetta er skoðað endrum og eins. Við höfum málað tvisvar eða þrisvar áður, en veður og annað á svæðinu er þannig að það gefur sig á nokkrum árum. Í ljósi þess að rífa á línuna fljótlega höfum við ekki séð ástæðu til þess að gera neitt sérstakt í þessu,“ segir Þórð- ur að lokum. Örugg lína þrátt fyrir ófagurt útlit  Verður fljótt fjar- lægð til að rýma fyrir öðrum sem lagðar verða í staðinn Þórður Guðmundsson Morgunblaðið/RAX Gömul Mörgum vegfarendum þykir línan á Hellisheiði ófögur ásýndar. Sogslína 2 » Línan var lögð árið 1953. » Eðlilegur líftími háspennu- lína er 50 til 70 ár, jafnvel lengri. » Ekki liggur fyrir hvenær línan verður fjarlægð, en það verður á næstu árum. „Ég hef viljað skoða málið, en ekki mótað mér sérstaka skoðun á því. Þetta er að mínu mati háð samkomu- lagi við alla hagsmunaaðila og við eigum að láta reyna á það, þannig að við fáum ekki á okkur bótakröfur og endalaus málaferli,“ segir Guðbjart- ur Hannesson, félags- og trygginga- málaráðherra, um hugmyndir varð- andi almenna niðurfærslu á höfuðstóla íbúðalána. Guðbjartur á sæti í samstarfshópi ráðherra sem hefur verið að skoða skuldavanda heimilanna síðustu daga ásamt Hagsmunasamtökum heimilanna, hluta stjórnarandstöðunnar og fleir- um. Áfram verður fundað um vand- ann með hagsmunaaðilum í dag og næstu daga. Ekki nýjar hugmyndir Guðbjartur segir ýmsar leiðir vera til skoðunar, ekki eingöngu þær sem Hagsmunasamtökin hafa sett fram. Samtökin hafi auk þess bent á ýmsar útfærslur sem þurfi ekki að kosta ríkissjóð jafn mikla fjármuni og af hefur verið látið, m.a. með því að láta niðurfærslu lenda meira á þeim sem hafa lánað til Íbúðalánasjóðs, eins og lífeyrissjóðum og bönkum, og verja þannig Íbúðalánasjóð að hluta. „Ef þetta fellur að stærstum hluta á Íbúðalánasjóð er ljóst að það þarf að koma inn með aukið eigið fé, sem þarf nú hvort sem er að hluta. Ef rík- issjóður þarf að leggja út stórar fjár- hæðir í þessu er ljóst að finna þarf peninga fyrir því einhvers staðar annars staðar,“ segir Guðbjartur. Hann segir hugmyndir um niður- færslu höfuðstóls íbúðalána ekki vera nýjar af nálinni, þó að nú sé kannski verið að ræða nýjar út- færslur. Vitað sé um andstöðuna sem uppi hefur verið, eins og frá líf- eyrissjóðunum, um hvernig hægt sé að fjármagna þetta. „Ef hægt er koma málum fyrir með niðurfærslu hjá bönkunum og færa til peninga með þeim hætti er sjálfsagt að nýta þær afskriftir. Þá þarf að liggja fyrir að sú leið sé fær. Þetta er of stórt mál til að afgreiða fyrir fram. Ég tel það einnig skipta miklu máli að hafa svona hugmyndir ekki lifandi endalaust ef leiðirnar eru ófærar. Ef leiðin er fær eigum við að fara hana. Ekki er gott að búast allt- af við einhverju ef ekki er von á því,“ segir Guðbjartur. bjb@mbl.is Til í að skoða niðurfærsluna  Félagsmálaráðherra segir fleiri leiðir koma til greina út úr skuldavanda fólks Morgunblaðið/Golli Skuldavandi Guðbjartur Hann- esson brúnaþungur á þingi. Vegagerðin er með í athugun að setja upp leiðbeiningar og skilti eða jafnvel umferðarljós til að stýra um- ferð um Múlagöng, á milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar, á álagstímum. Um- ferðin tepptist um tíma á sunnudag. Múlagöng eru einbreið með út- skotum og á umferðin til Ólafsfjarð- ar forgang. Mikil umferð hefur verið til Ólafsfjarðar og Siglufjarðar frá því Héðinsfjarðargöng voru opnuð. Hreinn Haraldsson vegamála- stjóri segir að þegar göngin voru hönnuð hafi verið tekið mið af reynslu í öðrum löndum og reiknað með að vandræði gætu orðið þegar meðalumferð færi að nálgast þúsund bíla. Síðan hafi kröfur breyst og nú væri miðað við 300-400 bíla. gegn, ekki síst þegar tveir slíkir mætast. Hann segir ástandið óvið- unandi. „Það þarf að tvöfalda þessi göng svo það sé samræmi. Á meðan það er ekki gert þarf að stýra um- ferðinni,“ segir Sigurður Valur. helgi@mbl.is Á síðasta ári var meðalumferð um veginn 580 bílar á sólarhring. Tvær helgar skáru sig úr. Þannig fóru lið- lega 1.400 bílar þar um einn laug- ardag í júlí og 1.828 bílar daginn fyr- ir Fiskidaginn mikla. Þótt umferðin hafi verið langt yfir því sem gert er ráð fyrir að göngin þoli fékk Vega- gerðin engar kvartanir vegna vand- ræða og lögreglan var ekki kölluð út til að stýra umferð. Hreinn segir þó að vafalaust hafi orðið tafir þá daga sem umferðin var mest. Ekki liggja fyrir tölur um umferðina í ár. Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, segir að miklir umferðarhnútar myndist í Múlagöngum. Tengir hann það sér- staklega stórum bílum sem fara í Hugað að stýringu um- ferðar um Múlagöng  Yfir 1800 bílar fóru vandræðalaust í gegn á Fiskideginum mikla í fyrra Héðinsfjarðargöng Mikil umferð er um jarðgöng á Tröllaskaga. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Ríkisstjórnin samþykkti í gær að leggja fyrir Alþingi frumvarp til breyt- inga á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga. Í breytingunni felst að þeim sem sækja um greiðsluaðlögun verður veittur tímabundinn greiðslufrestur strax og umsókn hefur borist umboðsmanni skuldara, en ekki við samþykkt umsóknar eins og nú er. Þetta á þó ekki við ef um- sókn hefur verið hafnað á síðustu þremur mánuðum. Er þessi breyting gerð vegna mikils álags á embætti umboðsmanns skuldara, en 430 um- sóknir um greiðsluaðlögun hafa borist frá 1. ágúst sl. Guðbjartur Hannesson, félags- og heilbrigðisráðherra, segir að hér sé um mjög mikilvægt mál að ræða til að koma fólki í skjól fyrir kröfum frá lánardrottnum, eins og varðandi gjaldþrotabeiðnir, uppboð eða fjárnám. Greiðslufrestur veittur strax LÖGUM BREYTT UM GREIÐSLUAÐLÖGUN EINSTAKLINGA www.noatun.is FLJÓTLEGT OG GOTT Hafðu það gott með Nóatúni GRILLAÐUR LAMBABÓGUR KR./STK. 1498

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.