Morgunblaðið - 13.10.2010, Page 10

Morgunblaðið - 13.10.2010, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2010 Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is É g leik strák sem heit- ir Flóki og er sonur aðalpersónanna, pabbi minn er bissnesmaður, mamma mín miðill, systir mín unglingur og ég er lítill strákur sem er alltaf úti að leika sér,“ segir Nökkvi beðinn um að segja frá persónunni sem hann leik- ur. Spurður hvernig hann fékk hlutverkið svarar Nökkvi; „Þetta byrjaði með því að ég fór á leiklist- arnámskeið fyrir börn hjá Leynileik- húsinu. Ég gerði það upp á gamanið en svo var hringt í mig og mér boðið að koma í prufu fyrir myndina. Ég fór í prufuna og var í kjölfarið beð- inn um að koma í aðra prufu. En svo var myndinni frestað vegna krepp- unnar og þá hélt ég að ég væri búinn að missa hlutverkið og var ekkert alltof ánægður með það. Ári síðar var hringt í mig og ég beðinn um að koma aftur í prufu og þá var ég val- inn aftur, sem var mjög gaman.“ Nökkvi segir að leiklistarbakt- erían hafi ekki farið að láta á sér kræla fyrr en hann fór á leiklist- arnámskeiðið. „Fyrir kvikmyndina hafði ég ekki leikið í neinu nema skólaleikritum og svo farið á þetta leiklistarnámskeið. Núna langar mig mjög mikið til að verða leikari og ég vonast til að verða það þegar ég verð eldri. Svo fer maður bara bráðum til Hollywood,“ segir hann kankvís. Ekki þrælað út Sumarlandið var tekið upp sum- arið 2009 og segist Nökkvi hafa ver- „Það er mjög erfitt að leika hlátur“ Í íslensku kvikmyndinni Sumarlandinu, sem er nú sýnd í bíóhúsum landsins, má sjá hinn tólf ára Nökkva Helgason taka sín fyrstu skref sem leikara. Nökkva fannst skrítið að sjá sig á hvíta tjaldinu í fyrsta sinn en býst við að birtast þar aft- ur, enda ætlar drengurinn að leggja leiklistina fyrir sig. Sumarlandið Nökkvi Helgason í hlutverki sínu. Hann ætlar að leggja leik- listina fyrir sig og stefnir á Hollywood í framtíðinni. Draugar og álfar Í myndinni segir frá fjölskyldu í Kópavogi sem er í óvenju- legum viðskiptum. Húsmóðirin er miðill og húsbóndinn rekur draugasafn. Hún kallar sig ljósbera og villiljós, hún Alda Jónsdóttir, ung íslensk kona sem er að læra ljósmyndun við Kings- ton University í London. Hún er á þriðja ári og klárar BA- námið sitt í vor. Alda villiljós vinnur með ljósið í sinni fjölbreyttustu mynd og hún heldur úti facebooksíðu (face- book.com/ljosberinnphotography) þar sem hún titlar sig sjónlistamann. Þar er hægt að skoða margar af myndunum hennar, sem eru ýmist í lit eða svarthvítar. Myndirnar eru mjög fjölbreyttar, ýmist úr daglegu lífi, því sem verður á vegi hennar bæði hér heima og úti í Englandi. Til dæmis er þarna að finna skemmti- legar myndir frá pólitískum mótmæl- um í Bretlandi. Einnig eru nýlegar myndir af fólki sem „jugglar“ með eld, en „juggl“ (það að halda mörgum hlutum á lofti í einu) er einmitt nýjasta áhugamál Öldu og hefur hún náð þó nokkurri færni á því sviði. Alda tekur líka mikið af tísku- ljósmyndum og hún leikur sér meðal annars að því að láta módelin vera með hinar og þessar grímur. Það verður spennandi að fylgjast með Öldu í framtíðinni. Vefsíðan www.facebook.com/ljosberinnphotography Sjálfsmynd Alda hefur tekið margar sjálfsmyndir og þetta er ein þeirra. Myndirnar hennar Öldu villiljóss Það er vel þess virði að gera sér ferð í Stúdíó Stafn, Ingólfsstræti 6, og skoða myndverkin hennar Kristínar Guðlaugsdóttur myndlistarkonu en hún opnaði nýlega sýningu þar. Myndefnið er líf konunnar og frelsi hennar, þörf hennar fyrir að vera hún sjálf og upplifa kraft sinn. Þetta er hressandi sýning, ágeng og erótísk þar sem fjallað er um dyggðirnar glaðlyndi, útgeislun og blómgun. Verkunum svipar til helgimynda enda eru þau flest unnin með egg- temperu og blaðgulli á tré, en Kristín hefur hingað til einmitt verið kunn sem helgimyndamálari. Endilega... ...skoðið kon- urnar í Stafni Kona Verkið Einstæð móðir. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is M ér fannst alveg klár- lega þörf á svona bók. Mig vantaði svona bók, ég hélt að ég væri aðeins meira með foreldrahlutverkið á hreinu en ég var. Ég var búin að lesa mér til um meðgönguna og blessuðu fæðinguna en vissi satt best að segja voða lítið um barnið sjálft. Ég hélt að þetta yrði ekkert mál en það var ekki rétt. Mér fannst mjög margt erfitt, t.d. að koma brjóstagjöfinni í gang,“ segir Þóra Sigurðardóttir, höfundur For- eldrahandbókarinnar sem kemur út í næstu viku. „Það gleymdist að segja manni svo margt, það er ekki sjálfgefið að maður hafi þetta í brjóstvitinu. Mér fannst þessar upplýsingar hvergi að- gengilegar, ég fann þær allar á end- anum en þurfti að hafa fyrir því og svo fannst mér þetta líka eitt stórt samsæri ef út í það er farið. Það gleymdist að segja mér svo margt, t.d. að ég fengi ekkert að sofa og að þessi brjóstagjöf væri bara mikið mál til að byrja með. Maður sér fyrir sér glansmyndina en hitt gleymist,“ bæt- ir hún við. Þóra á tvö börn með tveggja ára millibili og segir hún vinnuna við bók- ina spanna bilið á milli barnanna. „Ég er búin að vera að vinna í henni í rúm tvö ár. Ég byrjaði á henni þegar strákurinn minn var nokkra daga gamall og ég náði að hamra inn síðustu orðin gengin 41 viku með síð- ara barnið, sem ég eignaðist í lok júlí. Þetta byrjaði á því að ég var alltaf að spyrja alla í kringum mig ráða og punkta hjá mér það sem ég fann á netinu. Eftir smátíma sá ég að ég var komin með helling af góðum húsráðum, eitthvað sem aðrar konur höfðu upplifað og maður gat speglað sig í. Mér fannst ég ekki geta legið á þessu og ákvað að deila þessu með öðrum til að spara þeim vesenið í framtíðinni,“ segir Þóra um tildrög bókarinnar. Hvað er sængurkvenna- grátur? Þóra hefur um árabil starfað við marga helstu fjölmiðla landsins, meðal annars við dagskrárgerð, blaðamennsku auk þess að sinna rit- störfum og þýðingum. Foreldra- handbókin er þriðja bók hennar. Í sannleiksleit um foreldrahlutverkið Foreldri Þóra bókarhöfundur með eldra barni sínu. „Ég grínast stundum með að það fylgi þykkari leiðbeiningarbæklingur brauðrist en barni,“ segir Þóra Sigurðardóttir, höfundur Foreldrahandbókarinnar, sem kemur út 20. október næstkomandi hjá Sölku forlagi. „Það gleymdist að segja mér svo margt, t.d. að ég fengi ekkert að sofa og að þessi brjóstagjöf væri bara mikið mál til að byrja með. Maður sér fyrir sér glansmyndina en hitt gleymist,“ segir Þóra um foreldrahlutverkið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.