Teningur - 02.12.1985, Qupperneq 37

Teningur - 02.12.1985, Qupperneq 37
uppgötva ekki (í grafík frá Þýskalandi) aðra trú, heldur teiknimáta - og stund- um myndbyggingarleiðir. Þeir sjá alls ekki neitt Sannleikshugarflug Ijóma af gotnesku formunum; þeir sjá form ... slitin úr sambandi við guðdóminn. A sama hátt tæmir sjónvarpið kvikmynd- irnar af öllu „sannleikshugarflugi", leysir þær frá uppruna sínum, léttir af þeim öllu því sem gerir þær einstakar. Það er líklegt að sjónvarpið hafi lagt sitt af mörkum til að breyta vitundinni um fortíð kvikmyndanna sem fæddi af sér raunverulegan maníerisma, í rétt og slétt forðabúr af mótífum og mynd- um sem aftur sé að fæða af sér útþynnt- an og slappan maníerisma með stæla. En hér þarf kannski að hefja aðra sögu: söguna um allsherjarendurhæfingu kvikmyndanna... Þór Stefánsson þýddi úr Cahiers de cinéma, nr 370, apríl 1985. Björn Birnir í hvammi Hún stefndi mér einn morgun þá sól skein glatt á sjá og sagði mér að koma í hvamminn í hvamminn fyrir norðan á Hún sagðist eiga gersemar sem ég ætti að fá einn ég átti að fá að sjá í hvammi í hvamminum fyrir norðan á Ég setti upp húfu og skaust í skó skjótur á fæti í hvamminn smó í hvammi í hvamminum var af berjum nóg Er ég þar einn í berjum óð og kýldi vömb í kinnar tróð í hvammi í hvamminn kom hún englablóð Hún kyssti mig og gældi við ég sæll var þá og gettu nú í hvammi í hvamminum fyrir norðan á Ég fengi þrjá og flissaði Einn feitan koss? Nei! Máski mör? í hvammi í hvamminum var á svörin spör Hún lyfti pilsi og leit mig á Ó lambið mitt! Vettlinga þá? í hvammi í hvamminum fyrir norðan á Hún fyrtist við og flaug mér frá og prestsson fann Ég felldi tár í hvammi í hvamminum fyrir norðan á En stundum eins og álfur enn ég arka hér og heila brýt í hvammi Hvað var það sem ég átti að fá í hvamminum fyrir norðan á? Ég gat ei getið uppi á 35

x

Teningur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Teningur
https://timarit.is/publication/820

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.