Vera


Vera - 01.12.1994, Blaðsíða 14

Vera - 01.12.1994, Blaðsíða 14
frekskonur og hvundagshetjur FRÁ I < i ■n r Ástbjörg Gunnarsdóttir íþróttakennari anum fyrir 45 árum og hefur kennt íþróttir síðan. Hressingarleikfimina hefur hún kennt í íþróttasal Laugarnesskóla frá upphafi en er nú einnig með leikfimihóp á Seltjarnarnesi. En hún hefur ekki alveg einskorðað sig við konur þvl karlar hafa komið I leikfimi til Ást- bjargar sl. 17 ár. „Ég byrjaöi með einn hóp í tilraunaskyni haustiö 1959,“ segir Ástbjörg, „og síðan vatt þetta upp á sig. Ein kona hefur verið með mér sleitulaust frá upphafi, en margar hafa verið í 33-34 ár, þannig að við höfum fylgst að og elst saman. Síðan hafa alltaf bæst nýjar konur í hópinn og í dag eru þær á aldrinum 26-74 ára. Annars hugsum við þetta ekkert út frá aldri, tíminn er afstæöur og aldurinn líka og það sem skiptir máli er að við eigum saman góðar stundir." Ástbjörg leggur áherslu á að hafa fjölbreyttar æfingar, allt frá hvirfli til ilja, í sinni hressingarleikfimi og notar mikið músík. „Ég flétta saman liðkandi, styrkjandi, þol- og þrekæfingum ásamt dansspuna og legg þá misjafnlega mikið á konumar, eftir því hvar við erum staddar í námskeiðunum. Þann 28. mal sl. hélt Ástbjörg Gunnarsdótt- ir íþróttakennari upp á þaö að 35 ár voru liö- in frá því aö hún hóf hressingarleikfimi- kennslu fyrir konur, og var þess að sjálfsögðu minnst með nemendasýningu. Ástbjörg útskrifaöist úr íþróttakennaraskól- Sýningar Við höfum tekið þátt I fjölda sýninga frá því um 1970 og meðal annars sýntí Danmörku árið 1979 og Svíþjóð árin 1983 og '86. Viö sýndum einnig I Hollandi árið 1991 en það var á stærstu fimleikahátíö sem haldin hef- ur verið til þessa. Þátttakendur á þeirri hátíð voru 22 þúsund og þar af voru 120 frá ís- landi. íþróttaviðburðum hér heima, meöal annars á íþróttahátíöum íþróttasambands íslands og einnig á fimleikahátíöum sem Fimleikasambandið hefur efnt til. Við höfum líka tekið þátt I stórum norrænum hátíðum sem haldnar hafa verið hér á landi og verið með á kvennahlaupsdaginn, en þá hefur hópur frá mér veriö meö stutta sýningu fyrir hlaupið. Við vorum einnig með I hátíöarsýn- ingu á Þingvöllum 17. júní sl. Félagsstöifln Ástbjörg segist ekki ákveöa nema eitt ár I einu. Hún ætlar þó að halda áfram með hressingarleikfimina á meðan fólk heldur áfram að koma til hennar. Auk kennslunnar hefur Ástbjörg setið I ýmsum stjórnum og nefndum innan Iþróttahreyfingarinnar. Hún var m.a. I stjórn Fimleikasambandsins 111 ár, þar af 4 ár sem formaður og var þá fyrsta konan sem var formaður sérsambands inn- an ÍSÍ. Hún var einnig formaöur kvenna- nefndar ÍSÍ sem starfaöi 1978-82 og for- maður trimmnefndar ÍSÍI 8 ár. Ástbjörggerirýmislegtfleira en að kenna hressingarleikfimi, því hún kennir fötluðu fólki I trimmklúbbnum Eddu vatnsleikfimi sem sjálfboðaliði og segir að það sé bæði mjög skemmtilegt og gefandi starf. Auk þess hefur hún rekið heildsölu sl. 10 ár og flytur inn leikfimi- og dansfatnað og útigalla frá Danmörku. sbj
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.