Vera


Vera - 01.12.1994, Blaðsíða 22

Vera - 01.12.1994, Blaðsíða 22
^frekskonur og hvundagshetjur bætt ímynd • betri þjónusta A þessu ári var Lára Björnsdóttir ráðin í stöðu félagsmálastjóra Reykjavíkurborgar og það vildi svo skemmtilega til að hún var ráðin á sjálfan kvennadaginn, þann 8. mars sl. Það sem Lára ætlar allra helst að beita sér fyrir er að bæta aðgengið að stofnun- inni, hún ætlar að auðvelda fólki að leita til Félagsmálastofnunar og stytta biðtímann - sem sagt: bæta þjónustuna. „Það er mjög mikilvægt að bæta ímynd Félagsmálastofnunar," segir Lára, „og gera fólki auðveldara aö stíga það skref að leita hingað, því þetta eru þung spor fyrir marga. Þau eiga hins vegar ekki að þurfa að j vera það - þetta er bara eins og hver önn- ur samfélagsþjónusta, við roðnum ekki þegar við göngum inn á heilsugæslustöð og við eigum heldur ekki að þurfa að roðna þeg- ar við leitum eftir fé- lagslegri aðstoð. Égtel að með því að auð- velda fólki að leita hingað sé komið til móts við þarfir kvenna og barna, konur þurfa oft að leita hingað, sérstaklega ein- stæðar mæður, og reyndar hvers kyns barnafjölskyldur." Lára segir að það þurfi einnig að breyta ýmsu innan stofnunarinnar, hún sé orðin 25 ára gömul og hafi þanist út. Stofnanir sem þessar öðlist oft nokkurs konar sjálfstætt líf og því sé mikilvægt að fá allt starfsfólkið í lið með sér þegar breyta þurfi og bæta. Félags- málastofnun sé kvennastofnun og laun starfsfólksins í samræmi við það. Hún hafi því lagt til við borgarstjórann að kjör starfs- fólks hjá þessari kvennastofnun verði borin saman við kjör starfsfólks I dæmigerðum karlastofnunum Reykjavík- urborgar, eins ogt.d. skrif- stofu borgarverkfræöings eða veitustofnunum. Lára ætlar ennfremur að beita sér fyrir endurmenntun starfsfólks en hún leggur áherslu á að stofnunin sé fyrst og fremst þjónustu- stofnun og starfsfólkið sé til þess að þjónusta fólkið sem leitar til hennar. í gegnum Félagsmála- stofnun fara miklir pening- ar á hverju ári, málafjöld- inn hefur aukist mjög á undanförnum tveimur árum og er enn að aukast. Eitt af því sem Lára ætlar að beita sér fyrir er að fólk fái ekki einungis félagslega aðstoð og fé- lagsráðgjöf, heldur fái það einnig ráðgjöf í peningamálum. veriMaunin Sólveig Aðalsteinsdóttir myndlistarkona fékk Serra-verðlaunin á þessu ári. Þessi verðlaun eru viðurkenning úr sjóði sem Ric- hard Serra beitti sér fyrir að stofnaður yrði fyrir þau laun sem hann heföi annars fengið fyrir verk sitt Áfanga, sem nú er úti í Viðey. Úr þessum sjóði fá þrívíddar listamenn styrk annað hvert ár og nam styrkurinn sem Sólveig fékk 400 þúsund krónum. uðust í mannlegum samskiptum og loks að þeir ykju færni sína í íslensku, stærðfræði, ensku, samfélagsfræði og vinnu við tölvur. Alls sóttu 25 konur um inngöngu í MFA- skólann en 13 komust inn. „Þetta var já- kvæður og samstilltur hópur sem náði þeim markmiðum sem stefnt var að,“ segir Vil- borg. „Mér fannst kraftaverki líkast að sjá konurnar uppgötva nýja hæfileika og öðlast aukna þekkingu og kjark til aö takast á við lífið. Það voru forréttindi að fá að taka þátt í SKÓ LASETUR Á HVALFJARÐARSTRÖND I hausttók Norræna skólasetriðtil starfa og er Sigurlín Sveinbjarnardóttir fyrsti for- stöðumaður þess. Norræna skólasetrið er ætlað norrænum ungmennum sem vilja kynna sér sögú landsins, náttúru og um- hverfi, en íslensk ungmenni koma einnig í námsdvöl þangað. Sigurlín segir að T nám- inu sé lögð mikil áhersla á umhverfis- fræðslu. Nemendum sé kennt að bera virð- ingu fyrir náttúrunni og þykja vænt um hana, enda segir hún að það sé besta leiðin til aö fá fólk til að ganga vel um og virða náttúr- una. að auka þekkmguna oiikjaikiuii Vilborg Einarsdóttir er ein þeirra kvenna sem færðust mikið í fang á þessu ári sem er að llða þvl hún stjórnaði skóla fyrir at- vinnulausar konur I Reykjavlk. „Ég tók þátt I þvl ævintýri að stofna, stjórna og kenna við MFA-skólann,“ segir Vilborg, „en hetjur þessa ævintýris voru þær atvínnulausu kon- ur sem þar glímdu viö að afla sér aukinnar menntunar." Menningar- og fræðslusamband alþýöu fékk styrk úr svokölluðum Jóhönnusjóði, frá félagsmálaráðuneytinu, til þess að koma á fót skóla fyrir atvinnulausar konur með stutta skólagöngu að baki. Markmið skólans var aö efla sjálfstraust nemenda og aö þeir tileink- uðu sér skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð; lærðu að taka gagnrýni og nýta sér hana á já- kvæðan hátt; læröu að vinna I hópi og iiðk- þessu starfi og ég vona að það eigi eftir að verða framhald á því."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.