Vera


Vera - 01.12.1994, Blaðsíða 29

Vera - 01.12.1994, Blaðsíða 29
Leggiö shiitake sveppi í bleyti í 3-4 tíma, sker- ið stilka frá og hattana síöan í þunnar sneiöar. Blandið saman í pott vökva af shiitake svepp- um, sneiddum sveppum, jurtakrafti, sojasósu og rauðvíni og látið malla í 30-40 mín. Bætið síöan rauðu paprikunni út í réttinn og látið sjóða áfram í 15 mín. Kryddið með svörtum pipar og steinselju. Þessi súpa er best nýlöguð en má bíða í 1-2 tíma. Betra er að taka fram að mörgum finnst shiitake sveppir erfiðir, en áhrifin af þeim eru róandi og góð fyrir magann. Brazilíuhnetusteik 225 g Braziltuhnetur (fástí heilsubúðum) 100 g gott heilhveitibrauð 2 vænir laukar, saxaðir 2 pressuð hvítlauksrif 1 msk. steinselja 1 msk. timían salt og ferskur svartur pipar 1 egg (má nota 1 msk. arrowroot - örvar- rót- í staðinn. Þetta er mjöl sem fæstí flest- um búðum) 1 msk. olía (kaldpressuð sólblómaolía) Setjiö hnetur og brauð í blandara og saxið gróft. Steikið lauk og hvítlauk mjúkan T olíu. Blandiö saman kryddi, hnetum og brauði. Saltiö og piprið og hnoðið saman með eggi. Gott er að setja bökunarpappír í brauðform, smyrja síðan með olíu og setja kæfudeig í. Loka með álpappír og baka í 30 mín. Takið síðan álpappírinn af og brún- ið t um það bil 10 mín. Til að auðvelda eldamennskuna á að- fangadag má baka hnetusteikina fyrirfram í 30 mtnútur og hita hana svo 110 mín. fyr- ir mat á aðfangadagskvöld, með álpappírs- loki. Borið fram með klassísku jólameðlæti eins og waldorfsalati, ávaxtasalati, kartöfl- um eða appelstnu-hirsipilaffi. Appelsínu-hirsipilaff 3 appelsínur (best að hafa þær lífrænt ræktaðar) 2-3 bollar vatn og/eða soð 2 1/2 bolli hirsi 1/2 tsk. salt 2 msk. ósaltað smjör eða kaldpressuð sesamolía nýrifið múskat á hntfsoddi 1/2 bolli valhnetur (má sleppa) Skolið hirsið snöggt og vel og látið renna af því. Þurrristið þaö síöan t góðum stálpotti. Kreistið safann úr appelsínunum og blandið saman við soð eða vatn. Látið suðuna koma upp. Hellið heitum vökvanum yfir hirsið en farið varlega því slest getur upp úr. Látiðsuð- una koma upp, setjið lok á pottinn og lækkið hit- ann. Sjóðið T 20-30 mtn. Bræðið smjörið eða hitið olíuna ogsetjið appelsínubörkinn ogvalhnetumar út t. Hræriö þessu saman við hirsið. Berið ffam strax með hnetusteikinni. Epla-hindbetjaís Notið ósykraða eða hunangsblandaða sultu. 1/4 bolli ósæt hindberjasulta 11 epla og hindberjasafi 1/4 tsk. mulið múskat Blandið sultu, safa og múskati í skál. Fryst- ið í formi í 1 klst. Takið þá út úr frystinum og þeytið vel I blandara eða með handþeytara. Frystið aftur t 1 1/2-2 klst. Skreytið ísinn meö ferskum berjum eöa t.d. kiwi rétt áður en þið berið hann á borð. Gleöileg jól! Þaö ætti að vera frekar auðvelt að kaupa jólagjöf handa konum sem langar t tónlistar- gjöf þvt tslenskartónlistarkonur láta talsvert til stn taka á hljómplötumarkaðnum fyrir þessi jól. Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, sendir frá sér geislaplötuna Töfra og Bryndís Halla Gylfa- dóttir sellóleikari og Steinunn Bima Ragnars- dóttir píanóleikari senda einnig frá sér plötu. Kvennahljómsveitin Kolrassa krókríöandi á geisladisk sem og söngkonurnar Heiða, með félögum sfnum í Unun og Emiliana Torr- ini ásamt félögum stnum 1 Spoon. Einnig er hægt að fá sálma og bænir á geisladiskum þvt Anna Pálína Árnadóttir syngur 14 sígilda sálma í nýjum útsetningum á plötu sinni og Gunnars Gunnarssonar og Karmel systur 1 Hafnarfirði senda frá sér sinn söng og biöja fyrir íslandi og íslendingum. Fíöluleikararnir Guðný Guðmundsdóttir og Auöur Hafsteinsdóttir senda frá sér sinn hvorn geisladiskinn og Eltsabet Waage hörpuleikari leikur inn á sltkan disk með erlendum flautuleikara. Manuela Wiesler sendir frá sér geislaplötu og sömuleiðis sópransöngkonurnar Frfður Siguröardóttir og Halla Soffía Jónasdóttir. Á diskum sem geyma íslenska einsóngslag- iö syngja þær Sigrún Hjálmtýsdóttir, Sólrún Bragadóttir og Rannveig Friða Bragadóttir og á disk sem nefnist Minningar 3 eru söngkon- umar Maria Björk, Guörún Gunnarsdóttir og Ema Gunnarsdóttir. Söngkonur senda einnig frá sér barnaplötur um þessi jól og má þá nefna þær Olgu Guð- rúnu Árnadóttur en hennar geislaplata heitir því ágæta nafni Babbidí-bú, Svanhildur og Anna Mjöll senda frá sér barnaplötuna Litlu bómin leika sér en Komdu kisa min er end- urútgefin geislaplata með söng Diddúar og út- setningum Ragnhildar Gísladóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.