Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2005, Blaðsíða 10
7 0 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ2005
Fréttir DV
Jóharm Benediktsson þykirvera
skemm tilegur og góöur maður.
Samkvæmt vinum hans er
hann kjarkmikill og með skýra
sýn á hlutina.
Hans helstu gallar eru þeir
að hann geturstundum verið
dálítið óskipulagður og hann
þykir tala mikið I farsímann
sinn.
„Jóhann er fyrst og fremst
einstaklega skemmtileg-
urmaðurog það er mjög
gaman að vinna með
honum. Hann er ákaflega
góður yfirmaður og félagi, mikill
vinur vina sinna. Hann er með
skýra sýn á hlutina og sér oft
langt fram í tímann. Hans helsti
galli ersáaðhanná það til að
vera svolítið óskipulagður með
smáatriðin, hann vinnursamtallt
sitt frábærlega. Hann á það líka
til að tala svolitið mikið í farsím-
ann sinn. Hans stærsti galli er þó
líklega sá að hann spilar ekki
goif.“
Eyjólfur Krlstjánsson, samstarfsmaður og
vinur Jóhanns.
„Jóhann bróðirminn er
ákaflega kraftmikill mað-
ur. Hann er mjög jákvæð-
ur og hugmyndaríkur, þar
afleiðandi ergottað vera
í kringum hann. Hann er líka af-
skaplega kjarkmikill og þorir svo
sannarlega að taka á málunum.
Hann er mjög heilsteypt persóna
og því frekar erfitt að finna galla.
En allir kostir geta orðið gallar viö
einhverjar kringumstæður, það
fer bara eftir þvi hvernig maður
horfir á málið."
Sigrún Benediktsdóttir, lögmaður
og systir Jóhanns.
„Mér finnstJóhann vera
virkilega góðuryfirmaður
og algjör snillingur, Jó-
hann er allra manna
hugljúfi. Allir sem starfa
undir honum bera honum ákaf-
lega góða sögu. Ég á erfitt með
að finna galla við hann, í fljótu
bragði. Ég hefekki heyrt neinn
starfsmanna hans hallmæla hon-
um, þeir eru jákvæöir í hans
garð.“
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, þokkagyðja
og samstarfskona Jóhanns.
Jóhann Benediktsson er kvæntur Sigrlði Guð-
rúnu Guðmundsdóttur, sem er viðskipta-
fræðingur og er að klára nám við Kennara-
háskólann. Þau búa á Arnarnesi og eiga
saman þrjú börn, á bilinu 9 til 13 ára.
Rændi gamlar
konur
Ungum karlmanni var í
gær birt ákæra ríkissak-
sóknara, en honum er gefið
að sök að hafa, þegar hann
var sexán ára, rænt tvær
eldri konur sem og að hafa
bitið lögreglukonu. Hann
veittist meðal annars að
konu fæddri 1928 við Mela-
búðina. Drengurinn reif í
tösku hennar og freistaði
þess að hafa hana með sér.
Þegar konan streittist á
móti sló drengurinn hana í
höfúðið svo hún féll i jörð-
ina. Vegfarandi kallaði þá
til drengsins og við það
hörfaði hann. Konan var
með áverka á höfði eftir
högg drengsins.
-
Útrás bókaútgáfunnar Bjarts hefur gengið vonum framar en dótturfyrirtæki þess,
Hr. Ferdinand, á nú þrjár vinælustu bækur í Danmörku. Bækur spennusagnahöf-
undarins Dans Brown hafa borið höfuð og herðar yfir aðra titla útgáfunnar þar í
landi. Bjartur hyggur á enn frekari útrás, því í haust munu þeir opna Hr. Ferdin-
and í Noregi.
Snæbjörn Arngrimsson
Framkæmdastjóri bókaút-
gáfunnar Bjarts sem á þrjár
söluhæstu bækurnar í Dan-
mörku I dag.
I
Bókaforlagið Hr. Ferdinand í Danmörku á um þessar mundir
þrjár söluhæstu bækur þar í landi. Það væri varla í frásögur fær-
andi nema fyrir þær sakir, að Hr. Ferdinand er í eigu íslensku
bókaútgáfunnar Bjarts. Útrás Bjarts hefur gengið vonum framar
og hyggja þeir nú á enn frekari landvmninga.
„Það er ekki annað hægt en að
vera ánægður með þetta," segir
Snæbjörn Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri bókaútgáfunnar
Bjarts. Dótturfyrirtæki Bjarts í
Danmörku, Hr. Ferdinand, á um
þessar mundir þrjár söluhæstu
bækur í Danmörku, í fyrsta sæti er
Da Vinci lykillinn, í öðru Englar og
djöflar og í því þriðja er viðhafnar-
útgáfa af Da Vinci lyklinum. Allar
eru bækurnar eftir Dan Brown.
Þess ber að geta að Da Vinci lykill-
inn hefur verið í toppsæti listans
síðastliðna sautján mánuði.
Kemur á óvart
„Við stofnuðum Hr. Ferdinand í
október 2003 og það hefur gengið
mjög vel hjá okkur. Á síðasta ári
gáfum við út fimm bækur þar og
náðum fimm af þeim inn á met-
sölulistann. Það sem hefur komið
okkur mest á óvart er velgengni
viðhafnarútgáfunnar á Da Vinci
lyklinum, en hún er stútfull af
teikningum og myndum sem
tengjast sögunni. Hún þykir mjög
dýr á danskan mælikvarða, þannig
að við erum mjög ánægðir."
Brjálað að gera
„Það er auðvitað nóg að gera
hjá okkur. Núna er kiljuvertíðin á
fullu og svo bíðum við bara eftir
jólunum, þá kemur annar slagur.
Við erum með marga höfunda á
okkar snærum og þó nokkuð
margar bækur í pípunum. Við gef-
um út á milli þrjátíu og fjörtíu
bækur hér heima á hverju ári.“
Það eru ekki einungis Danir
sem hafa tekið verkum Dans
Brown vel, því alls hafa selst um 25
Englar og djöflar
Er I öðru sæti I Dan-
mörku og selst enn
hérheima.
Da Vinci lykillinn Hefur setið á t
um í Danmörku ísautián mánuöi
þúsund eintök af Da Vinci
lyklinum hér á landi og
um tíu þúsund eintök af
Englum og djöflum. „Við
teljum markaðinn ekki
mettan enn fyrir Engla og
djöfla, það eiga eftir að
seljast nokkur þúsund
eintök af henni í viðbót."
johann@dv.is
N
brown
J?NGELS
' - A N D
DEMONS
Engir boðslistar til frá móttöku Samfylkingarfólks í Ráðhúsi Reykjavíkur
Samfylkingarpartí var undanfari landsfundar
Hildur Kjartansdóttir, móttöku-
fulltrúi á skrifstofu borgarstjórnar,
segir enga boðslista vera til fyrir
móttöku sem
haldin var í
Ráðhúsi
Reykja-
víkur
fyrir
W Samfylk-
ingarfólk
þann 19.
maí síðast-
liðinn. „Það
er mjög mis-
jafnt hvort
gerðir eru
boðslistar. í
þessu tilviki
voru ekki
gefin út
Stefán Jón Segir mót- j
tökuna vera fyrir vel
unnin flokkstörffund-
anfara landsfundar.
boðskort og því er ekki
til boðslisti. Það eru
mörg fordæmi fyrir því
að fulltrúum stjórn-
málaflokka sé boðið í
móttökur á vegum 1||gp:
borgarinnar," segir “
Hildur.
Stefán Jón Haf-
stein, borgarfulltrúi
og þáverandi for-
maður fram- 5'i
kvæmdastjórnar
Samfyikingarinnar, '1=
sagði í DV í fyrradag '**
að móttakan hefði verið ____________
haldin sem undanfari
landsfundar flokksins og verið ætluð
flokksfólki sem unnið hafði gott starf
í þágu flokksins síðastliðinn vetur.
Ekki hefur tekist að ná sambandi við
Sömdo við sjálla sig
og Mi í partí
DV 7.júní
Stefán Jón í tvo daga,
jafnvel þótt skilaboð
hafi verið lögð fyrir
hann.
Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, borgarfull-
| trúi Sjálfstæðismanna í
i Reykjavík, segir að um-
| talsverð ásókn sé í mót-
tökur af þessu tagi hjá
borginni, sérstaklega í
kringum ráðstefnuhald
og menningarviðburði
þar sem þessar samkom-
ur þjóni ákveðnu hlut-
verki. „Það getur lúns
vegar gegnt öðru máli ef
flokkurinn ætlar að þakka sínum
mönnum fyrir vel unnin störf. Þá
þykir mér eðlilegt að það sé gert á
kostnað flokksins," segir Vilhjálmur.
„Stundum er fólki þökkuð vel unnin
störf hjá Sjálfstæðisflokknum og þá
hittist fólk í Valliöll," segir Vilhjálm-
Vilhjálmur Þ. Eðlilegt
að svona lagað sé gert
á kostnað flokksins.
ur ennffemur.