Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2005, Qupperneq 11
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ2005 11
Bin Laden
bervírus
Fólk ætti að varast tölvu-
póst, sem færir fréttir af því
að Osama Bin Laden, leið-
togi Al-Kaída-hreyfingar-
innar, hafi verið verið tek-
inn til fanga, því slíkur póst-
ar inniheldur vírus. Vírusinn
er í viðhengi sem fylgir
tölvupóstinum og er fólki
bent á að opna ekki við-
hengið. Mikill áhugi ríkir á
Bin Laden og afdrifum hans
og óttast tölvusérflræðingar
að vírusinn nái bólfestu
vegna hans.
Amma stýrði
vændishring
Lögreglunni í New
Jersey brá heldur betur í
brún þegar hún
kom upp um vænd-
ishring í borginni
fyrir skömmu. For-
sprakki hringsins,
sem kallaðist Leik-
félagar ágústmán-
aðar, reyndist vera
áttræð amma, Vera Tursi.
Tursi rak hringinn úr
tveggja herbergja íbúð
sinni og tók 60 dollara af
þeim 160 sem hún rukkaði
viðskiptavinina fyrir einn
klukkutíma með vændis-
konu. Tursi hefur viður-
kennt brot sitt, en hún seg-
ist hafa tekið við starfinu af
dóttur sinni sem lést fyrir
nokkrum árum. Tursi gæti
átt yfir höfði sér ailt að
fimm ára fangelsi, en ekki
er búist við öðru en að hún
vérði sett á skilorð vegna
aldurs og heilsu.
Vopnabúrí
íraska sendi-
ráðinu
Lögreglan í London hef-
ur gert upptækan fjöldann
aiian af vopnum í íraska
sendiráðinu í borginni.
Vopnin komu í ljós þegar
nýskipaður sendiherra
íraks í London, Dr. Salah A1
Shaikley, opnaði dyrnar að
sendiráðinu, en það hafði
staðið autt frá því stríðið
hófst fyrir tveimur árum.
Meðal vopnanna sem
fundust voru hríðskota-
byssur og skammbyssur
auk hlerunartækja. Lögregl-
an í London sagði að rann-
sókn málsins væri ekki lok-
ið, en unnið yrði áfram í
fúllu samstarfi við írösk
stjórnvöld.
Danskir öfgamenn sprengdu í fyrrinótt bíl ráðherra innflytjendamála. Bjarga þurfti
ráðherranum, eiginmanni hennar og tveimur ungum börnum út úr húsi þeirra,
sem kviknaði í eftir sprenginguna. Allir háttsettir danskir stjórnmálamenn fengu
lífverði í kjölfar árásarinnar.
Sprengdur i tætlur
Bíll ráðherrans stóð fyrir
utan heimili hennar og það
kviknaði einnig í húsinu.
Rikke Hvilshoj „Mer
1r I er brugðið og ég er
\ reið," sagði ráðherra
j J innflytjendamála i gser.
Danska lögreglan leitar árásarmanna sem sprengdu bíl Rikke
Hvilshoj, ráðherra innflytjendamála, í fyrrinótt. Hópur sem kall-
ar sig Beatte án landamæra lýsir sig ábyrgan fyrir árásinni. Ráð-
herranum, eiginmanni hennar og tveimur ungum börnum, var
bjargað úr brennandi húsi þeirra.
Bíllinn stóð fyrir utan hús ráð-
herrans og eldurinn læsti sig í það
eftir sprenginguna. Fivilshoj var sof-
andi þegar sprengjan sprakk. Hóp-
urinn sem lýsti sig ábyrgan, segir
ástæðu árásarinnar hatursfulla af-
stöðu stjórnvalda í kynþátta- og inn-
flytjendamálum. Hann sendi dönsk-
um fjölmiðlum fréttatilkynningu
skömmu eftir sprenginguna.
Hörð innflytjendalög
Hvilshoj, sem er aðeins 34 ára
gömul, og öðrum háttsettum dönsk-
um ráðamönnum voru úthlutaðir
lífverðir í gær. „Mér er brugðið og ég
er reið,“ sagði hún áður en lögreglan
flutti hana og fjölskyldu hennar á
leyndan stað. Dönum er mjög
brugðið, enda er þjóðfélag þeirra
opið og þjóðþekktir einstaklingar
vilja geta spókað sig á götum úti eins
og aðrir.
Aðeins fjórir mánuðir eru liðnir
síðan stjóm Anders Fogh Rasmussen
forsætisráðherra tók við völdum.
Stjórn hans hefur meðal annars sett
ein hörðustu innflytjendalög Evrópu
og sætt gagnrýni margra, þar á meðal
Evrópusambandsins. Fogh, Hvilshoj
og félagar segja lögin hinsvegar sann-
gjöm og réttlát.
Skotárás í Kaupmannahöfn
Mikil ólga varð í innflytjendamál-
um í Danmörku í kjölfar skotárásar á
Nörrebro í Kaupmannahöfn fýrir
tveimur vikum. Þá var ungur maður
drepinn af dyraverði næturklúbbs
og annar slasaðist illa.
Allir voru þeir úr samfélagi
múslima, sem er öflugt í hverfinu.
Þekktur múslimaklerkur, Abu
Laban, stakk upp á því að fjölskylda
árásarmannsins myndi afhenda fjöl-
skyldu fórnarlambsins svokallaða
„blóðpeninga" til að gera út um deil-
una. Hvilshoj sagði þá að það væri
forneskjuleg leið. „Við stundum
heldur ekki vöruskipti með
úlföldum í Danmörku," sagði hún
einnig, en það hafði ekki mikil áhrif.
Fjölskylda árásarmannsins féllst á
að flytja burt frá Kaupmannahöfn til
að bæta fýrir drápið.
Þetta sætti vitanlega gagnrýni,
Hópurínn sem lýsti sig
ábyrgan, segir ástæðu
árásarinnar
hatursfulla afstöðu
stjórnvalda í kynþátta-
og innflytjendamálum
enda stríðir málamiðlunin gegn
dönskum lögum, sem gera ráð fyrir
því að einungis dómstólar geti leyst
morðmál. Þannig eru innflytjenda-
málin að sigla í strand, sumum
finnast lögin of ströng, en öðrum of
veik og að innflytjendur muni
búa til eftirmynd eigin þjóðfélags
innan Danmerkur, þar sem fornar
hefðir þeirra muni ógna dönskum
lögum.
Bandarísku forsetaframbjóðendurnir tveir eru ekki miklar mannvitsbrekkur.
Bush og Kerry eru „jafn heimskir'
George Bush og John Kerry
gengu báðir í hinn fræga Yale-há-
skóla á sjöunda áratug síðustu aldar.
Bush hefur aldrei þótt vera mikil
mannvitsbrekka og í kosningabar-
áttunni var löngum talið að John
Kerry væri gáfnaljósið en Bush væri
sá heimski. Þeir sem héldu það,
þurfa nú að éta það ofan í sig, því
bandaríska blaðið Boston Globe
hefur ljóstrað því upp að Kerry var
með lélegri einkunnir í háskóla.
Eins og áður hefur komið fram
þykir Bush ekki vera neitt gáfnaljós.
Hann hefur margoft gert sjálfan sig
að fífli með fáránlegum ummælum
og algerri vanþekkingu. Það er því
ekki glæsileg útkoma fýrir
demókratann Kerry að vera í raun
lélegri námsmaður heldur en Bush,
lflct og Boston Globe komst að.
Kerry var lengst af C-nemandi,
sem þykir ekki glæsilegt, og það var
ekki fýrr en á síðasta árinu sem
Kerry náði að klóra sig upp í B að
meðaltali. Kerry var lélegast-
ur í landafræði, mann-
kynssögu og stjórnmál-
um, en hann fékk ein-
kunina D í þessum
fögum sem er fall-
einkunn. Hann tók
sig hins vegar saman á
siðasta árinu og fékk B í
stjórnmálafræði.
Námsferill George
Bush var ekki mikið glæsilegri.
Hans bestu greinar voru
mannffæði, mannkynssaga
og heimspeki, en báðir end-
uðu þeir með C í
meðaleinkunn.
Bush var þó einu
stigi hærri en
Kerry og verður
því að teljast
betri náms-
maður.