Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2005, Síða 20
20 FIMMTUDACUR 9. JÚNÍ2005
Ást & Samlíf DV
DV Ást & Samlíf
FIMMTUDACUR 9. JÚNÍ2005 21
Áminning ígemsann
Gleymnar stúlkur geta nýtt sér þjónustu sem boðið er upp á (s-
landi. Það er pilluáminningarþjónusta, þ.e.a.s. þjónusta í gsm-síma,
þar sem þér er sent SMS til þess að minna þig á að taka pilluna.
Þetta er að sjálfsögðu ætlað fyrir konur sem taka getnaðarvarn-
arpilluna en eiga í erfiðleikum með að muna eftir að taka hana á
réttum tíma. Skilaboðin sem send eru í símann eiga að vera bæði
fyndin og fræðandi.Á umsóknareyðublaðinu fyrir þjónustuna gefst
konum kostur á að skrá upplýsingar um hvenær þær þurfa að taka
pásu,til þess að skilaboð berist ekki að óþörfu. Hægt er að nálgast þjónustuna á sfð-
unni www.p.molar.is og er þjónustan ókeypis. •
Samkynhneigður sædýragarður
Starfsmenn sædýragarðs í Hokkaído í Japan
segjast hafa séð keisaramörgæsir para sig saman
með mörgæsum af sama kyni. Talið er að þetta
gerist vegna skorts á mökum. Það var árið 2003
sem starfsmenn tóku eftir því að tveir karlfuglar
fóru að stinga saman nefjum. f síðasta mánuði
byrjuðu tveir kvenkyns fuglar saman auk þess
sem tveir aðrir karlfuglar hófu samband.
í síðasta mánuði tóku starfsmenn „lesbískan"
fugl og „homma" fugl og lokuðu saman inni £
búri. í fyrstu virtust þau í öngum sfnum yfir að
hafa misst frá sér makann, en nú hafa þau
gleymt þeim og byrjuð að fjölga sér.
í dýragarðinum eru fleiri karldýr en kven-
dýr. Af 12 mörgæsum garðsins eru átta karl-
kyns. Einn starfsmaður dýragarðsins sagði:
„Þetta er mjög fágætt. Vandamálið stafar ör-
ugglega af ójafnvægi milli karl- og kvendýra. Ef
við bætum við kvendýrum ætti þetta örugg-
lega að lagast." ,
Brjóst til lei
Ung kona hefur auglýst brjóstin
á sér til leigu á ebay. Hin 25
ára Cat Camp ætlar að mála
auglýsingu hæstbjóðanda
á brjóstin á sér. Hún mun
siðan ganga um ber að
ofan á tónlistarhátíðinni í
Glanstonbury.Camp hefur
þegar fengið tilboð frá hús-
gagnafyrirtæki, hinum og
þessum vefsíðum og manni
sem ætlar aö biðja kærustu sína að gift-
ast sér. Bringa kærasta hennar er einnig
til leigu, en hann hefur einungis
fengið tilboð frá plöntubúð.
Cat Camp segist blönk sök-
um þess að hún er nýút-
skrifuð úr háskóla og
ætlar aö royna að borga
miðann á tónleikana
méð uppátækinu. Hún ,
segist einnig ætla að
endurgreiða launin sín ef
það verður of kalt til þess
að vera ber að ofan.
SælRaggal
Ég er með heldur vand-
ræðalega spumingu að mér
finnst. Ég er hamingjusamlega
giftur maður og ég er kunnug-
ur því að menn á besta aldri
eiga það til að láta hugann
ílögra annað en til eiginkon-
unnar. Stundum skoða ég
myndir af fáklæddum
stúlkum og hef
barasta nokkuð
gaman af og hef ekki
af því nokkuð sam-
viskubit.
Nú hins vegar er mig far-
ið að dreyma kynferðis-
lega drauma um vin-
konu konunnar minn-
ar og það veldur mér
miklum heilabrotum
og það sem verra er,
miklu samviskubiti því ég
hef ekki nokkum áhuga
á öðru kvenfólki en
minni ástkæm eigin-
konu. Hvað er það sem
veldur? Er ég kominn með gráa
fiðringinn? Er undirmeðvit-
undin að segja mér að róa á
önnur mið?
Kveðja, Gunnar
Sæll Gunnar
Ég trúi nú varla að þetta sé í
fyrsta sinn sem þig dreymir blaut-
lega um einstaklinga sem þér finnst
ekki alveg eiga heima í draumum
þínum. Eg er nefnilega alltaf að
lenda í þessu... í það minnsta hef ég
upplifað svona drauma oftar en
einu sinni og oftar en tvisvar. Ólík-
legasta fólk getur slæðst inn í
drauma manns, meira að segja fólk
sem maður mundi aldrei hafa
minnsta áhuga á að skríða upp í
rúm með. Þess vegna held ég að
blautir draumar þurfi ekki endilega
að vera merki um raunverulegar
óskir og því síður ábendingar um
viðeigandi aðgerðir í nánustu fram-
tíð.
Kynferðislegar fantasíur
Kannski er best að líta á svona
drauma sem framlengingu af kyn-
ferðislegum fantasíum, munurinn
er bara sá að í draumi stjórnar mað-
ur ekki ferðinni sjálfur, heldur fá
taugar og boðefni heilans að leika
lausum hala og þú hefur ekki séns á
að ritskoða það sem fer yfir vel-
sæmismörkin.
Slappaðu bara af og notaðu frek-
ar kynferðislegu orkuna, sem
myndast við svona drauma, innan
hjónabandsins. Ef þú vaknar pinn-
stífur ættir þú að iúlla þér yfir til
konunnar og bjóða upp á smá kel-
erí í stað þess að krullast upp í
óþarfa samviskubit og vesen.
Ef hugsanir um vinkonuna fara
að sækja á hug þinn í vöku og þú
ferð að bjóða henni heim í U'ma og
ótíma í von um að hún nuddist
óvart við mjöðmina á þér eða mæti
í flegnu, ættir þú mögulega að
hugsa þinn gang. Það væri mun
sterkari vísbending um raunveru-
legar fysnir, gráar eða rósrauðar.
Dreymiþigvel,
Ragga
Við komum út eins og
ástfangnir unglingar
Hér á landi hefur verið starfrækt nám-
skeið þar sem hjónum er kennt að endur
vekja neistann í sambandinu. Námskeið
þetta hefur hjálpað fjölda hjóna til að
gera gott hjónaband betra.
fyr.Mi ■ Hi
Hjónahelgarfólk
! Jóhannes og Guörún
eru ástfangnari en
nokkru sinni fyrr.
Fólk heldur gjaman að því lengur sem hjónaband endist því auð-
veldara verði það. Þetta er að sjálfsögðu misskilningur. Þegar helstu
vandamálin eru yfirstigin tekur við nýtt vandamál. Hvernig á að
halda neistanum í hjónabandinu. Hjón eiga það til að taka hvort
öðru sem sjálfsögðum hlut eftir að þau hafa vanist samlífinu.
Til eru margar aðferðir til að
reyna að endurvekja neistann sem
hjón fundu fyrir í upphafi sam-
bandsins. Ein besta aðferðin er að
fara á námskeið sem haldið er hér á
landi. Þar eru hjónum kenndar að-
ferðir við að kynnast hvort öðru á
nýjan hátt. Námskeiðið er kallað
Hjónahelgi og hefur verið haldið
undanfarna áratugi.
Sambandið var gott fyrir
„Þetta er bara grasrótarhreyfing,"
segir Jóhannes Brynjólfsson. Jó-
hannes og kona hans Guðrún Katrín
fóru á Hjónahelgi árið 1996 og segir
hann þetta hafa breytt h'fi þeirra
hjóna. „Við vorum í mjög góðu
hjónabandi fyrir, en við komum út
eins og ástfangir unglingar. Við upp-
lifðum algjöru endurnýjun í hjóna-
bandinu af því að þetta ger-
ir ekkert annað en að
auðga hjónabandið.
Fólk lærir þarna að-
ferð til þess að
kynnast hvort
öðru á nýjan
hátt."
Hjónahelgin
er tveggja sólar-
hringa námskeið
sem hefst á föstu-
dagskvöldi og endar
á sunnudagskvöldi og
er námskeiðið haldið á
hóteh í bænum. Hjónahelgin er
ekki í tengslum við neina kirkju eða
söfnuð og er eingöngu rekin af fólki
sem notið hefur góðs af þessum
námskeiðum.
Alls engin trúarsamkoma
Hjónahelgin er orðin rúmlega 40
ára, en hún var fyrst __________
kynnt á íslandi um
miðjan 9. áratuginn.
„Þetta byrjar á seinni
hluta 7. áratugs á Spáni,
breiðist þaðan út til
Suður-Ameríku og það-
an til Norður-Ameríku.
Frá Ameríku berst hún
yfir til Keflavíkurflug-
vallar. Fyrsta helgin var
haldin á Hótel Loftleið-
um árið 1985. Það voru
menn af Velhnum sem
voru með þetta fyrst og
svo tóku íslendingar við. Héðan
berst þetta til Finnlands, Svíþjóðar,
Noregs og Danmerkur. Þannig að
þetta er orðin alþjóðleg hreyfing,"
segir Jóhannes.
Hjónahelgin er byggð á lúthersk-
um grunni, en Jóhannes segir hana
alls ekki vera trúarsamkomu eða
söfnuð. Það eru allir velkomnir
hverrar trúar sem þeir eru. Eina skil-
yrðið er að fólk sé gift og langi til
þess að gera gott hjónaband betra.
„Þetta er ekki hópmeðferð. Þetta er
ekki einu sinni meðferð sem slik.
Þetta er námskeið sem byggist upp á
því að kenna fólki að tjá sig á nýjan
máta. Þetta er byggt á samveru
hjóna, einna og sér. Hjón fá mikinn
tíma saman þar sem þau vinna að
sfnum málum. Þetta er í raun og
veru ekki meðferð. Það eru ekki sér-
fræðingar sem koma að þessu. Þetta
er byggt upp á fyrirlestrum eftir fólk
sem hefur farið á svona helgar. Þetta
er bara venjulegt fólk úr þjóðfélag-
inu. Það má eiginlega segja að þetta
sé þversnið af þjóðfélaginu sem
stendur að þessu."
Algjör endurnýj-
un í
sambandinu
Jóhannes segir
helgina hafa
breytt góðu
hjónabandi í
betra hjónaband.
„Þetta virkaði sem
algjör endumýjun
fyrir mig og konuna
mína. Við erum búin að
vera saman í 24 ár. Það eru
komin m'u ár síðan við fórum á
okkar fyrstu helgi og við notum oft
tímatalið „fyrir og eftir Hjónahelgi".
Okkur var bara boðið af kunningja-
fólki á þetta námskeið. Við vorum
búin að vita af þessu síðan ‘85. Þetta
voru hjón sem við þekktum mjög vel
sem voru í þessu.
—-------x Við héldum samt að
þetta væri ekki fyrir okk-
ur, en við sáum blik í
augunum á þeim og
hvemig viðmót þeirra
breyttíst og annað slflct.
Þá langaði okkur að
kynnast þessu betur. Við
fórum á kynningarfund
‘94 og biðum svo í tvö
M ár. Þegar við ákváðum
að gera þetta vissum við
ekkert hvað við vorum
að fara út í. Eftír á að
hyggja hefðum við ekki
viljað vita neitt um þetta."
Áhugasamir geta lesið sér til um
Hjónahelgina á heimasíðunni
www.hjonahelgi.com eða sent fyrir-
spumir á forsvar@hjonahelgi.com.
toti@dv.iS
Reynslusaga frá
Hjónahelginni
Koirfekt
vítarnín
Við hjónin urðum þeirrar gæfu að-
njótandi að vera boðið á kynningar-
fund um lútherska hjónahelgi.
Þau hjón sem buðu okkur eru vinir
okkar og svo erum við stelpurnar
frænkur. Þegar þau komu til okkar
til þess að bjóða okkur, var eitthvað
öðruvísi við þau en vanalega, þau,
sem reyndar hafa alltaf verið glöð
og kát, voru eitthvað svo dularfull
og einhverjir leynistraumar virtust
skjótast á milli þeirra. Það var eins
og þau væru nýbúin að kynnast.
Þetta gerði okkur forvitin og vildum
við endilega skrá okkur, enda treyst-
um við þeim til að vera ekki að
senda okkur í einhverja vitleysu.
Eftir að við höfðum verið á skrá í um
2 ár fengum við hringingu og var
boðið að koma á Hjónahelgi.Var þvi
tekið strax og á staðnum.
Þegar við vorum á leiðinni á hótelið
vorum við kviðin og veltum þvi fyrir
okkur í hvað við við værum að
koma okkur, en ákváðum að mæta
með opnum huga og eiga þessa
spennandi helgi saman.Tíminn leið
hratt þessa helgi og var hún alveg
stórkostleg, þetta var algjört
konfekt fýrir sálina og eins og
vítamínsprauta fýrir hjónabandið.
Þegar heim var komið eftir helgina,
vorum við afar þreytt en ánægð.Við
höfum töluvert notað það sem við
lærðum þá helgina og finnum mik-
inn mun á því hvernig við tökum á
málum sem upp koma og hvað
þetta gefur sambandi okkar meiri
dýpt.
Við erum alsæl með helgina og
fólkið sem að henni kom,og ekki
síst þakklát vinum okkar sem gáfu
okkur þessa frábæru gjöf að bjóða
okkur á Hjónahelgi.
Jóhanna og Sigurður.
<___________________________________>
Páfinn fordæmir hjóna-
band samkynhneigðra
Benedikt XVI páfi fordæmdi Benedikt XVI, sem þá
sambúð samkynhneigðra á hét Joseph Ratzingar
þriðjudaginn. Hann kallaði kardináh, var for-
sambúð tveggja einstak- / v \ sprakki herferðar
linga af sama kyni „stjórn- / \ Vatikansins
laust gervibrúðkaup" og / \ Se8n samkyn-
studdi þar með við harða [ * /ÍS*$3&Jr j hneigðum
stefnu kaþólsku kirkj- I I hjónaböndum.
unnar gegn samkyn- U, / Þá beitti hann
hneigðum. Hann sagði \ J kaþólska stjóm-
hjónabandiðekkiveralaus- \ / málamenn þrýst-
byggt samfélagslegt fyrirbæri, ’ r/ ingi til þess að fá þá
heldur stofnun sem á rætur sínar ~~ til að samþykkja ekki
að rekja í „djúpstætt byggingarefni lög sem leyfðu samkynhneigðum
manneskjunar". að ganga í hjónaband.
Ný rannsókn á samskiptum kynjanna
Hinar níu tegundir ástarinnar
Starfsmenn hjá Nottingham
Trent University og University Col-
lege í London hafa komist að því
að til eru níu mismunandi tegund-
ir af ást. Þessu komust þeir að með
því að spyrja markhóp nokkura
spuminga og svara hvort þau séu
sammála eða ósammála. Þetta
kemur fram í British Journal of
Social Psychology.
Hinar níu tegundir ástar em:
• Fullorðin ást, þar sem sameigin-
legt traust, öryggi og stuðningur
ræður ríkjum innan sambandsins.
• Ástarörin, þar sem pör em agn-
dofa af blindri ástríðu. Hugsið
ykkur Antóný og Kleópötm eða
jafnvel Burt Lancaster og Deborah
Kerr í kvikmyndinni
From Here to Et-
ernity.
• Ást nautna-
seggja, þar sem
ástin gengur út á
að uppfylla persónu-
legar langanir og þrár.
Viðfangsefni margra Film
noir-mynda.
• Ást, sem æðsta takmark per-
sónulegra samskipta. Mjög róm-
antískt.
• Ást, sem gerir sér ekki grillur og
veit að það þarf vinnu, þolinmæði
og milliveg tíl þess að blómstra.
• Ástarrússíbaninn, þar
sem ástin virkar eins og
, tilfinrúngalegur rússí-
bani, eins og í Bridget
Jones’Diary.
JS • Ást, sem þróast út í
gÆr- kynjahlutverkaleik samfé-
lagsins. Hugsið um pínda
parið í Brief encounter.
• Ást, sem fer út í nána vináttu.
• Síamstvíburaást, þar sem tvær
manneskjur verða að einni og
stunda þann pirrandi ávana að
klára setningar hvors annars.
Sleppur við fangelsi fyrir
að káfa á vinkonu sinni
Hin 22 ára gamla Michelle
McComb var dæmd í 18 mánaða skil-
orð eftír að hafa játað að hafa káfað á
vinkonu sinni. Michelle gistí hjá vini
sínum í Galashiels í ágúst síðastliðn-
um þegar atvfldð áttí sér stað. Hún
hélt að vinkona sín væri sofandi og
káfaði hún á brjóstum hennar og
klofi. Árásin stóð í hálftíma og var
fómarlambið í svo mikilli geðs-
hræringu að það vissi ekki hvað tfl
bragðs skyldi taka.
Lögfræðingur Michelle, Colin
McNab, sagði hana eftírá í þroska og
að þegar hún var 15 ára hefði hún haft
andlegan þroska 9 ára bams.