Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2005, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ2005
Llfið J3V
How Do
You Like
lceland?
Sveitaballamenningin er aö syngja sitt síðasta. Hér á árum áöur voru sveitaböll
haldin um hverja helgi, en mikil breyting hefur orðiö þar á. Þá sáu rútur um að
flytja böndin milli héraða og gera það enn. Frægasta hljómsveitarrúta allra tíma
hérlendis er tvímælalaust Eðlan. Hún er enn í gangi og komið hlutafélag í kring-
um hana, Eðlan ehf.
„Það er ótrúlegt hverju 280
þúsund manns hafa áorkað í
þessu landi,“ segir Dave Breckn-
ey, ferðamaður frá Bandaríkjun-
um, en Dave er búinn að ferðast
um landið og skoða sig um síð-
astliðna viku. „Þetta land er á
stærð við Kentucky og þið hljót-
ið að vera mjög vinnusöm, því
landið er kostum hlaðið," segir
Dave, en hann er jarðfræðingur
og hafði því mjög gaman af
„stórbrotinni" náttúru landsins.
„Það var ffábært, ég mun sakna
landsins þegar ég fer heim, aftur
til Georgíu í Bandaríkjunum."
Búinn að borða súpu og
brauð í viku
„Það er greinilega ekki að
ástæðulausu að þið vinnið
svona mikið, því þið þurfið
greinilega að hafa svo há laun til
þess að Ufa hérna," segir Dave
en hann er búinn að lifa ein-
göngu á súpu og brauði siðan
hann kom. „Verðið eru svo hátt
hérna að það er hlægilegt, ég
hef ekki einu sinni lagt í það að
fá mér lambakjöt eða fisk á veit-
ingastöðum því þetta er svo
ótrúlega dýrt, súpa og brauð
hefur því verið á matseðlinum
hjá mér undanfarna viku," en
Dave bauð síðan blaðamanni að
koma til Bandaríkjanna þar sem
verð væri mun sanngjarnara.
Ánægður með skiltin
„En þó svo að verðið hafi ver-
ið hátt, þá er ekki þar með sagt
að ég sé ósáttur," segir Dave, en
hann var mjög sáttur með að
skiltamerkingar um allt land hafi
verið á ensku. Hann keyrði frá
Reykjavík til Fjarðarbyggðar og
sagðist ekki hefði ratað nema
vegna skiltanna. „Ég kannski
hafði meira gaman af landinu en
aðrir vegna þess að ég er jarð-
fræðingur, mér fannst til að
mynda vatnið hér æðisgengið og
finnst íslendingar afar snjallir að
hafa beislað jarðvarmann og seg-
ir jarðvarmavirkjanir hér til fyrir-
myndar. „Takkfyrirmig," segir
svo Dave að lokum.
Brad Pltt og Angelina Jolie á frumsýningu Mr & Mrs Smith
Kyntáknin í heilagt stríð við fjölmiðla
Kyntáknin og meintu
elskendumir, Angehna Jolie og
Brad Pitt, mættu bæði á frum-
sýningu myndar sinnar, Mr &
Mrs Smith, í KaUforníu í fyrra-
dag. Þau mættu hins vegar
ekki saman og pössuðu sig á
að láta ekki mynda sig saman.
Brad Pitt varð hálffúU þegar
hann var spurður út í ákvörð-
un sína um að refsa blaða-
mönnum, sem hnýsast í
einkalíf hans í viðtölum. Pitt
segist hafa fuUan rétt á að
stjóma því hvaða spurningar
séu lagðar fýrir hann.
Brad og AngeUna JoUe,
mótleikkona hans úr Mr & Mrs
Smith og meint ástkona, hafa
látið blaðamenn skrifa undir
samkomulag um að spyrja þau
ekki persónulegra spurninga í
viðtölum. Þau hóta öUum
þeim lögsókn sem brjóta sam-
komulagið. Pitt segist sann-
færður um að þetta sé rétta
leiðin, þrátt fýrir ákaU fjöl-
miðlafólks um að brotið sé á
mál- og prentfrelsi með þessu.
„Ég fyririít það sem þeir
gera. Ég mun reyna að gera
þeim erfitt fyrir, enda reyna
þeir að gera mér erfitt fyrir. Við
erum í raun tveir pólar sem
fyrirhta hvom annan," segir
kyntröUið mikla.
<fir
„Við erum með þetta fyrirtæki,
Eðluana ehf„ ég, Pétur sonur minn
og Jóhann tengdasonur minn og
rekum tvær rútur, Eðluna frægu, og
Linerinn sem var fluttur inn fyrir
Skítamóral á sínum tíma," segir
Reynir Einarsson, einn eigandi fyr-
irtækisins. Reynir og sonur hans
Pétur keyptu Eðluna fyrir þremur
ámm síðan og stofnuðu hlutafélag í
kringum hana. „Það kom aldrei
annað til greina en að nefna fyrir-
tækið Eðlan ehf., menn í bransan-
um þekkja nafnið það vel," segir
Reynir, en Pétur sonur hans hafði
áður keyrt Eðluna í átta ár fyrir
þann tíma þegar hún var í eigu
Allrahanda.
Sveitaballamenningin
að deyja
„Þessi sveitabaUamenning eins
og hún var hér áður er að deyja. Nú
fær fólk þá fullnægingu sem það
þarf í skemmtanalífinu hér í
Reykjavík. Það eru komnir mun
betri vegir en vom og fólk sækir
sína skemmtun suður," segir Reyn-
ir. Pétur sonur hans tekur í sama
streng: „Hér áður fyrr voru böll um
hverja helgi í Miðgarði, Njálsbúð,
ídölum og fleiri góðum stöðum. Nú
halda þessir staðir ýmist eitt ball á
sumri eða eru hættir fyrir fullt og
aUt. Ég held að Miðgarður hafi
haldið sitt síðasta ball um daginn,
það á að breyta húsinu í menning-
arsetur eða eitthvað álíka," segir
Pétur.
hverjar ekki prenthæfar. „Það
vakna margar minningar hjá popp-
urum þegar þeir koma inn í Eðluna,
ég veit að Helgi Björns er mjög hrif-
inn af henni," segir Reynir, en frægt
er þegar Helgi tók svokallað
„þaksörf' á Eðlunni þar sem hann
stóð á toppnum á ferð. Pétur sér að
mestu um akstur Eðlunnar en kann
hann engar sögur? „Engar sem ég
má segja," segir Pétur og hlær: „Það
er nú parturinn af því að vera far-
sæll í þessu, að láta fá orð bera litla
ábyrgð. Það er ýmislegt sem hefur
gengið á í þessum túrum, bæði
skemmtUegt og leiðinlegt."
Hin rútan, Linerinn, á sér ekki
eins langa sögu hér á landi, en er
mun nýstárlegri en Eðlan. Hún var
flutt hingað til lands frá Þýskalandi
sem tUbúin hljómsveitarúta. Skíta-
móraU notaði hana eingöngu fýrstu
árin, en einhverjar sögur voru á lofti
um að Rammstein hefði notað rút-
una ytra. „Addi Fannar bjó þær sög-
ur bara tU held ég," segir Pétur og
hlær: „David Hasselhoff átti að hafa
notað hana fyrir strandverði og
Rammstein síðan tekið hana, en
þetta var bara saga sem var búin tíl."
Rammstein og David Hassel-
hof notuðu Linerinn
Eðlan, sem er 68-módel, var flutt
hingað tU lands fyrir venjulega
fóUcsflutninga, en á miðjum níunda
áratugnum var henni breytt í
hljómsveitarrútu. „Stuðmenn not-
uðu hana fyrst og síðan tók SSSól
hana og notaði hana í fimm eða sex
ár,“ segir Pétur, en margar sögur
munu vera til frá þeim árum, sumar
Allir geta leigt eðluna Pétur Reynis-
son, Reynir Bnarsson og Jóhann Bald-
ursson. Þaö getur hver sem er leigt Eðl-
una, tilvalin fyrir steggjapartýið.
Spjallað f Linernum
Blaðamaður datt Igott
spjall i Linernum.
Bondin koma sjálf með
klámið
Það er nokkuð ljóst að margt
hefur verið braUað innan veggja
Eðlunnar og Linersins og ef þeir
gætu talað væri það efni í góða bók.
„Já, ef veggirnir gætu talað, og koju
afdrepið," segir Reynir við mikía
kátínu blaðamanns.
Greinilegt er að margar bransa-
sögur hafa orðið til þarna, eflaust
sumar hverjar kynferðislegar. En er
ekkert klámsafn um borð í rútun-
um? „Nei, við látum böndin koma
með klámið sjálfir, við fríum okkur
af allri ábyrgð hvað það varðar,"
segir Pétur og hlær.
soli@dv.is
Ekkert klám um borð
Það var engin kldmmynd I
gangi i Unernum þegar
blaðamaður kom þar inn.
Gamanmyndin BruceAI-
mighty var I tækinu.
Kojurnar góðu Ukiegtþykir
að mörg grúppían hafi verið
lögð í þessum kojum.
• vi - .
Eðlan reddar málun-
um Það er hægur leikur
að flytja allarhljóm-
sveitargræjur lEðlunni.
■
Sliffl
Linerinn og Eðlan
Þarna standa þær
tværsaman.nýliöinn j?-
og kempan.
S||ra
Piu Alltafflott
ur.jafnvel þótt
hann sé með
aflitaö hár.
A frumsýningu PittogJolie
pössuðu sig á að stilla sér ekki
upp saman I myndatökum.
Jolie Alltaf
glæsileg