Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2005, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ2005
Menning DV
Vandræða-
skáldin
komin heim
Einhverjir skrautlegustu rithöf-
undar landsins eru nýlega lentir
eftir aö hafa verið á bókmennta-
hátiö í Edinborg. Eiríkur Örn Norö-
dal og Stefán Máni eru báðir höf-
undar hjá Eddu og báöir mega
heita nokkrir vandræöagripir inn-
an sinnar útgáfu. Stefán Máni er
aö Ijúka viö mikla bók sem heitir
„Túristinn", en þar fá ýmsir á
baukinn sem i útgáfubransanum
starfa. Tíðindamenn DVinnan
Eddu vilja reyndar meina að þetta
sé „póstmódernískt meistaraverk“
fremur en að þarna sé óásættan-
legt meinhorn á ferö - óþolandi
fyrir virtari höfunda Eddu.
Eiríkur Örn hefur tekið aö sér fyrir
Bjart að stýra útgáfustarfseminni
Traktor, sem hefur aösetur á ísa-
firði. Traktor er dótturfélag bóka-
foriagsins Bjarts. Þaö fer misvel í
Eddu-menn, þó ekki verr en svo,
aö einn þar innan dyra segir glað-
beittur í samtali viÖDV: „Ef Biartur
vill hætta sínum
Potter- og
Browngróöa i
slíkt er
það hiö
besta mál."
Enn ein frumsýning á þessu
mikla leiklistarvori. Á þriðjudags-
kvöldið var frumsýning á „The
Saga of Gudridur" í Skemmtihús-
inu við Laufásveg.
Guðríður Þorbjarnardóttir legg-
ur upp í sína miklu ferð á erfiðum
skipum á opnu hafi, með það að
markmiði að komast til landsins
þar sem sólin alltaf skín, það er
Vínlands, en svo spunnu ör-
lagadísirnar henni aðra vefi þegar
hún var sest þar að, og hún kom
svo ein aftur til íslands með son sin
Snorra og fósturdótturina, sem
hún tók að sér þegar Freydís
vinkona hennar lést. Að
þessu sinni er
það Caroline
Dalton sem
leikur
hana á
enskri
tungu.
Eiríkur örn og
Stefán Máni
Mega búðirheita
nokkur vand-
ræðabörn innan
Eddu útgáfu.
Caroline er mjög vel skóluð,
flink og liðug og talar þannig að
hvert orð skilst. Auðvitað ætti
maður ekki að vera að hafa orð á
slíku þegar fjallað er um leiksýn-
ingu, en þar sem slappmælgi og lé-
leg framsögn er svo algeng, er það
gleðiefni þegar vel er talað, hátt og
skýrt.
Kattliðug listakona
Caroline er ein á sviðinu allan
tímann. Hún bregður sér í margra
kvikinda líki á ferðalagi sínu og
tónlist Margétar Örnólfsdóttur
fellur einkar vel að viðfangsefninu.
_ Áhorfendum er fýrst beint nið-
ur í kjallara þessa sérstaka
leikhúss þeirra Brynju
Benediktsdóttur og Er-
lings Gíslasonar.
Þaðan eru menn
lóðsaðir upp í sal-
inn, þar sem
stórt gulnað
landakort, sem
virðist vera úr
skinni, er strekkt
yfir bakgrunninn.
Guðríður heilsar
niðjum sínum og
hefur söguna af því
er hún fór fyrst til
Grænlands með
fyrsta mann-
i sínum og svo hvernig
hún kynntist Þorsteini
öðrum manni sínum og svo að lok-
um þeim síðasta, Þorfinni Karls-
efni. Líf þeirra, persónuleiki og
dauði birtist okkur ljóslifandi í
mjög svo sterkri og danslegri lfk-
amsbeitingu Caroline. Þar sem
hún baðar út öngum og hreyfingar
og hljóð þeirra fugla sem verða
vegi hennar kvikna til lífs, finnst
manni hún vera vængjum prýdd
eða með handleggi úr gúmmíi.
Glettilegur léttleiki
Brynja Benediktsdóttir, sem er
bæði höfundur og leikstjóri sýn-
ingarinnar, nær svo sannarlega að
töfra fram glettilegan léttíeika og
ótrúlega fjölbreytni þeirra karak-
tera sem við sögu koma. Oftsinnis
stekkur leikkonan úr einum stað í
annan til þess að bregða sér milli
hlutverka. Þar sem hún stendur og
spinnur, eða strokkar meðan hún
spjallar við Freydísi vinkonu sína,
eða þegar hún liggur í kelerfi með
manni sínum, fyrir utan hrein-
ræktuð dansatriði og bardagalist,
sýnir að hér er leikkona á ferð sem
hefur einkar gott vald á líkamsbeit-
ingu.
Hljóðmynd gefur góð hug-
hrif
Hljóðmyndin færir okkur milli
heimshluta og og gefur góð hughrif
sem leiðir okkar eigið hugmynda-
flug til tíma íslendinganna hinna
Brynja Benediktsdóttir, sem er bæði
höfundur og leikstjóri sýning-
arinnar, nær svo sannar-
lega að töfra fram
glettilegan léttleika og
ótrúlega fjölbreytni
þeirra karaktera sem
við sögu koma
Saga Guðríðar.
Skemmtihúsið. Leikur: Caroline
Dalton. Ljósahönnun: Jóhann
Bjarni Pálsson. Tónlist: Margrét
Örnólfsdóttir. Hljóðvinnsla:
Ragnheiður Valdimarsdóttir,
Dimitra Drakopoulou.
Stjórn lýsingar: Haukur j
Pálsson. Leikstjóri og
höfundur: Brynja
Benediktsdóttir.
Leiklist
fomu. Caroline er ein margra
leikkvenna sem leikið hefur þetta
hlutverk hjá Brynju. Uppfærslun-
um er breytt í stíl við leildconurnar
og hér var á ferðinni einkar hröð og
spennandi sýning leiktæknilega
séð. Búingar og leikmynd eru í
höndum Rebbekku Ránar Samper
og ræður þar einfaldleiki og hag-
sýni ferðinni. Serkurinn ljósblái
átti vel við öll æviskeið Guðríðar,
en truflaði svo heldur við vissar að-
stæður. Meðferð ljósanna í hönd-
um Jóhanns Bjarna Pálmasonar
var einnig smekkleg.
Guðríður Þorbjarnardóttir er
einstök kona sem allir ættu að
þekkja og það er víst óhætt að
segja að Brynja Benedikitsdóttir sé
farin að þekkja hana nokkuð vel,
því þetta er líklega ellefta Gurran
sem til verður í hennar smiðju.
Hver veit nema hún birtist svo í
eigin persónu einhvern daginn,
alla vega er nógu mikið spjallað við
völvur þannig að það ætti að vera
komið eitthvert samband.
Brynja í Finnlandi
Guðríður fór sem kunnugt er
ekki eingöngu í vesturátt heldur
lagði hún á fullorðinsárum land
undir fót og hélt til Rómar. Maður
verður eiginlega bara þreyttur á
nútímavísu við tilhugsunina um
ferðirnar.
Saga Guðríðar, sem sýnd er á
ensku, féll vel í kramið hjá þeim
ferðamönnum sem sáu sýninguna
þetta frumsýningarkvöld og það er
óhætt að mæla með henni fyrir þá
sem eru enskumælandi og sjálfsagt
að fara með krakka á hana, þar
sem það er óvenjulegt að heyra
svona vel talaða ensku. Brynja er í
þessum töluðu orðum með aðra
Guðríðarsýningu á fleygiferð um
Norður-Finnland en þar er listahá-
tíð kvenna og keppir hún þar í
sínum riðli með Guðríði sem
leikin er af Valdísi Arnardóttur.
Elísabet Brekkan
BORGARLEIKHUSIÐ
Leikfélag Reykjavikur • Listabraut 3, 103 Reykjavik
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN STÓRA SVIÐ
KALLI A ÞAKINU
99% UNKNOWN - Sirkussýnin
e. Astrid Lindgren
/ samstarfi við A þakinu
Su 12/6 kl 14 UPPS, Su 12/6 kl 17 UPPS,
Lau 18/6 kl 14, Su 19/6 kl 14 - UPPS,
Su 26/6 kl 14, Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14,
Su 17/7 kl 14, Su 24/7 kl 14
Bðrn 12 ára og yngrí fá frítt í Sorgarteikhúsið í fylgd fullorðínna - gildir ekki é barnasýníngar
Míðasölusími 568 8000
midasala^borgarleikhus.is
Míðasala á netínu www.bofgarlelkhus.is
Miðasalört í Borgaríeikhúsinu er opin.
lO-lö rnánudaga og þfíðjudaga, 10-20
míðvíku-, timmtU' og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
CIRKUS CIRKÖR frá SVÍÞJÓÐ
Þri 14/6 kl 20,
Mi 15/6 kl 20,
Fi 16/6 kl 20,
Fö 17/6 kl 20 Aðeins þessar sýningar
25 TIMAR
Dansleikhús / samkeppni LR og Id I samstarfi
við SPRON. I kvöld kl 20 - Uppscft
Bnstakur viðburður
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
I kvöld kl 20 - UPPS, Fö 10/6 kl 20
Lau 11/6 kl 20, Þri 14/6 kl 20, Fi 16/6 kl 20,
Lau 18/6 kl 20, Su 19/6 kl 20
Síðustu sýningar
Glæsilegri bók um íslenska myndlistarsögu fagnað.
Rótlaust þang án sögunnar
„Hefði mig órað fyr-
ir þeirri miHu vinnu og
kostnaði sem verkið
hefur haft í för með
sér, hefði ég sjálfsagt
aldrei komið nálægt
því ,en það gfldir um
flest þau verk sem eru
mér kærust," sagði Jó-
hann Páll Valdhnars-
son útgefandi meðal
annars í ræðu sem hann flutti
afar virðulega móttöku í Þjóð-
minjasafninu.
Jóhann Páll Valdimarsson Forleggjarinn
heldurþví fram, að sllkar bækur væru ekki
gerðar efmenn vissu fyrirfram hversu mikil
vinna og fjármagn fer f sllka útgáfu.
Mynd á þili Rakin er
saga myndlistará fs-
landi frá siðaskiptum
til öndverðrar 18. atdar.
DV-myndir Stefán
Þar
var fagn-
að út-
komu
bókar-
innar
Mynd á
tir Þóru Kristjáns-
list- og sagnfræð-
ing við safiúð. í bókinni er
fjallað um íslenska mynd-
listarmenn sem uppi voru frá
siðaskiptum tíl öndverðar 18. ald-
ar. Oft hefur verið sagt að listasag-
an íslenska sé ung, hafl í raun ekki
hafist að neinu marki fyrr en upp
úr aldamótunum 1900. En þá er
vísað tfl málverksins. Kirkjulist,
svo sem gerð altaristafla, útskurð-
Þóra Kristjánsdóttir
Hefurað flestra mati
unnið stórvirki með
gerð bókarinnar.
ur og vefnaður á sér miklum mun
lengri sögu. Ritið er glæsilegt og
skyldueign þeirra sem vflja átta sig
á samhenginu í íslenskri myndlist
og menningararfleiföinni.
Jóhann Páll hafði þaö til marks
um að hann væri að eldast hversu
stoltur hann væri af því að hafa í
höndum fyrstu eintök bókarinnar.
„Með árunum lærist manni hvað
sagan og uppruninn eru mikflvæg
og án þeirra væri maöur sem rót-
laust þang."