Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.2001, Síða 25

Freyr - 01.05.2001, Síða 25
Mynd 2. Fjöldi fæddra lamba og til nyjta að hausti 1999 í einstökum héruðum. fæddra lamba. Þó að hlutfall af geldum ám sé ekki hátt í saman- burði við erlend sauðfjárkyn er það samt of hátt í samanburði við það sem áður hefur verið. Á 2. mynd má sjá yfirlit um með- alfrjósemi og lambafjölda ánna að hausti í einstökum sýslum. Eins og ætíð er talsverður munur í þessum efnum eftir héruðum þó að sá mun- ur sé orðinn minni en hann var fyrir tveimur til þremur áratugum. Frjó- semi ánna er mest í Austur-Skafta- fellssýslu þar sem fædd eru 1,86 lömb eftir ána að meðaltali og til nytja koma 1,73 að hausti, I Norð- ur-Múlasýslu eru fædd lömb 1,85 að jafnaði og 1,72 til nytja, í Strandasýslu fæðast 1,84 lömb að meðaltali en lambahöld eru þar betri þannig að til nytja koma 1,74 lömb, sem er það besta sem gerist á landinu haustið 1999. í Rangár- vallasýslu eru fædd jafn mörg lömb eftir ána og í Strandasýslu, en lambahöld eru umtalsvert lakari því að hausti koma 1,68 lömb að með- altali eftir ána. I einstökum félög- um er eins og 1. tafla sýnir enn meiri frjósemi. Mest er hún í Sf. Gaulverjabæjarhrepps með 1,99 lömb fædd og 1,83 til nytja, í Sf. Kirkjuhvammshrepps eru lamba- höld hins vegar betri þannig að þar koma flest lömb til nytja eða 1,85 en fædd eru að meðaltali þar 1,95 lömb eftir ána. Marglembuhlutfallið í einstökum héruðum er sýnt á 3. mynd. Eins og fram hefur komið var þetta hlutfall nokkru hærra en árið áður en hins vegar um leið jafnara á milli svæða. Fyrir þennan þátt er breytileiki á milli félaga margfaldur á við það sem munur milli héraða sýnir. I nokkrum félögum eru yfir 10% ánna marglembdar. Flest eru þetta félög með frekar fátt skýrslufært fé en þar á meðal eru samt fjármörg félög eins og Sf. Kirkjuhvamms- hrepps með 10,8%, Sf. Austri í Mý- vatnssveit með 11,6% og Sf. Borg- arhafnarhrepps, þangað sem um- talsverður fjöldi af þessum marg- lembdu ám á ættir sínar að rekja en í þessu móðurfélagi voru 10% ánna marglembdar vorið 1999. Vænleiki diika haustið 1999 Vænleiki dilka haustið 1999 var mjög áþekkur og haustið áður. Eftir hvetja tvflembu er reiknað kjötmagn 30,6 kg (30,8), einlemban skilar að meðaltali 17,3 kg (17,3). Eftir hverja á sem skilar lambi að hausti reiknast því samtals 27,5 (27,7) kg af dilkakjöti að jafnaði og eftir hverja á sem lifandi var í byijun sauðburðar er reiknuð framleiðsla að meðaltali 25,8 kg (26,0). Tölur um kjötmagn í skýrslunum miða við blautvigt, þó að í miklu fleiri slátur- húsum séu tölur í dag gefnar upp sem þurrvigt. Hinni viðmiðuninni hefur verið haldið hér vegna saman- burðar við niðurstöður fyrri ára. Á 4. mynd er geftð yfirlit um þann mun sem er á milli héraða í framleiðslu eftir hverja á. Eins og ætíð þá er hann umtalsverður. Sam- anburður við árið áður sýnir að af- urðir eru yfirleitt minni vestan og norðanlands en austanlands og víð- ast á Suðurlandi. Þær eru þar þó talsvert nteiri en haustið 1998. Þrátt fyrir minni afurðir í Strandasýslu haustið 1999 en árið 1998 eru þær þar eftir sem áður þær mestu á land- inu. Þar er tvflemban að skila 32,5 kg af dilkakjöti að jafnaði og eftir hverja á sem skilar lambi að hausti eru að fást 29,6 kg en eftir hverja á er framleiðslan að meðaltali 28,6 kg. í Suður-Múlasýslu voru næstmestar afurðir haustið 1999 með 27,7 kg eftir ána og í Norður- Múlasýslu var meðaltalið 27,1 kg. Með minni afurðum fækkar einn- ig eðlilega félögum sem ná 30 kg markinu en þau eru átta að þessu sinni. Mestar eru, eins og stundum áður, afurðir í Sf. Vallahrepps þar sem fást 34,6 kg eftir ána á jafnaði. %fleirlembna 1999 Mynd 3. Hlutfall af marglembum í fjárræktarfélögunum vorið 1999 flokkað eftir héruðum. FR6VR 6-7/2001 - 25

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.