Freyr

Volume

Freyr - 01.05.2001, Page 29

Freyr - 01.05.2001, Page 29
Hrútasýningarnar haustið 2000 Skipulag hrútasýninga hefur nú í nokkur ár verið með óbreyttum hætti. Sýning- arnar eru miðaðar við veturgamla hrúta, auk þess sem gert er ráð fyrir að ósýnda eldri hrúta sé hægt að mæta með til dóms. Eftir þessar breytingar eru sýningar hins vegar á hverju ári um allt land. Haustið 2000 var þátttaka í sýn- ingahaidinu enn mikil þó að hún væri talsvert minni en undangengin tvö ár. Samtals komu til dóms á landinu öllu 2750 hrútar en þeir voru haustið 1999 3041 til samanburðar. Eins og áður er gífurlega mikill munur á milli héraða í því hver þátttaka var í sýningu á hrútunum og einkum samanburður við árið áður. Þar er það notkun sæðinga ár- ið áður og ásetningur hrútlamba í kjölfar þess sem hefur langsamlega mest áhrif. Þannig var sýningaþátt- taka á Vesturlandi aðeins svipur hjá sjón í samanburði við það sem ver- ið hafði árið áður. A Norðurlandi voru aftur á móti miklu fleiri hrútar dæmdir nú en haustið áður. Veturgömlu hrútamir voru samtals 2591. Meðalþungi þeirra var 82,3 kg samanborið við 80,6 kg haustið áður. Fullyrða má að aldrei hafi fé hér á landi verið eins vel framgengið að hausti og haustið 2000, sem m.a. birtist í þessum mikla vænleika vet- urgömlu hrútanna. Um allt land hef- ur val ásetningshrúta verið fært í mjög mótaðan farveg, sem m.a. bin- ist í því að gæði ásetningshrúta em orðin miklu meiri og jafnari en var fyrir áratug, þó að ekki sé horft lengra aftur í tímann. Gildi dóma á veturgömlu hrútum hlýtur að sama skapi að minnka og vafalítið þáttur sem full ástæða er til að taka til end- urskoðunar. Af veturgömlu hrútun- um fengu 2319 I. verðlaun eða 89,5% þeirra, II. verðlaun fengu 245 hrútar eða 9,4% þeirra og 27 þeirra eða 0,1% vom taldir til einskis nýtir. Dæmdir vom 159 hrútar 2ja vetra og eldri, en af þeim var fast að þriðjungur einnig á hrútasýningu í gömlum stíl sem sett var upp haust- ið 2000. Þessi hópur er því, eins og að var stefnt, nánast horfinn úr dómstörfunum. Þessir eldri hrútar voru 95,9 kg á fæti að meðaltali. I þeim texta sem hér fylgir er á hefðbundinn hátt gefið stutt yfirlit um umfang dómstarfa í hverju hér- aði og um leið gerð grein fyrir ýms- um allra athyglisverðustu einstakl- ingunum sem bar fyrri augu við þessi dómstörf haustið 2000. FR6VR 6-7/2001 - 29

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.