Freyr

Volume

Freyr - 01.05.2001, Page 43

Freyr - 01.05.2001, Page 43
ekki þroskamiklir. Þessir hrútar eru undan Vegg 96- 816 og Garpi 92-808. A Grímsstöðum í Vest- ur-Landeyjum er Gotti 99-151, sem er sonur Flotta 98-950. Þessi hrút- ur líkist um margt föður sínum, en var mjög þroskalítill. Hrútavalið í Rangár- vallasýslu haustið 2000 var vafalítið að finna í Fljótshlíð. Hrúturinn, sem skipaði efsta sætið í sýslunni, var Arður á Kirkjulæk. Þessi hrútur var með fádæmum vænn, 111 kg, og þroskamikill. Hann mældist með feiki- lega þykkan og vel lagað- an bakvöðva og hefur feikilega góða holdfyll- ingu í mölum og lærum. Arður er sonur Stubbs 95-815. í samkeppni aðal ræktunarbúanna í Rang- árvallasýslu féll sigurinn þetta haustið tvímæla- laust í hlut Jens Jóhanns- sonar í Teigi, en frá því búi komu hrútar í 2., 7., 8. og 10. sæti í sýslunni. Máni 99-412 er ákaflega jafnvaxinn, vel gerður með frábæra holdfyllingu í baki og mölum og þessi hrútur, sem er sonur Garps 92-808, hefur ein- stök lærahold eins og margir bræður hans hafa. Hann skipaði 2. sætið í sýslunni. Sópur er sam- anrekinn, þéttvaxinn holdaköggull undan Þrasa 97-432. Leiri er feikilega útlögumikill og holdþéttur hrútur undan Barða 98-389. Durgur er vænn, þroskamikill, bol- langur og mjög jafnvel gerður hrútur undan Garpi 92-808. Þama voru tveir ntjög föngulegir synir Veggs 96-816, Vargurinn, Skarði, Landsveit. Baugur í Teigi II og Snær á Vestri-Sámsstöðum, fæddur í Hlíðarendakoti, en þeim var það báðum sammerkt að vera með hreinhvíta og góða ull og höfðu í þeim efnum vinn- inginn umfram flesta úr- valshrúta í sýslunni. Vöggur á Efri-Þverá und- an Stubb 95-815 er mjög prúð, vel gerð og fönguleg kind. Spakur á Kirkjulæk er feikilega vænn og þroskamikill hrútur með góða gerð. Hann er sonur Randvers 96-444. Þriðja stóra hrútahóp glæsihrúta í sýslunni gaf að líta á Skarði í Land- sveit. Af hrútum þar bar af Bjór. Þetta er feikilega föngulegur hrútur með mjög góð bakhold og lærahold eru með því allra mesta sem má finna, auk þess sem hann er ágætlega bollangur. Þessi úr- valshrútur var í 3. sæti í sýslunni en hann er sonur Garps 92-808. Vargurinn, sem er undan Svepp 94- 807, var vafalítið besti kollótti hrúturinn í Rang- árvallasýslu. Hrútur þessi er feikilega frísklegur með miklar útlögur, góð bak-, mala- og lærahold og bollangur. Börkur, Biskup og Blossi í Skarði eru einnig allt ákaflega vel gerðir og efnilegir hrútar. Drellir í Meiri-Tungu er feikilega bakþykkur með ágæt lærahold og bollangur. Hrútur þessi er undan Miði 93-813. Að síðustu skal getið um Feng í Kastalabrekku. Þetta er feikilega þroska- mikill og vænn hrútur og allur gróinn í holdum hvar sem á honum er tek- ið. Honum var skipað í 4. sæti í röðun bestu hrúta í sýslunni. Fengur er und- an Mola 93-986. Árnessýsla Fækkun á sýndum hrútum var minni í Arnessýslu en hinum sýslunum á Suðurlandi haustið 2000. Samtals voru sýndir 214 hrútar, þar af sjö úr flokki þeirra eldri. Veturgömlu hrút- amir voru verulega vænni en haustið áður eða 83,1 kg að jafnaði. Flokkun var einnig ívið betri en haustið áður því að 188 pR€YR 6-7/2001 - 43

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.