Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.05.2001, Qupperneq 63

Freyr - 01.05.2001, Qupperneq 63
fyrir þann þáttinn, en fitumatið er hins vegar að þróast á verri veg eftir því sem meðaltalið hækkar. Þriðji þátturinn, sem nauðsynlegt er að skoða þegar gluggað er í kjöt- matsniðurstöður, er fallþungi lamb- anna. Matið verður gagnvart báð- um matsþáttum háð stærð og þroska lambsins og þess vegna verður ætíð visst samband við fall- þungann í matinu. Breytingin er á þann veg að gera verður kröfur um að gerð batni með auknum þunga en um leið er eðlilegt að fitumat verði óhagstæðara vegna þess að dilkurinn safnar að öðru jöfnu auk- inni fitu um leið og hann þyngist. í 1. töflu er gefið yfirlit eftir sýsl- um um meðaltöl úr kjötmatinu í fjárræktarfélögunum haustið 1999. Þama hefur verið bætt við dálki sem sýnir hlutfall á milli mats fyrir gerð og fitu. Þó að augljósir ann- markar séu á jafn einföldu hlutfalli á þessu, virðist mér að það gefi samt ákveðnar vísbendingar sem nýta megi. Ef þetta hlutfall er undir 100 þá sýnist ljóst að einhverjir þættir em í ólagi. Þegar taflan er skoðuð og borin saman við niðurstöður ársins áður, sem var fyrsta árið í þessu nýja kjötmati, þá fást nú upplýsingar úr kjötmati fyrir fast að 30 þúsund fleiri dilka. Besta tölulega matið fyrir gerð er í Norður-Þingeyjar- sýslu eða 7,28, en um leið er fitu- matið þar það lakasta á landinu, dilkarnir of feitir, eða 7,52, þannig að umrætt hlutfall í matinu verður aðeins 97. Umtalsverður munur er samt á milli sveita á svæðinu í þessum efnum og ástand í Sf. Langnesinga þar sýnu verst þar sem umrætt hlutfall er aðeins 82, en þar flokkast yfir 10% lambanna í fituflokk 4 og 5 og slíkt ástand, þó að vænleiki sé mikill, hlýtur að krefjast úrbóta, líklega bæði í ræktun og meðferð (sláturtíma) fjárins. Áhugavert er að bera saman nágrannana í Norð- ur-Þingeyjarsýslu og Norður- Múlasýslu. Á þessum svæðum er ekki umtalsverður fallþungamun- ur og þó að mér sé fullljóst að munur í mati á milli sláturhúsa geti haft talsverð áhrif á niður- stöður er samt áhugavert að sjá að bæði þessi svæði hafa umrætt hlutfall gerðar og fitu nánast það sama. Ástæðan fyrir lágu hlutfalli í Norður-Þingeyjarsýslu er eins og áður segir of mikil fita dilkanna, sem skemmir fyrir góðri gerð þeirra. í Norður-Múlasýslu er það aftur á móti slök gerð sem fyrst og fremst skapar þetta lága hlutfall. Af eðlilegum ástæðum er fjárstofn þar á svæðinu ákaflega breytileg- ur í kjölfar fjárskipta á stórum hluta svæðisins, en einnig hygg ég að þar hafi umskiptum í hrúta- stofninum og markvissu fjárrækt- arstarfi verið sinnt minna en víða, þrátt fyrir að þörfin sé ærin til úr- bóta. Á þessum umræddu svæðum er hins vegar ekki umtalsverður munur á vænleika dilkanna þegar horft er á sýslumeðaltöl. í Suður- Múlasýslu, eins og í norðursýsl- unni, er hlutfallið einnig óhag- stætt, en þar keyrir fitufelling í kjötmati úr hófi í sumum félag- anna þar sem vænleiki er allra mestur. Hlutfall á mati fyrir gerð og fitu hagstæðust í S.-Þing. Lítum þá á jákvæðu niðurstöð- urnar. Umrætt hlutfall er langhæst í Suður-Þingeyjarsýslu, eða 125, en það skýrist að hluta af því að dilkar þar eru léttari og um leið fituminni en í mörgum öðrum héruðum og sú skýring á einnig að einhverju leyti við fyrir Vestur- Skaftafellssýslu. Hinu skal ekki gleyma að í báðum þessum sýslum eru mjög góðir langræktaðir fjár- stofnar sem eru að skila miklum gæðum. Þetta á aftur á móti alls ekki við um Strandasýslu og Vest- ur-Húnavatnssýslu þar sem væn- leiki dilka er hvað mestur hér á landi en um leið er umrætt hlutfall í kjötmatinu eitt það allra hagstæð- asta eða 118 að meðaltali. Það er tæpast vafamál að íslenska dilka- kjötsframleiðslu þarf að þróa að því sem er á ýmsum búum á þessu Tafla 1. Meðaltal úr kjötmati í fjárræktarféiögunum haustið 1999 í einstökum sýslum Sýsla Fjöldi Gerð Fita Hlutfall Kjósarsýsla 190 6,28 6,11 103 Borgarfjörður 5468 6,61 6,17 107 Mýrasýsla 8631 7,07 6,38 111 Snæfellsnes 12071 6,90 6,27 110 Dalasýsla 18170 6,49 6,31 103 Barðastrandars. 8146 6,42 6,35 101 ísafjarðarsýsla 6643 6,54 6,73 97 Strandasýsla 15923 6,86 5,81 118 V-Húnavatnss. 17689 6,63 5,64 118 A-Húnavatnss. 10766 7,19 6,39 113 Skagafjörður 20058 7,25 6,63 109 Eyjafjörður 12394 6,61 6,26 106 S-Þingeyjars. 23969 6,73 5,38 125 N-Þingeyjars. 19986 7,28 7,52 97 N-Múlasýsla 20355 5,92 6,07 98 S-Múlasýsla 7378 6,38 6,66 96 A-Skaft. 12397 7,13 6,21 115 V-Skaft. 13952 6,91 5,87 118 Rangárvallas. 8013 6,74 6,25 108 Árnessýsla 12502 6,45 5,73 113 Landið 254701 6,75 6,20 109 FR6VR 6-7/2001 - 63
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.