Hugur - 01.06.2009, Page 165

Hugur - 01.06.2009, Page 165
Útdráttur úr Ritgerð um manneðlið 163 útilokað er að hugsa sér eitthvað gagnstætt. Það sem er röksannanlega ósatt felur í sér mótsögn, og það sem felur í sér mótsögn er ekki hægt að hugsa sér. En hvað snertir staðreyndir yfirleitt, hversu sterk sem sönnunin kann að vera út frá reynslu, þá get ég alltaf hugsað mér hið gagnstæða þótt ég geti ekki alltaf trúað því.Trúin gerir því einhvern greinarmun á hugsuninni sem við föllumst á og þeirri sem við föllumst ekki á. Til að skýra þetta eru aðeins tvær tilgátur. Segja má að trú tengi einhverja nýja hugmynd við þær sem við kunnum að hugsa okkur án þess að fallast á þær. En þessi tilgáta er ósönn. Því að ífyrsta lagi er ekki hægt að leggja fram neina slíka hugmynd. Þegar við einfaldlega hugsum okkur hlut hugsum við okkur hann frá öllum hhðum. Við hugsum okkur hann eins og hann gæti verið til þótt við trúum ekki að hann sé til. Trú okkar á tilvist hans mundi ekki leiða í ljós neina nýja eiginleika. Við getum útmálað allan hlutinn í huganum án þess að trúa að hann sé til. Við getum á vissan hátt sett hann okkur fyrir sjónir með öllum smáatriðum stundar og staðar. Það er sjálfur hluturinn hugsaður eins og hann gæti verið til. Og þegar við trúum því getum við ekki gert neitt meira. I öðru lagi hefor hugurinn hæfileika til að tengja saman allar hugmyndir sem fela ekki í sér mótsögn, og þar af leiðandi ef trú væri fólgin í einhverri hugmynd sem við bætum við hugsunina eina þá væri það á valdi manns að trúa öllu sem hann getur hugsað sér, með því að bæta þessari hugmynd við. Þar sem trú felur því í sér hugsun og er samt eitthvað meira; og þar sem hún bætir engri nýrri hugmynd við hugsunina þá leiðir af því að hún er öðruvísi háttur að hugsa sér hlut - eitthvað sem tilfinningin getur greint og er ekki háð viljanum eins og allar hugmyndir okkar eru. Hugurinn hleypur af vana frá hinum sýnilega hlut, einni kúlu sem hreyfist í átt til annarrar, til hinnar venjulegu afleiðingar, hreyfingar hjá síðarnefndu kúlunni. Hann hugsar sér ekki aðeins þessa hreyfingu heldur kentiir einhvers sem er óh'kt draumórum ímyndunaraflsins í hugsuninni um hana. Nærvera þessa sýnilega hlutar og stöðug fylgni þessarar sérstöku afleiðingar gera hugmyndina ólíka fyrir tilfinninguna hinum sundurlausu hugmyndum sem koma í hugann fyrirvaralaust. Þessi ályktun virðist dáhtið furðuleg, en við kom- umst að henni með samfelldri röð staðhæfinga sem ekki verða dregnar í efa. Til að auðvelda lesandanum að rifja upp endurtek ég þær í stuttu máli. Enga staðreynd er hægt að sanna nema út frá orsök hennar eða afleiðingu. Ekki er hægt að vita að eitt sé orsök annars nema með reynslu. Við getum ekki gefið neina röklega ástæðu fyrir því að teygja inn í framtíðina reynslu okkar í fortíðinni, heldur ræðst það að öllu leyti af vana þegar við hugsum okkur að afleiðingu leiði af venjulegri orsök hennar. En við trúum því líka, sem og hugsum okkur það, að afleiðing fylgi. Þessi trú tengir enga nýja hugmynd við hugsunina. Hún breytir aðeins hugsunar- hættinum og skiptir máli fyrir tilfinninguna [feeling] eða afstöðuna [sentiment]. Trú stafar því einungis af vana þar sem um staðreyndir er að ræða og hún er hug- mynd sem er hugsuð á sérstakan hátt. Höfondur okkar útskýrir síðan háttinn eða tilfinninguna sem gerir trú frá- brugðna sundurlausri hugsun. Hann virðist gera sér ljóst að það er útilokað að lýsa með orðum tilfinningunni sem allir hljóta að vera sér meðvitandi um í eigin
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.