Árbók VFÍ - 01.06.1992, Page 25
Skýrsla formanns 23
þörf fyrir verkfræðinga í framtíðinni. Atvinnumálanefndina skipa eftirfarandi:
Árni Árnason, formaður
Ólafur Erlingsson
Eymundur Sigurðsson
Pálmi Kristinsson
Vilhjálmur Lúðvíksson
Brunamálastofnun ríkisins
Félagi ráðgjafarverkfræðinga
Stéttarfélagi verkfræðinga
Verktakasambandi Islands
Rannsóknaráði ríkisins
Atvinnumálanefndin gekkst fyrir könnun á atvinnuástandi hjá aðilum sem hafa verkfræð-
inga og tæknifræðinga í þjónustu sinni. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á sarneig-
inlegum fundi verkfræðinga og tæknifræðinga í Verkfræðingahúsinu 21. febrúar 1990. Síðan
þá hefur lítið sem ekkert verið aðhafst og er það miður. Helstu niðurstöður könnunarinnar voru
þær, að atvinnurekendur halda að sér höndum og bíða átekta eftir því hvað gerist, t.d. í stór-
iðjumálum, og hafa því ekki sagt upp verkfræðingum nema í litlum mæli, þó verkefni hafi
dregist saman. Yfirvinna er minni en áður, en enn sem komið er er atvinnuleysi ekki útbreytt.
Fyrirhugaður var fundur um framtíðarhorfur í atvinnumálum sem því miður varð ekkert af þá,
en nú með vorinu standa VFÍ og TFÍ fyrir sameiginlegum fundi um nýsköpun í atvinnulífinu
eins og fyrr segir.
9.9 Fjáröflunarnefnd
Skipuð var sérstök tjáröflunarnefnd til að gera tillögur um hvernig afla megi tekna fyrir félagið.
Magnúsi Bjamasyni var falin fomiennska og valdi hann meðnefndarmenn sína.
9.11 Fundir meö verkfræöinemum og
nýútskrifuðum verkfræðingum
Stjórn félagsins býður árlega nýútskrifuðum
verkfræðingum frá HI ásamt lærifeðrum þeirra
til móttöku í Verkfræðingahúsi á útskriftardag-
inn. Um 90 manns sóttu félagið heim seinasta
dag í júní sl.
Þessu til viðbótar hefur félagið boðið, í febr-
úar annað hvert ár, öllum þriðja og fjórða árs
nemum á kynningarfund. Þannig fá allir nemar
Háskólans tvö heimboð í Verkfræðingahús. í
febrúarhófinu eru menn annað hvort sem nemar
á þriðja eða fjórða ári og í því síðara, heldur
félagið útskriftina hátíðlega með hamingjuósk-
um og freyðivíni.
Þær óskir bárust ofan frá Háskóla að í stað
9.10 Handbók Verkfræöingafélags íslands
Eitt af þeim verkefnum sem stjórnir VFÍ hafa löngum haft á stefnuskrá sinni er útgáfa Hand-
bókar VFÍ, með félagaskrá, félagslögum og öðrum handhægum upplýsingum fyrir verkfræð-
inga. Útgáfa handbókar kostar mikið, áætlaður kostnaður við umgjörðina eina þ.e. bók og
milliblöð, án prentefnis, er u.þ.b. ein m.kr.. Handbók verður að geyma réttar upplýsingar og
því var ákveðið að bíða með útgáfu hennar þar til heildarlagfæringar hafa verið gerðar á fél-
agslögunum sem sýnt er að þarf að samlesa og
lagfæra.
Mynd 9 Stjórn VFÍ býður árlega nýútskrif-
uðum verkfrœðingum og lœrifeðrum þeirra til
móttöku í Verkfrœðingaluisi á útskriftardegi.