Neytendablaðið - 01.10.1998, Síða 9
Umbúðir og innihald
hvaða tegund við ætl-
um að kaupa áður en
haldið er af stað í raun-
veruleg kaup? Þá skipt-
ir engu þótt verðið sé
hærra en búið er að
segja okkur í auglýs-
ingunni, við bítum bara
á jaxlinn og bætum
nokkrum mánuðum
aftan við bflalánið sem
við erum hvort eð er
flest að fara að taka.
Þurfum við neytendur
þá ekki að breyta hegð-
an okkar og fara að að
rífa kjaft þegar okkur
er bo§ið upp á slíka
meðferð og einfaldlega
labba út frá viðkom-
andi seljanda? Alla-
vega hlýtur krafa okkar
að vera að
bifreiðaumboð, eins og
raunar aðrir auglýsend-
ur, segi satt og rétt frá í
auglýsingum, og séu
ekki með rangar og
villandi upplýsingar til
neytenda. Jafnframt er
minnt á að samkeppn-
isyfírvöld hafa hér
skyldum að gegna til
að vernda neytendur
fyrir slíku háttalagi
með eðlilegum leik-
regluni. Það er ljóst að
fjölmörg bifreiðaum-
boð hafa farið langt út
fyrir eðlileg mörk og á
því þarf að taka.
Skoðun Neytendablaðsins:
Þegar mynd eða lýsing er í auglýsingu yfir
vöru skal verð sem birt er vera í samræmi við
verð þeirrar vöru sem sýnd er.
Samkeppnisyfirvöldum ber að tryggja slíkt í
reglum um auglýsingar
Kj ötkraftu r
- súputeningar
Súputeningar bárust til íslands
seint á síðustu öld og hafa síð-
an þótt nauðsynlegt krydd í hverju
eldhúsi til að bæta sósur og súpur.
Kjötkraftur er þó ekki lengur bara í
teningsformi heldur seldar sem
duft eða deig, og við hefur bæst
fískkraftur og grænmetiskraftur af
margvíslegu tagi. Algengustu teg-
undirnar á markaðnum eru frá
Maggi, Knorr og Oscar. Danska
neytendablaðið Tænk lét kanna
innihald framleiðslunnar og er birt-
ur hluti þeirrar umfjöllunar.
Myndir á umbúöum blekkja
Umbúðir margra tegundanna eru
prýddar litmyndum, til dæmis af
heilum kjúklingum, fallegum
nautakjötsbita eða freistandi fiski,
en þetta segir lítið um innihaldið.
Uppistaðan er salt og ef myndin
væri raunsæ ætti hún að sýna saltk-
ar umkringt dýrafeiti og jurtaolíu. í
einu horni ntyndarinnar mætti svo
glitta í örlítið af jurtum og kjöti
eða fiski.
Bragðefni
Fæstir gefa sér tíma til að búa til
sinn eigin kjöt- eða fiskkraft, sem
er seyði af kjöti eða fiski, beinum
eða grænmeti, en nota þess í stað
tilbúinn kraft sem aðeins þarf að
leysa upp í vatni. Því miður eru í
þessum tilbúna krafti mörg efni
sem margir
mundu aldrei setja
út í pottinn.
Bragðefni svo
sem þriðja krydd-
ið, litarefni, rot-
varnarefni, efni
sem koma í veg
fyrir að fita þráni,
allt eru þetta efni
sem meira og
minna er af í flest-
um tegundum til-
búins krafts. Ger-
extrakt og jurtaprótein eru notuð
sem bragðefni ásamt dýrafitunni.
Af þremur fyrrgreindum framleið-
endum komust upplýsingarnar á
Oscars-vörunum næst því að segja
rétt til um innihaldið.
Innihald í nautakjötkrafti
Hér er innihaldslýsing á þremur
tegundum kjötkrafts, og er efnun-
um raðað eftir magni í vörunni.
Oscar
Salt, nautafita með nautaseyði,
gerkraftur, kjötkraftur, glúkósa-
síróp, laukduft, krydd.
Maggi
Salt, bragðefni (E621), jurtaolía,
gerkraftur, kjötkraftur, sykur, litar-
efni (E150), kartöflumjöl, malto-
dextrín, laukkraftur, steinselja,
krydd (paprika, múskat, lárviðar-
lauf, pipar, allrahanda), gulrætur,
púrra, skessujurt.
Knorr
Salt, sterkja, hert jurtaolía,
bragðefni (mononatríum-
glutamínat, natríuminosinat, natr-
íumguanylat), dýrafita, nautaseyði,
litarefni (E150), sítrónusýra,
krydd, gerkraftur, steinselja, gul-
rætur, fleyti (E322), antioxíð
(E320, E311).
N EYTEN DAB LAÐIÐ - október 1998
9