SSFblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 8

SSFblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 8
LAUNAMÁL Helstu niðurstöður launakönnunar SÍB 2007 Áhugavert er að skoða niðurstöður launakönn- unar SÍB. Niðurstöður hennar endurspegla vel þær breytingar sem eiga sér stað í greininni. Sem dæmi má nefna breytingar á fjölda svara eftir starfsheitum. Þar má sjá að talsverð fjölgun svara frá sérfræðingum og þjónustu- fulltrúum meðan svörum frá bankariturum og gjaldkerum fækkar. Launakönnunin fékk góðar viðtökur hjá félagsmönnum og var svarhlutfall um 70% sem er með því besta sem gerist hérlendis í könnun sem þessari þar sem hver og einn tekur ákvörðun um hvort hann svarar. í umljöllun um mánaðarlaun er í öllum tilfellum miðað við 12 mánaða laun. Þannig er búið að samræma svör og tölulegar upplýsingar beggja hópa; þeirra sem fá laun samkvæmt launatöflu A og þeirra sem fá laun samkvæmt launatöflu B. Þegar einungis er litið á heildarlaun er launa- munur kynjanna sláandi, karlar eru að meðaltali með 517.000 krónur í heildarlaun fyrir fullt starf (390.299 í launakönnun 2004) og konurnar með 343.000 krónur fyrir fullt starf (243.929 árið 2004) eða um 66% af launum karla (63% árið 2004). Ýmsar skýringar eru á þessum mun sem nauðsynlegt er að skoða nánar áður en endanlegt mat er lagt á launamun kynjanna. Meðal annars starfsval eða vettvang innan fyrirtækis, menntun starfsmanna, starfsaldur og heildar vinnutíma, þ.m.t. yfirvinnu. Karlarnir eru almennt með meiri menntun, t.d. háskóla- menntun, þeir velja sér störf á verðbréfasviði, í tölvudeildum og öðrum stoðdeildum innan höfuðstöðva og virðast eiga greiðari aðgang í störf yfirmanna fyrir vikið. Konurnar vinna í miklum meirihluta í útibúum banka og spari- sjóða í störfum gjaldkera, fulltrúa og millistjórn- enda þar sem launin eru lægri. Konurnar eru einnig mun meira í hlutastörfum en karlar. Dagvinnulaun kynjanna eru mjög svipuð en karlarnir virðast fá hærri heildarlaun þegar menntun þeirra eykst eða um 8% hærri. Menntun er góð fjárfesting Karlar í störfum millistjórnenda hafa hærri laun en konur í sambærilegum störfum, sérstaklega hafa karlar með stuttan starfsaldur hærri laun en konur með sama starfsaldur. Þetta bendir til þess að ungir, oftast háskólamenntaðir karlar virðast geta selt sína vinnu fyrir hærra verð en ungar háskólamenntaðar konur. Ljóst er að menntun er góð fjárfesting því sérfræðingar, sem langflestir eru með fram- haldsskóla- og háskólamenntun að baki eru með 496.000 krónur að meðaltali fyrir mars- mánuð (389.387 árið 2004). í umfjöllun sérfræðinga Capacent um launamun kynjanna í þessari könnun meðal félagsmanna kemur fram að þegar búið er að meta áhrif hlutastarfa, menntunar, starfsaldurs o. fl, er niðurstaðan samt algjörlega óviðunandi því kynbundinn launamunur er 10,8% á grunnlaunum og 12,9% á heildarlaunum (munurinn var 14,6% árið 1996). Þegar skoðuð er þróun meðallauna má sjá að meðallaun karla hafa hækkað um ca. 32% á tímabilinu 1. apríl 2004 til 1. mars 2007 og meðallaun kvenna um rúm 40% á sama tíma. Þetta sýnir að launaskrið umfram kjarasamn- inga er mikið því kjarasamningar hafa skilað á milli 18-30% grunnkaups-hækkunum á þessum tæpu þremur árum. Kjarasamningar hafa skilað þeim sem eru neðan við miðja launatöflu um 30% hækkun (undir launaflokki 163) en minna til þeirra er hærri launin hafa. Niðurstöður í heild má sjá á www.sib.is undir útgáfa. Launareiknivél á heimasíðu SSF Hægra megin á vefnum www.sib.is má sjá þennan hnapp. Þegar smellt er á hann birtist valmyndin sem er hér fyrir neðan. Ef við t.d. setjum þar inn sem dagvinnulaun kr. 200.000 og felljum síðan úr felligluggum starfsheitið ráðgjafi og starfssvið ráðgjöf/ þjónustu- fulltrúar, þá birtast meðallaun, miðgildi og svo meðallaun karla og meðallaun kvenna. Neðan við þessa mynd kemur svo myndræn skýring á þessum tölum eins og sjá má hér, gula línan er þá þau laun sem við settum inn í dagvinnulaun, græna línan sýnir þann feril sem svarendur í launakönnun með þessar forsendur gáfu upp, rauð lína er meðallaun kvenna og blá lína er meðallaun karla. Á sama hátt er hægt að setja inn heildarlaun sín með því að velja úr felliglugga og eins að velja um aðra þætti. Ekki er æskilegt að nota meira en þrjá valkosti við hverja leit til að auka líkur á tæku svari. Launareiknivélin er mikilvægt verkfæri til að bera eigin laun saman við það sem gerist í greininni og einnig að skoða eigin stöðu miðað við laun fyrir starfsheiti og viðfangsefni hvers og eins. Grunn upplýsingar Ártal Viðmið Min laun [2007 jv 11 Dagvinnulaun'iál [200000 ] | Leita [ ítarlegri upplýsingar - ekki þarf aó fylla íalla reitina td. gefa valmoguleikarnir "buseta", "menntun" og "starísheiti" gottyfirlit Búseta: | Veldu v Menntun: | Veldu iil Starfsaldur j Veldu dl Starfsheiti | Ráðgjafi lil Starfssvið | Ráðgjöf/þjónustufulltrúar dl Meðallaun: 245.221 kr Miðgildi: 244.000 kr MeðaBaun karta: 291.725 kr MeðaRaun kvenna: 239.909 kr Launadreifing > Laun Medaiiaun karla Meðailaun kvenna ------Mín laun 8

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.