SSFblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 11

SSFblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 11
STJÓRNIN Kjartan Sigurgeirsson Meðstjórnandi Kjartan vinnur hjá Reiknistotu bankanna þar sem hann sér um netrekstur. Hann hefur hvergi starfað annars staðar innan fjármálageirans en vann hjá lögreglunni í Kópavogi og sem skattendurskoðandi hjá Skattstjóra Reykjaness umdæmis í eitt ár. 1. febrúar 1977 hóf hann Hafdís Hansdóttir Meðstjórnandi Hafdís er aðstoðarútibússtjóri hjá Kaupþingi, útibúinu í Hafnarfirði. Hún hefur ekki unnið annars staðar innan fjármálageirans. Árið 2000 réði hún sig sem fyrirtækjaráðgjafa hjá Búnaðarbankanum í Hafnarfirði og hóf störf sem aðstoðarútibússtjóri hjá Kaupþingi í ársbyrjun 2005. Fyrri starfsreynsla hennar var störf hjá Reiknistofu bankanna og hefur starfað þar síðan, bæði á vinnslusviði og kerfissviði. Kjartan er giftur Þórdísi Guðrúnu Bjarnadóttur og eiga þau þrjú börn. Áhugamál Kjartans eru einkum siglingar en þær hefur hann stundað í um það bil 15 ár. Síðustu tvö árin hefur hann ásamt eiginkonu sinni verið að byggja hús í Kópavoginum og á meðan hefur þátttaka hans í siglingakeppnum legið niðri. Hann mest í félagslega geiranum en hún vann meö m.a. með fötluðu fólki í tvö ár og var þrjú ár hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík. Þar sinnti hún fjárhagsaðstoð og barnaverndarmálum. Hafdís er í sambúð og á eina fjögurra ára dóttur. Áhugamál hennar eru fjölbreytileg og breytast reglulega. Hún segist njóta þess að vera með einkadóttur sinni og að líklega sé áhugamál númer eitt um var formaöur siglingafélagins Ýmis og er nú formaður starfsmannafélags Reiknistofu bankanna. Kjartan hefur mikinn áhuga á fornbílum og er félagi í Fornbílaklúbbi Islands. þessar mundir að gera allt mögulegt með henni, hvort sem það er bara samvera á heimilinu eða að fara t.d. í sund eða leikhús. Hafdís segist hafa verið í áhugaleik- húsi áður en barnið fæddist. Hún segist örugglega eiga eftir að sinna því meira í framtíðinni en þessa dagana dansar hún Afró dans tvisvar í viku. Anna Kristín Björnsdóttir frá því í janúar 2000 en hafði Meðstjórnandi unnið önnur skrifstofustörf þar á undan, að afloknu háskólanámi. Anna Kristín Björnsdóttir er lánastjóri Hún lauk viðskiptafræðiprófi frá fyrirækja í Ármúlaútibúi SPRON, CBS í Kaupmannahöfn og fór auk þess að vera staðgengill svo í verðbréfanám og er löggiltur þjónustustjóra. Hún hefur gengt verðbréfamiðlari. starfi lánastjóra í nokkur ár en þar Anna Kristín segist eyða frítíma áður var hún fyrirtækjafulltrúi. Hún er sínum í faðmi fjölskyldunnar, . formaður starfsmannafélagsins og er sambýlings og 14 ára sonar og við nú á þriðja starfsári sem slíkur. ýmis konar útivist. Hún hefur gaman Anna Kristín hefur unnið hjá Spron af ferðalögum og fjallgöngum. Friðbert Traustason Formaður Friðbert er framkvæmdastjóri SÍB og situr þar að auki í ýmsum nefndum og stjórnum, m.a. á vettvangi lífeyrissjóðanna. Hann er útskrifaður hagfræðingur frá Háskóla islands. Friðbert á sér langa sögu í bankakerfinu því hann vann í 20 ár hjá Reiknistofu bankanna. Þar áður vann hann hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Olíufélaginu hf. Með skóla var Friðbert sjómaður, m.a. á skutttogara og á síld í Norðursjó. Friðbert er kvæntur Sigrúnu Skúladóttur og á með henni tvö börn. Fjölskyldan var með þeim fyrstu sem flutti í Foldahverfi í Grafarvogi en þau hafa búið í sama húsinu síðan í september 1984. Friðbert er mikill félagsmálamaður og hefur alla tíð sinnt félagsmálum af áhuga og elju. Hvað varðar áhugamálin segist hann vera ílla haldinn af golfbakteríunni og hafa mikinn áhuga á íþróttum yfirleitt. Börnin hans eru áhugasamir íþróttamenn og fylgist hann með þeim. Annars les Friðbert mikið og þá helst þjóðlegan fróðleik og ævisögur en þó er stutt í glæpasögurnar sem bíða á náttborðinu. Sylvía Guðmundsdóttir Ritari Sylvía Guðmundsdóttir er sérfræð- ingur á Fyrirtækjasviði Landsbankans. Hún sér þar um erlendar ábyrgðir. Þar á undan vann hún í rúmlega sex ár hjá Kaupþingi, í erlendum ábyrgðum líka. Sylvía stundaði nám í viðskiptafræði I HÍ, hún ákvað að taka sér hlé frá námi og fór að vinna í Búnaðarbankanum. Hún hefur ekki haft tíma síðan til að Ijúka náminu. Sylvía er gift Sigurði Hafsteinssyni og þau búa þau ásamt 2 sonum sínum í Mosfellsbæ. Þar að auki á Sylvía 2 stjúpböm. Helstu áhugamál Sylvíu eru mótorhjól en hún er varaformaður Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Sniglanna. Fjölskyldan er mótorhjólafjölskylda og gildir það jafnt um eiginmanninn, systur hennar, mág og föður sem gjaman hefur mömmu Sylvíu fyrir aftan sig á hjólinu. Allur frftími fer í að gera upp heimilið og reyna að njóta góðra stunda með fjölskyldu og vinum. Sylvía segist vera nokkuð viss um að frítíminn næsta haust farið í nám. Margt sé hægt að læra bæði í fjamámi og á kvöldin. Hún segir SSF standa sig vel þegar kemur að hvatningu til félagsmanna í nám og með því að veita styrki úr menntunar- sjóði til að auðvelda kostnaðarhliðina. Hún hvetur alla félagsmenn til að kynna sér þetta og nýta vel. I Oddur Sigurðsson Meðstjórnandi Oddur starfar á þjónustuborði Glitnis og þar er hans aðal hlutverk að kenna og aðstoða fólk, bæði í kennslustofu og í gegnum síma. Oddur er rafeindavirkjameistari að mennt hefur starfað hjá Glitni i tæp 10 ár fyrst sem verktaki og síðustu ár sem starfsmaður. Áður vann hann sem kennari hjá Rafiðnaðarskólanum og þar á undan sem tæknimaður hjá Ratsjárstofnun. Hefur ekki verið áður innan fjármálageirans. Oddur er giftur Helga Unnarsdóttur leirkerasmið og saman eiga þau á tvo drengi Sigurð Pétur 19 ára og Jón Bjarka 15 ára. Það er fátt sem kemst að annað en vinnan og félagsmál en Oddur hefur gaman af golfi og fylgist með strákunum sem eru miklir golfarar og spilar sjálfur golf sér til skemmtunar. Annars reynir Oddur að hafa tíma með fjölskyldunni en sá tími er allt of lítill og er stefnan að bæta úr því. 11

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.