SSFblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 24

SSFblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 24
Þess vegna er betra að vera félagsmaður í SSF!! • GÓÐ LÍFEYRISRÉTTINDI Hefðbundinn hlutfallssjóður eða stigasjóður +7% viðbótarframlag atvinnurekanda í séreignarsjóð án mótframlags starfsmanns eftir þriggja ára starf innan kjarasamnings SÍB. Einnig 2+2% í séreignarsjóð fyrir alla. • LAUNATÖFLUR sem verða til í kjarasamningum og gefa raunhæfa mynd af launakjörum meirihluta félagsmanna. • ORLOFSFRAMLAG 120.952 kr. fyrir alla fastráðna starfsmenn. Ýmist greitt út í júní eða jafnað á 12 almanaksmánuði (sjá launatöflu B). • 13. MÁNUÐUR auka mánaðarlaun fyrir alla fastráðna starfsmenn. Ýmist greiddur út í desember eða jafnað á 12 almanaksmánuði (sjá launatöflu B). • LÍF- OG SLYSATRYGGING skv. kjarasamningi fyrir fastráðna starfsmenn - allan sólarhringinn, og gildir alls staðar í heiminum. • STYRKTARSJÓÐUR sem greiðir sjúkradagpeninga að loknum veikindarétti auk styrkja vegna forvarnaaðgerða. • VEIKINDARÉTTUR fjórir og hálfur til tólf mánuðir, eftir starfsaldri, fyrir fastráðna starfsmenn. • FÆÐINGARORLOF sem tryggir fastráðnum starfsmönnum full laun í fæðingarorlofi. • MENNTUNARSJÓÐUR sem endurgreiðir um helming námsgjalda við einingametið nám. • FJÖLSKYLDUVÆNN VINNUTÍMI hjá meirihluta félagsmanna. Og síðast en ekki síst: RAUNVERULEG AÐSTOÐ STÉTTARFÉLAGSINS við félagsmenn sem þurfa að leita réttar síns, s.s. aðstoð og leiðsögn vegna óvæntra mála, vegna uppsagna eða lögfræðimálefna. SÖFNUN UPPLÝSINGA UM KJARAMÁL og úrvinnsla til undirbúnings kjarasamninga og vegna upplýsinga til félagsmanna. LÆGSTU STÉTTARFÉLAGSGJÖLD - einungis 0,7% af grunnlaunum og þar af fer 0,2% beint í Vinnudeilusjóð. Kynntu þér réttindi þín og skyldur sem fram koma í kjarasamningum á www.sib.is

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.