SSFblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 22

SSFblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 22
ÞETTA ER ÉG Friðrik S. Halldórsson „Ég er til húsa í glæsilegum höfuðstöðvum bankans og starf mitt felst einkum í að fylgjast með því sem er að gerast á bankamarkaði, nýjungum og breytingum. Ég sinni samskiptum við útibúin og fylgist með rekstri þeirra og framgangi. Þetta svið er eitt stærsta svið bankans og hér vinna um 440 manns. Inn á sviðið tengjast svo ýmsar stoðeiningar eins og upplýsinga- og tæknisvið, viðskipta- umsjón og fleiri aðilar sem vinna fyrir sviðið," segir Friðrik. „En svona til gamans má geta þess að sviðið er eins og bankinn allur var fyrir um það bil 20 árum, hvað stærð og vinnulag áhrærir.“ Friðrik hefur unnið hjá flestum viðskipta- bönkum landsins. Flann byrjaði í Útvegs- bankanum sem svo sameinaðist íslands- banka. Þaðan fór hann í Seðlabankann og svo Búnaðarbankann sem nú er Kaupþing. „Ég tók við verðbréfaviðskiptum Búnaðar- bankans 1992 en þá var sú deild aðeins þrír aðilar. Það breyttist heldur betur því við sameiningu Búnaðarbanka og Kaupþings voru starfsmenn sviðsins um 160. Þegar ég byrjaði kiktu menn svona einu sinni á dag á netið og keyptu ríkisbréf, en það voru einu bréfin sem skráð voru á markaði. Nú sitja menn fastir við skjáina alla daga og kaupa og selja,“ segir hann. Nám og fyrri störf „Ég fór í Menntaskólann við Sund. Þaðan fór ég í háskólann í verkfræði en endaði sem við- skiptafræðingur," bætir Friðrik við. „Mér fannst ekkert gaman að verkfræðinni svo ég færði mig yfir í viðskiptafræðina. Með námi, allt frá 13 ára aldri hef ég unnið í banka. Fyrsta starflð mitt var að fara með gjaldeyrisumsóknir í gjaldeyriseftiriit bankanna svo hægt væri að stimpla þær en það var forsenda þess að menn fengju gjaldeyri. Eina hliðarskrefið mitt frá bankastörfum var þegar ég gerðist fjármálastjóri Iðntæknistofnunar í 3 ár.“ Áhugamálin Friðrik er giftur og á þrjár stelpur sem eru á aldrinum 11-23 ára. „Sú elsta var að klára verkfræðina - hélt áfram þar sem ég hætti við á sínum tírna," segir Friðrik glettinn. „Áhugamálin? Ég er með ólæknandi biladellu. Fer mikið í jeppaferðir um flöll og firnindi. Svo þykir mér frábært að nota frítíma minn í að smíða jeppa og nota það svona sem mót- vægi við skrifborðsvinnuna. Fjölskyldan ferðast mikið saman en ég hef verið virkur félagsmaður í 4x4 um langa hn'ð. Var reyndar í stjórn þar ein 10 ár, formaður í 5 ár og er einn af stofnendum klúbbsins. Mér þykir langbest að ferðast á íslandi og skemmtilegt að skoða landið á veturna. Eiginlega má segja að mín mestu vonbrigði varðandi ferðalög hafi orðið erlendis. Ég fór einhvern tíma til að skoða Stonehenge og borgaði þar 10 pund í aðgangseyri en fannst lítið til staðarins koma og sá eiginlega mest lítið. Þar sannaðist kannski fyrir mér að fallegasta umhverfið væri nú bara heima á íslandi og að hér væri hægt að finna staði sem tæki öðrum fram. Það skemmtilega við að ferðast á íslandi er hversu ólíkt umhverfið getur verið milli sumars og veturs. Vetrarferðir eru alveg einstök upplifum sem allir ættu að prófa. 22

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.