Læknablaðið - 01.08.1950, Qupperneq 18
76
L .K K N A B I. A Ð I í)
sóknastöð Johns Hopkins há-
skólans þessi sýnishorn, en
fundu ekki mænusóttarvirus í
þeim. Fjögur þeirra voru próf-
uð sérlega vandlega og hvað
eftir annað, en þau voru valin
vegna þess að sjúkdómurinn
hafði verið nýbyrjaður í sjúk-
lingnum, þegar sýnishornin
voru tekin. Enginn apanna,
sem notaðir voru sýktust og
vefjabreytingar fundust ekki í
heila þeirra.
Ýtarlegar tilraunir voru
gerðar hérlendis til að finna
eitthvert annað smitefni í
blóði, mænuvökva og saur
sjúklinga með því að dæla
þeim í venjuleg tilraunadýr.
Yfir 200 dýr voru notuð alls í
þessum tilraunum.
Blóð. Sýnishorn úr 5 sjúk-
lingum, tekin 2, 3, 8 og 9 dög-
um eftir að þeir veiktust, voru
notuð og þeim dælt inn 1 nag-
grísi, mýs og hamstra. Bakter-
íur voru ekki í blöndu þessari.
Dýrin veiktust ekki og vefja-
breytingar fundust ekki í heila.
Mœnuvökvi. Mænuvökvi frá
4 sjúklingum var notaður.
Hann hafði verið tekinn 3, 4,
10 og 15 dögum eftir að sjúk-
lingarnir veiktust, Bakteríur
voru ekki í blöndunni, sem
dælt var inn í heila í músum,
músarungum, hömstrum og
naggrísum. Dýrin veiktust ekki
og vefjabreytingar fundust
ekki í heilunum.
Leitað var að Coxsackie vir-
us samkvæmt aðferð Dalldorfs
(2) með því að saursýnishorn-
unum var dælt hvað eftir ann-
að inn í heila og kviðarhol á
músarungum, Slík sýnishorn
voru prófuð ýmist hvertfyrirsig
eða blönduð saman (bakteríur
drepnar með ether eða skildar
frá í skilvindu með miklum
snúningshraða, en streptomy-
cini og penicillini bætt við til
frekara öryggis)- Flestar til-
raunir voru gerðar með þrjú
saursýnishorn, sem voru tekin
4,5 og 6 dögum eftir að sjúk-
lingarnir veiktust en alls voru
6 sýnishorn prófuð. Þegar svo
bar við að músarungarnir dóu,
eða önnur ástæða vakti grun
um sýkingu í þeim, var reynt
að sýkja aðra músarunga með
heila og vöðvablöndu úr slík-
um dýrum. Við tilraunir þess-
ar fannst ekki smitefni, sem
ylli sjúkdómi í músarungum.
Dr. R, M. Taylor reyndi síð-
ar einnig að einangra slíkt
virus úr sömu sýnishornum í
vinnustofu The International
Health Division, The Rocke-
feller Foundation, New York,
en árangurinn varð neikvæður
hjá honum líka.
Serurn próf. Tólf sýnishorn
af serum voru tekin frá ný-
sýktu fólki 15. til 18, janúar.
Önnur sýnishorn voru tekin úr
sama fólki 7. og 8. marz og
þriðju sýnishorn frá 6 af þeim
sömu hinn 11. sept„
Fyrstu og önnur sýnishorn-